Innlent

Há sekt fyrir svindl

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og 14,7 milljóna króna sekt fyrir skattsvik og bókhaldssvindl. Maðurinn kom sér undan því að greiða virðisaukaskatt og tekjuskatt á árunum 1998-2002, samtals að upphæð 7,3 milljónir króna. Sektin er því tvöföld sú upphæð og skal greiðast til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, annars skal ákærði sitja í fangelsi í sjö mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×