Innlent

Handtekinn tvær nætur í röð

Lögreglumenn handtóku í nótt tæplega tvítugan mann á vettvangi þar sem hann hafði brotist inn í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Það væri vart í frásögu færandi ef sami maðurinn hefði ekki líka verið handtekinn við innbrot á sama stað og um svipað leyti í fyrrinótt. Í hvorugt skiptið hafði hann komið neinu þýfi undan áður en lögregla kom á vettvang. Hann gistir nú fangageymslur en verður væntanlega sleppt fyrir kvöldið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×