Viðskipti
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 334 ›
Sex sagt upp hjá TM eða boðið skert starfshlutfall Tryggingafélagið TM ýmist sagði upp eða bauð sex starfsmönnum skert starfshlutfall í gær. Aðgerðirnar varða fimm mismunandi stöðugildi. Viðskipti innlent 5.10.2023 16:42
Löggiltar þýðingar fyrir fyrirtæki og einstaklinga Diction býður upp á löggiltar þýðingar fyrir bæði fyrirtæki og einstaklinga. Skjölin eru þýdd úr eða yfir á íslensku og afhent með stimpli og undirskrift. Afhendingartími er á bilinu ein til tvær vikur. Samstarf 5.10.2023 14:39
Danskir ellilífeyrisþegar mala gull á megrunarlyfjum Ofsagróði danska lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk vegna sölu þess á megrunalyfinu Wegovy mun hafa gríðarleg áhrif á efnahagslegan uppgang í Danmörku og mikinn gróða í för með sér fyrir fjölmarga Dani sem eru hluthafar í fyrirtækinu. Hagfræðingur segir þó ýmsar hættur felast í ástandinu fyrir efnahag Dana. Viðskipti erlent 5.10.2023 13:29
Costco selur gull í massavís Verslunarrisinn Costco hefur selt smáar gullstangir í massavís í Bandaríkjunum að undanförnu. Fyrirtækið hefur verið að selja einnar únsu smágullstangir og eru þær vinsælli en þvottaefni. Viðskipti erlent 5.10.2023 11:58
Kaup Sýnar á Já fá grænt ljós Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf., móðurfélagi Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn. Í sáttinni felst að síðasta fyrirvara í samningi um kaup Sýnar er aflétt. Viðskipti innlent 5.10.2023 11:28
Ofbauð verðið á kökusneiðum og kjötsúpu í Perlunni Viðskiptavinur Perlunnar segir verðlagningu á veitingum kaffihússins ósvífna. Tertusneið kostar 2.490 krónur og belgísk vaffla 2.790 krónur. Þá hafa nokkrir klórað sér í höfðinu yfir næstum fimm þúsund króna skammti af kjötsúpu, sem veitingastjóri staðarins segir sjálfur að sé okur. Neytendur 5.10.2023 10:44
Stutt í að LinkedIn breytist líka á Íslandi og verði aðalmiðillinn í ráðningum „Ég held að það sé einungis tímaspursmál hvenær það gerist að LinkedIn auglýsingakerfið opni fyrir Ísland. Og þegar það gerist er eins gott að íslenskir vinnustaðir séu undir það búin að sá miðill mun hafa gífurleg áhrif á það hver ásýnd vinnustaða er fyrir framtíðarstarfsfólk,“ segir Arnar Gísli Hinriksson hjá Digido. Atvinnulíf 5.10.2023 07:00
Áfram enginn loðnukvóti Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2023/2024. Viðskipti innlent 4.10.2023 21:41
Tímamót í Vesturbænum: Hræðilega sárt að selja „barnið hans Þóris“ Elsta starfandi blómabúð landsins, sem hefur verið rekin af sömu fjölskyldunni frá stofnun, er komin á sölu. Eigandi segir það skelfilega sárt að selja búðina en ekkert annað sé í stöðunni. Viðskipti innlent 4.10.2023 19:29
Elísabet nýr framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku Elísabet G. Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka og tekur sæti í framkvæmdastjórn bankans. Viðskipti innlent 4.10.2023 19:21
Boeing í basli með Starliner Forsvarsmenn Boeing eiga í basli með geimfarið Starliner og hefur fyrirtækið tapað minnst 1,4 milljörðum dala á þróun þess. Þessi þróun hefur gengið brösuglega í gegnum árin og hefur fyrsta geimskoti þess ítrekað verið frestað. Viðskipti erlent 4.10.2023 15:32
„Alltof snemmt að tala um vaxtalækkanir“ Seðlabankastjóri segir alltof snemmt að tala um vaxtalækkanir. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að eftir fjórtán stýrivaxtahækkanir í röð væri tímabært að halda vöxtunum óbreyttum. Viðskipti innlent 4.10.2023 13:58
Sex krónu kílómetragjaldi komið á um næstu áramót Áform fjármálaráðherra um frumvarp um kílómetragjald á bílanotkun gerir ráð fyrir að sex krónu kílómetragjaldi verði komið á rafmagns- og vetnisbíla á næsta ári. Þannig sé áætlað að eigandi rafmagnsbíls sem ekur sömu vegalengd muni greiða sama gjald fyrir afnot af vegakerfinu og sá sem ekur bensínbíl. Tengiltvinnbílar munu hins vegar greiða tveggja krónu kílómetragjald á næsta ári. Kílómetragjald á bensín- og díselbíla verður komið á í ársbyrjun 2025. Neytendur 4.10.2023 11:38
Brúðkaupsveislur í uppnámi eftir að Sjálandi var lokað Gourmet ehf. sem hélt úti veitingastaðnum Sjáland við sjávarsíðuna í Garðabæ hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Fjölmörg verðandi brúðhjón eru með hjartað í buxunum enda veislur fram undan sem óvíst er að geti farið fram. Viðskipti innlent 4.10.2023 10:49
Stefna á verðhækkun hjá Netflix Forsvarsmenn streymisveitunnar Netflix stefna á að hækka áskriftaverð á næstunni. Verkfalli handritshöfunda lauk nýverið og stendur til að bíða þar til verkfalli leikara lýkur einnig, áður en verðhækkanirnar verða tilkynntar en verið er að skoða að hækka verðið víða um heim. Fyrst stendur þó til að hækka verðið í Norður-Ameríku. Viðskipti erlent 4.10.2023 09:11
Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja ákvörðun nefndarinnar Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 4.10.2023 09:00
Kraftur og mýkt á sama tíma Ford Mustang Mach-E er hreinn rafbíll sem smellpassar inn í íslenskar aðstæður. Hann er fjórhjóladrifinn og þykir eintaklega góður í snjó og hálku, hefur mikla drægni og er búinn eldsnöggri hraðhleðslu. Samstarf 4.10.2023 08:54
Vaktin: Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent. Viðskipti innlent 4.10.2023 07:30
Fleiri skemmtileg störf en færri síendurtekin og rútínubundin „Fyrir mér er hægt að súmmera þetta upp í eina góða setningu: Gervigreindin getur hjálpað okkur með síendurteknu rútínubundnu störfin og þjálfar sköpunarvöðvana okkar, tekur ekki yfir mannshöndina eða eyðir öllum störfum,“ segir Gyða Kristjánsdóttir vörustjóri stafrænnar þróunar hjá Isavia. Atvinnulíf 4.10.2023 07:00
Bjóða almenningi á þvernorrænt hakkaþon um framtíð hafsvæða Íslenski sjávarklasinn skipuleggur „hakkaþon“ næstu daga þar sem einstaklingar hvaðanæva af Norðurlöndum koma saman til að þróa sjálfbæra leið til að deila hafsvæðum. Að sögn framkvæmdastjóra Sjávarklasans kann að vera stutt í að stjórnvöld þurfi að meta hvernig svæðum á hafinu verði ráðstafað. Almenningi er boðið á föstudag kl. 17:00 að berja afrakstur hakkaþonsins augum. Viðskipti innlent 4.10.2023 06:46
Ráðherra fékk fyrsta gjafakort sinnar tegundar í heimunum Kringlan er fyrsta verslunarmiðstöð í heiminum til að gera viðskiptavinum kleift að vera með eitt stafrænt gjafakort fyrir alla verslunar – og þjónustuaðila Kringlunnar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók formlega við fyrsta gjafakorti Kringlunnar í dag og verslaði með því í snyrtivörudeild Hagkaupa. Viðskipti innlent 3.10.2023 21:32
Kvika stefnir á sölu eða skráningu TM Í framhaldi af stefnumótunarvinnu Kviku banka hefur stjórn Kviku tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga hf.. Viðskipti innlent 3.10.2023 19:23
Kaupmáttur dróst saman í fyrsta skipti í ellefu ár Kaupmáttur á mann dróst saman um 0,1 prósent árið 2022 og á öðrum ársfjórðungi þesssa árs dróst hann saman um 5,2 prósent. Viðskipti innlent 3.10.2023 17:40
Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxinum stafa hætta af laxeldi Fjórtán prósent landsmanna eru jákvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Gallup um viðhorf til laxeldis í opnum sjókvíum. Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxastofninum stafa hætta af laxeldi í opnum sjókvíum. Níu prósent telja að frekar lítil hætta eða allt að engin stafi að villta íslenska laxinum. Viðskipti innlent 3.10.2023 14:45
Fimmtán hundruð krónur fyrir Facebook án auglýsinga Forsvarsmenn Meta, áður Facebook, íhuga að bjóða notendum Instagram og Facebook í Evrópu að borga tæplega fimmtán hundruð krónur fyrir áskrift. Í staðinn myndi fyrirtækið ekki nota persónuupplýsingar samfélagsmiðlanotenda til að sýna notendunum auglýsingar. Viðskipti erlent 3.10.2023 14:08
Síðasta veiðiferð Múlabergsins og tólf skipverjum sagt upp Togarinn Múlabergið á Siglufirði hefur farið í sína síðustu veiðiferð. Upp kom leki í ferðinni sem talið er of kostnaðarsamt að gera við. Tólf skipverjar hafa fengið uppsagnarbréf frá Ísfélaginu sem gerir út togarann. Viðskipti innlent 3.10.2023 13:46
Milljarðar í óþarfa kostnað fyrir neytendur Tryggja þarf aukið eftirlit á bankamarkaði til að tryggja aukna samkeppni. Þetta kom fram í morgun á málþingi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna. Formaður Neytendasamtakanna segir innlenda greiðslumiðlun mikilvæga í þessu tilliti. Neytendur 3.10.2023 13:07
Haukur Örn og Ingvar Smári opna lögmannsstofu FIRMA lögmenn hafa tekið til starfa í Reykjavík. Eigendur lögmannsstofunnar eru Haukur Örn Birgisson hrl. og Ingvar Smári Birgisson, lögmaður, en þeir störfuðu áður saman á Íslensku lögfræðistofunni. FIRMA lögmenn veita alhliða lögfræðiþjónustu með sérhæfingu í þjónustu við atvinnulífið. Viðskipti innlent 3.10.2023 10:10
Bein útsending: Tengsl á tímum Teams Stjórnvísi hefur hugtakið tengsl sem þema og rauðan þráð gegnum starfsárið 2023-2024. Þemað var ákveðið af nýkjörinni stjórn félagsins í nánum takti við óskir stjórna faghópa félagsins um að unnið verði betur í tengslamyndun í félaginu á tímum fjarvinnu, rafrænna fundahalda og streymis frá viðburðum. Viðskipti innlent 3.10.2023 08:15
Bein útsending: Íslenska bankakerfið - okur eða almannahagur? ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna sem stendur milli klukkan 8:30 og 10:30. Viðskipti innlent 3.10.2023 08:00