Sport

Cruz Beckham fæddur

Enski landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu David Beckham og kona hans Victoria eignuðust sitt þrðja barn í morgun og reyndist það vera drengur. Drengurinn fæddist í Madrid á Spáni kl. 9.40 að íslenskum tíma í morgun og hefur hlotið nafnið Cruz. Fyrir eiga þau hjónakorn tvo syni, Brooklyn 5 ára og Romeo 2 ára en þau hafa nú verið gift í 6 ár. Cruz, sem þýðir "sending" á spænsku vó 3,2 kg tók fæðingin 30 mínútur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×