Bíó og sjónvarp

Tilnefningar til Eddunnar kynntar

Í tilefni af tilnefningum til Eddunnar 2004 býður Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían til blaðamannafundar á Veitingastaðnum REX, Austurstræti 9, mánudaginn 25. október klukkan 13:00.  Kynntar verða tilnefningar 14 flokkum og verða fulltrúar úr hópi tilnefndra og aðstandenda viðstaddir.

Tilnefnt er í eftirfarandi flokkum:

Leikari/leikkona ársins í aðalhlutverki

Leikari/leikkona ársins í aukahlutverki

Skemmtiþáttur ársins

Sjónvarpsþáttur ársins

Heimildarmynd ársins

Hljóð og mynd

Útlit myndar

Handrit ársins

Leikstjóri ársins

Bíómynd ársins

Stuttmynd ársins

Leikið sjónvarpsefni ársins

Tónlistarmyndband ársins

Heiðursverðlaun

Vinsælasti sjónvarpsmaður ársins



Heiðursverðlaunahafi Eddunnar í ár verður viðstaddur blaðamannafundinn.

Hér á Vísi verður hægt að greiða atkvæði eftir að tilnefningarnar hafa verið kunngjörðar. Þar er einnig allar upplýsingar um verðlaunin að finna. Auk þess verður hægt að horfa á sjónvarpsmyndir af öllum tilnefningum í öllum flokkum og margt fleira.

Í hverjum flokki gefst fólki kostur á að velja á milli þriggja til fimm tilnefninga. Val almennings hefur 30% vægi á móti vali þúsund meðlima akademíunnar.

Í einum flokki, Sjónvarpsmaður ársins, verða engar tilnefningar, heldur verður hægt að kjósa einhvern af öllu því sjónvarpsfólki sem prýðir skjáinn. Auk þess að kjósa um Sjónvarpsmann ársins á Vísi mun Gallup spyrja um hug almennings í skoðanakönnun.

Atkvæðagreiðslan á Vísi stendur til 13. nóvember en Edduverðlaunin verða afhent í beinni útsendingu sunnudaginn 14. nóvember í Sjónvarpinu og hér á Vísi. Áhorfendur heima munu þá velja á milli fimm vinsælustu tilnefninganna úr þessum tveimur könnunum í símakosningu eða með SMS-sendingum.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.