Innlent

Fernt flutt á sjúkrahús

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir harðan árekstur þriggja bíla við Blástein á Vesturlandsvegi síðdegis í gær. Fólkið var ekki talið alvarlega slasað. Þeir sem fluttir voru á sjúkrahús voru allir í sama bíl. Einn bílanna kastaðist út af veginum í árekstrinum. Bílarnir voru illa farnir og þurfti að flytja þá á brott með krana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×