Sport

Barcelona jók forskotið

Barcelona jók forskot sitt í átta stig í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Barcelona gerði jafntefli við botnlið Numancia, 1-1, en Real Madrid tapaði fyrir Deportivo í Coruna, 2-0. Barcelona hefur 58 stig í efsta sæti en Real Madrid er í 2. sæti með 50 stig. Sampdoria skaust upp í þriðja sæti í ítölsku úrvalsdeildinni eftir 1-0 sigur á Brescia. Þá gerðu Fiorentina og Udinesea jafntefli, 2-2. Það verður sannkallaður stórslagur í Mílanóborg í kvöld þegar erkifjendurnir og grannarnir, AC Milan og Inter, mætast á San Síró, heimavelli beggja liða. Leikurinn hefst kl. 19.30 og verður í beinni útsendingu á Sýn. AC Milan er í efsta sæti en Inter í því þriðja og hefur ekki tapað í 40 leikjum í röð. Uppselt er á leikvanginn sem tekur 86 þúsund manns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×