Menning

Ráðningasamningar mikilvægir

Ráðningarsamningar skipta miklu máli í atvinnulífinu og því er mikilvægt að starfsfólk lesi þá vel yfir áður en það skrifar undir. Oft eru vinnuveitendur tregir til að leyfa fólki að fara með samningana út úr húsi fyrr en búið er að skrifa undir. Samt hvetur Verzlunarmannafélagið félagsmenn sína til að koma jafnvel með samninginn til félagsins til yfirlestrar. Kjarasvið félagsins fær reglulega mál til meðferðar vegna ráðningarsamninga sem félagsmenn hafa skrifað undir en eru ósáttir við. Ástæðan er ýmist sú að fólk hefur ekki gefið sér tíma í að lesa samninginn eða það hikar við að gera athugasemdir af ótta við að fá ekki starfið. Verzlunarmannafélagið vill koma því á framfæri að ráðningarsamningar séu mjög flóknir í dag og hvetur félagsmenn til að leita til félagsins ef einhverjar efasemdir vakna í sambandi við samninga.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×