Bíó og sjónvarp

Nói fær ágæta dóma

Íslenska kvikmyndin Nói albínói fær ágæta dóma í dönskum fjölmiðlum um helgina en myndin var frumsýnd þar í landi í gær. Myndin fær fjórar stjörnur af sex í Politiken, B.T. og Berlingske tidende.

Gagnrýnendur þessara blaða segja myndina geisla af ungdómi og ferskleika. Frásögnin sé greindarleg og full metnaðar. Þá er skopskyn Íslendinga sagt kalt og því líkt við finnskan húmor.

Gagnrýnandi Jótlandspóstsins er hins vegar ekki hrifinn af myndinni. Hann segir Nóa ekki vera þess virði að skilja hann eða fá áhuga á honum og gefur myndinni einungis tvær stjörnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.