Viðskipti erlent

Forstjóri Boeing segir upp

Harry Stonecipher, forstjóri og stjórnarformaður Boeing, hefur sagt upp starfi sínu hjá fyrirtækinu að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. James A. Bell verður forstjóri og stjórnarformaður til bráðabirgða. Farið var fram á uppsögn Stoneciphers eftir að rannsókn var gerð á sambandi hans við konu sem starfar hjá Boeing. Stjórn fyrirtækisins taldi að Stonechiper hefði orðið á dómgreindarbrestur og að sambandið myndi hafa áhrif á stjórnunarhætti hans. Þó hafði stjórnin ekkert að athuga við rekstrarlega stöðu fyrirtækisins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×