Innlent

Óvíst um ákæru

Ekki hefur verið ákveðið hvort máli manns sem skaut um tíu skotum á tvö hús á Reykhólum um verslunarmannahelgina ljúki með sektum eða ákæru, að sögn Þórólfs Halldórssonar, sýslumanns á Patreksfirði. Maðurinn hefur játað að hafa skotið af byssum á húsin og telst málið upplýst.Engin var í öðru húsanna en fólk var sofandi í hinu húsinu, þar sem skotið var í gegnum hurð og rúðu. Maðurinn fannst um í Reykjavík sólarhring eftir skotárásina. Hann var heima hjá félaga sínum, en á heimilinu reyndust vera á annað hundrað kannabisplöntur. Sá hefur játað að eiga kannabisplönturnar og bíður hann ákæru.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×