Viðskipti erlent

Verðbólga yfir efri þolmörk

Verðbólga síðustu tólf mánuði er nú komin vel yfir fjögur prósent, og þar með yfir efri þolmörk sem Seðlabankinn setti sér um verðbólgu. Bankanum ber því að gera ríkisstjórninni grein fyrir stöðunni og væntanlegum aðgerðum.  Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,21 prósent frá síðasta mánuði samkvæmt útreikningum Hagstofunnar og um 4,5 prósent síðustu tólf mánuði. Stöðugur stígandi á húsnæðisverði veldur þessu að mestu því ef það væri ekki reiknað inn í neysluverðsvísitöluna hefði hún til dæmis verið undir núllinu núna og þá orðið verðhjöðnun sem er andhverfa verðbólgu. Ef litið er á þróun vísitölunnar án húsnæðisverðs þrjá mánuði aftur í tímann væri verðbólgan ekki nema rétt rúm þrjú prósent síðastliðna 12 mánuði. Í sameiginlegri yfirlýsingu Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar frá því í mars 2001 segir að bankanum beri að senda ríkisstjórninni greinargerð ef verðbólgan fari yfir fjögur prósent þar sem raktar séu ástæður þess og skýrt frá hvernig Seðlabankinn ætli að bregðast við og hversu langan tíma það taki. Samkvæmt þessum nýju tölum Hagstofunnar blasir það nú við bankanum að greina ríkisstjórninni frá stöðu mála.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×