Viðskipti innlent

Leynd skaðleg í viðskiptum

Leynd er alltaf á endanum skaðleg segir Howard Davies, fyrrverandi forstöðumaður breska fjármálaeftirlitsins, sem telur mikilvægt að gagnsæi ríki um eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Í sama streng tekur Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, en að hans mati eru menn of reiðubúnir hér á landi til að leita að glufum í lögum til að stunda viðskipti sem tæplega standast siðferðilega skoðun. Viðskiptaráðherra hefur boðað nýtt lagafrumvarp um verðbréfaviðskipti þar sem meðal annars á að auka gagnsæi Fjármálaeftirlitsins. Með öðrum orðum stendur til að Páll Gunnar Pálsson forstjóri fái brátt aukna heimild til að skýra frá störfum stofnunarinnar. Eins og staðan er í dag hvílir alger leynd yfir því hvort eða hvað er til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu og þá hvernig málum lýkur sem til rannsóknar eru. Howard Davies, rektor London School of Economics, var gestur á ráðstefnu Fjármálaeftirlitsins um framtíð íslensks fjármálamarkaðar en hann er einnig fyrrverandi forstjóri breska fjármálaeftirlitsins. Hann telur að maður geldi fyrir leyndina. „Fjárfestar, sérstaklega erlendir fjárfestar, eru alltaf tortryggnir ef þeir telja að markaðurinn vinni kannski gegn þeim og að eitthvað sé í gangi sem þeir vita ekki um,“ segir Davies. Í Bretlandi skýrir Fjármálaeftirlitið ávallt frá niðurstöðum rannsókna og í einstaka tilfellum, þegar hagsmunir hluthafa krefjast, frá því þegar rannsókn hefst. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir dæmi um að mál hafi komið upp hér á landi sem menn á markaði hafi talið nauðsynlegt að skoða. Erfitt sé þegar enginn viti neitt um lyktir mála. Hann telur regluvirkið hér nokkurn veginn í línu við það sem gerist í nágrannalöndunum. Helsti munurinn sé að fáar hefðir hafi þróast hér á landi vegna þess hve markaðurinn er ungur og því séu menn of reiðubúnir til að leita að glufum í lögum til að stunda viðskipti sem tæplega standast siðferðilega skoðun.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×