Erlent

Bresk vél fórst í Írak

Bresk vöruflutningavél af gerðinni C-130 Herkúles fórst norðvestur af Bagdad fyrr í dag. Brak úr vélinni hefur dreifst yfir stórt svæði að sögn sjónarvotta sem tilkynntu bresku sjónvarpsstöðinni Sky um málið. Enn er ekki vitað hvað olli þessu, hvort vélin var skotin niður eða hvort um bilun hafi verið að ræða. Þá er hvorki vitað hversu margir voru um borð í vélinni né hvort áhöfn og hugsanlegir farþegar hafi farist eða slasast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×