Innlent

Enn óvissa um sölu Símans

Þeir sem áttu von á að ríkisstjórnin ákveddi fyrir páska hvernig staðið verður að sölu Símans mega bíða enn. Fastlega hafði verið búist við að ákvörðun um það með hvaða hætti staðið verður að sölu Símans yrði samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Þá væri loks hægt að auglýsa fyrirtækið til sölu og tilgreina skilyrði sem sett verða fyrir kaupunum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir einkavæðinganefnd enn fjalla um málið ásamt ráðgjöfunum frá Morgan og Stanley. Hann segir ekkert óvænt hafa komið upp á heldur vilji menn einfaldlega vanda til verka. Fara þurfi vel í hlutina og ráðfæra sig við fyrrnefnda ráðgjafa. Halldór segir stefnt að því að ákveða fyrirkomulag sölunnar sem allra fyrst eftir páska, um leið og einkavæðinganefnd lýkur störfum. Á fjármálamarkaði er mikið rætt um það hverjir munu bjóða í Símann. Því er haldið fram ítrekað að Finnur Ingólfsson, forstjóri VÍS, segi kaupin í höfn svo lengi sem nægilega breiður hópur fjárfesta sameinist um tilboð. Í því samhengi hefur verið talað um Meið, félaga Bakkavararbræða, og ýmsa smærri spámenn úr viðskiptalífinu hér innan lands og svo Björgólf Thor og Landsbankamenn. Athygli vakti um daginn þegar Burðarás og tengdir aðilar seldu hlut sinn í OgVodafone, að margir telja til að komast hjá hugsanlegum hagsmunaárekstrum bjóði þeir í Símann. Þar að auki hefur Landsbankann aukið verulega lánamöguleika sína að undanförnu. Ekki náðist í Finn Ingólfsson í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×