Innlent

Hótaði lögreglu með hníf

Innbrotsþjófur í bíla dró upp hníf og hótaði lögreglumönnum þegar hann var kominn í sjálfheldu lögreglunnar í Bústaðahverfi í nótt. Ekki kom þó til þess að hann beitti hnífnum því þegar lögreglumenn dróu upp kylfur, og skipuðu honum að leggja frá sér hnífinn, gerði hann það. Tilkynnt var að maður væri að brjótast inn í bíla í hverfinu en þegar lögregla kom á vettvang hljóp hann af vettvangi og lögreglumenn á eftir honum og náðu að króa hann af. Þýfi úr tveimur bílum fannst á honum og gistir hann fangageymslur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×