Innlent

Tvö og hálft ár fyrir ýmis brot

Hæstiréttur dæmdi mann í gær í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir rán, akstur án ökuréttinda, ölvunarakstur og fíkniefnabrot og lengdi þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um hálft ár. Maðurinn framdi ránið vopnaður barefli í verslun 10-11 við Barónsstíg í byrjun febrúar í fyrra. Hann huldi andlit sitt, ógnaði starfskonu og skipaði henni að afhenda sér peninga úr sjóðsvélinni. Hann komst á brott með tæplega 74 þúsund krónur. Maðurinn á langan sakaferil að baki og hefur hlotið 24 refsidóma frá árinu 1990 og er hann nú sakfelldur í þriðja skipti fyrir rán.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×