Innlent

Fangelsi fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær ungan mann til sex mánaða fangelsis fyrir að ráðast á tvo lögregluþjóna í janúar á síðasta ári með þeim afleiðingum að annar lögreglumaðurinn hlaut meiðsl af. Hélt ákærði því fram að hann hefði ekki vitað að um lögregluþjóna væri að ræða þegar bifreið sem hann var farþegi í var stöðvaður við reglubundið eftirlit óeinkennisklæddra lögreglumanna en dómurinn lagði litla trú á það. Hefur viðkomandi ítrekað komist í kast við lögin meðal annars vegna líkamsárása og var síðast í desember dæmdur til fimmtán mánaða fangelsis vegna þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×