Innlent

Leita að stolnum bíl

Lögreglan í Keflavík leitar að dökkgráum Renault megane, með skráningarnúmerið AX-865, sem stolið var frá Vatnsnesvegi í Reykjanesbæ um klukkan hálf tvö í dag. Bíllinn hafði verið skilinn eftir í gangi og hálftíma síðar þegar eigandinn ætlaði að halda ferð sinni áfram var bíllinn horfinn. Þeir sem geta veitt upplýsingar um bílinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×