Innlent

Hefur snúið við blaðinu

Tuttugu og fjögurra ára gamall maður var dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla innvortis 138,4 grömmum af kókaíni. Maðurinn var gripinn í Leifsstöð 3. október í fyrra og þykir sýnt að efnið hafi að mestu verið ætlað til sölu. Maðurinn játaði brot sitt og er ekki sagður hafa áður sætt refsiviðurlögum sem skipti máli í tengslum við eiturlyfjasmyglið. Manninum var virt til refsilækkunar að hafa farið í meðferð og sinnt vinnu að henni lokinni, auk þess að vera í sambúð og eiga fjögurra mánaða gamalt barn með sambýliskonu sinni. Þrír mánuðir fangelsisvistarinnar voru því skilorðsbundnir til þriggja ára.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×