Innlent

Kom henni ekki undir læknishendur

Ríkissaksóknari hefur ákært þrítugan karlmann fyrir brot gegn lífi og líkama þegar hann lét fyrir farast að koma liðlega tvítugri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega vegna fíkniefnaneyslu. Þetta gerðist í ágúst á síðasta ári í húsi við Lindargötu í Reykjavík og lést konan af völdum banvænnar kókaín- og e-töflueitrunar. Verði maðurinn sakfelldur á hann yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×