Innlent

Tvennt slasaðist

Hjón voru flutt á sjúkrahús eftir að jeppabifreið þeirra valt í Kelduhverfi á móts við bæinn Mörk, skammt frá Ásbyrgi, í gærdag. Ökumaður bifreiðarinnar missti hana út í kant og reyndi að ná bílnum aftur inn á veginn en missti við það stjórn á bifreiðinni. Jeppinn fór þvert yfir veginn, velti og hafnaði á hjólunum. Nota þurfti klippur til að ná ökumanninum úr bílnum. Maðurinn var máttlítill í höndum og var fluttur ásamt konu sinni á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, þau voru ekki talin alvarlega slösuð. Bíllinn skemmdist mikið og var fjarlægður með kranabíl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×