Viðskipti innlent

Kosið um samruna í vikunni

Kosið verður um það í þessari viku og byrjun næstu hvort sameina eigi Mjólkursamsöluna og Mjólkurbú Flóamanna á deildarfundum aðildarfélaga MS á Norður- og Vesturlandi. Fram kemur í frétt á heimasíðu Landssambands kúabænda að samkvæmt samvinnulögum verði allar deildir að samþykkja samrunann. Mjólkurbú Flóamanna hefur þegar samþykkt samrunann og hið sama hefur Mjólkursamlag Kjalarnesþings gert.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×