Viðskipti innlent

Ríkharð í stað Gunnars Smára

Á hluthafafundi Norðurljósa í morgun var staðfestur aðskilnaður sem hefur orðið á milli félagsins og Íslenska útvarpsfélagsins, sem rekur meðal annars Stöð 2 og Bylgjuna, og Fréttar, sem gefur út Fréttablaðið og DV, en Og Vodafone hefur keypt þessi fyrirtæki. Enn fremur var kosin ný stjórn. Í stjórn Norðurljósa sitja Baldur Baldursson formaður, Ríkharð Ottó Ríkharðsson og Árni Hauksson. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var Ríkharð ráðinn framkvæmdastjóri Norðurljósa í stað Gunnars Smára Egilssonar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×