Sport

Barcelona náði níu stiga forystu

Barcelona náði í gærkvöldi níu stiga forystu í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Katalóníuliðin Barcelona og Espanyol gerðu markalaust jafntefli. 26. umferðinni lýkur í kvöld en þá verða níu leikir háðir. Real Madríd getur minnkað forystu Barcelona í sex stig, takist Madrídarliðinu að vinna Real Betis. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×