Innlent

Sprengdu þakskyggni

Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. Þakskyggni á staðnum eyðilagðist við sprenginguna. Að sögn lögreglunnar virðist sem prikið hafði verið tekið af rakettu sem síðan hafi verið sprengd upp. Piltarnir voru yfirheyrðir og fengu skömm í hattinn fyrir uppátækið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×