Menning

Vinsældir ævintýraferða aukast

Á Spáni er gott að djamma og djúsa með sangríu og quick-tan brúsa, en svo virðist sem landinn hafi fengið leið á slíku. Vinsældir ævintýraferða af ýmsu tagi fara vaxandi að sögn þeirra sem til þekkja. Gönguferðir og fjallgöngur eru þar framarlega í flokki.

Þetta eru dýrar ferðir en kannski ekki svo mikið dýrari en venjuleg sólarlandaferð þegar upp er staðið og skilur meira eftir sig. Fólk eyðir nefnilega ekki miklum peningum þegar það gengur um strjálbýlið í Nepal. Helgi Benediktsson, sem kenndur er við Útilíf, hefur farið með fjölda fólks í gönguferðir til Nepal og undirbýr nú eina slíka göngu- og ævintýraferð um Annapurna-svæðið í Himalayjafjöllum um næstu páska. Hann segir að þetta sé einskonar lúxus-gönguferð og ekki erfið en þó saki ekki að fólk hafi einhverja reynslu af göngu.

Hann segir Nepal vera draumagöngusvæði veraldar, m.a. vegna fjallanna þar sem séu þau hæstu í heimi auk menningarinnar sem þarna er. Í umræddri gönguferð verður gengið í 2000-3000 metra hæð sem að sögn Helga er mjög þægileg hæð. Helgi ætlar að fara með fjórtán manns með sér í ferðina sem tekur sextán daga og kostar 250 þúsund.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.