Innlent

Fegurðardrottning tapar máli

Fyrrverandi þátttakandi í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is tapaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur máli sem hún höfðaði á hendur aðstandendum keppninnar og íslenska ríkinu. Stúlkan hafði tekið þátt í kynningu á torfærukeppni og slasast þegar hún keyrði yfir sandbing. Hún krafðist bóta upp á tæplega tvær milljónir króna. Aðstandendum Ungfrú Ísland.is stefndi hún fyrir að fá sig til þess að taka þátt í hættulegri keppni og íslenska ríkinu þar sem lögreglan hefði ekki sett lögboðin skilyrði fyrir henni. Héraðsdómur sýknaði hina stefndu af öllum kröfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×