Innlent

Sjöundi maðurinn í gæsluvarðhald

Karlmaður sem var handtekinn í Reykjavík í fyrradag vegna rannsóknar á smygli mikils magns fíkniefna með Dettifossi var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. október næstkomandi. Hann er sjöundi maðurinn sem er handtekinn og dæmdur í gæsluvarðhald vegna málsins. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. Í gær var einnig framlengt gæsluvarðhald yfir einum þeirra sem þegar höfðu verið handteknir. Hann var úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald til viðbótar því sem rann út í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×