Innlent

Greip rúðubrjóta í Kópavogi

Lögreglan í Kópavogi handtók fjóra unglingspilta en tveir komust undan eftir að þeir höfðu brotið þrjár rúður í Grunnskólanum við Digranesveg. Vitað er hverjir sluppu en hópurinn er grunaður um að hafa brotið tvær rúður í sama skóla í fyrrakvöld. Þetta eru hrein og klár skemmdarverk, að sögn lögreglu, því piltarnir brutu ekki rúðurnar til að komast inn í skólann. Félagsþjónustan í Kópavogi hefur nú fengið mál piltanna til meðferðar þar sem þeir eru allir yngri en átján ára.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×