Viðskipti
242 243 244 245 246 247 248 249 250 … 334 ›
Verðbólga mælist 4,3 prósent Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4%. Ársverðbólga mælist því 4,3% í júlí og stendur í stað milli mánaða. Verðbólga mældist 4,4% í maí og 4,6% í apríl en þá hafði hún ekki verið hærri í átta ár. Viðskipti innlent 23.7.2021 09:48
Alls konar markmið í vinnunni en sömu góðu ráðin Áskoranirnar í vinnunni okkar eru af öllum toga. Allt frá því að vera stórtæk og snúa að starfsframanum okkar, eða bara lítil og góð þar sem okkur langar sjálfum til að bæta okkur í einhverju. Til dæmis að brosa oftar. Eða mæta alltaf á réttum tíma. Atvinnulíf 23.7.2021 07:00
Smeykir við það sem leynist í minnisblaði Þórólfs Eigendur skemmtistaða og kráa í miðbæ Reykjavíkur eru smeykir við það hvaða tillögur sóttvarnalæknir hyggst leggja til að taki gildi svo stemma megi stigu við þá nýju bylgju sem nú er farin af stað í kórónuveirufaraldrinum. Viðskipti innlent 22.7.2021 20:00
Icelandair tapaði 6,9 milljörðum en lausafjárstaða styrkist verulega Icelandair tapaði 6,9 milljörðum á öðrum ársfjórðungi ársins samanborið við 11,4 milljarða tap á sama tíma í fyrra. Forstjóri félagsins segir viðspyrnu félagsins hafna en lausafjárstaða Icelandair styrktist verulega vegna mikillar aukningar í bókunum á flugi á seinni helmingi ársins. Viðskipti innlent 22.7.2021 19:07
Kylfingar keppa um golfferð til Portúgal Enn er hægt að taka þátt í Meistaramótinu í Betri bolta og freista þess að vinna sæti á lokamótinu en sigurlið lokamótsins fær ferð til Portúgal. Samstarf 22.7.2021 14:30
Hraðhleðslustöðvar settar upp við verslanir Samkaupa Samkaup hefur opnað fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi. Fyrirtækið gerði fyrr á árinu samning við Írosku og mun bjóða upp á rafhleðslustöðvar við verslanir sínar um land allt. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:34
Landsbankinn hagnast um 14,1 milljarð króna Landsbankinn hagnaðist um 6,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2021 og var afkoma bankans jákvæð um 14,1 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar var 3,3 milljarða króna tap á sama tímabili árið 2020. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:23
Metpantanir hjá Marel á öðrum ársfjórðungi Annan ársfjórðung í röð var slegið met í pöntunum hjá Marel en pantanirnar á fjórðunginum voru upp á 370 milljónir evra. „Annar ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Okkar metnaðarfulla teymi tókst á við áskoranir með bjartsýni og þrautseigju í nánu samstarfi við birgja og viðskiptavini.“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í tilkynningu um ársfjórðungsuppgjör. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:10
Góður ársfjórðungur hjá Össuri Hagnaður Össurar á öðrum ársfjórðungi nam 2,4 milljörðum króna eða 10 prósent af veltu. Á sama ársfjórðungi í fyrra var 2,3 milljarða króna tap á rekstri fyrirtækisins. Viðskipti innlent 22.7.2021 07:46
Arnar kærir forstjóra ÁTVR til lögreglu Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisverslunarinnar Santewines, hefur lagt fram kæru á hendur Ívari J. Arndal, forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sakargiftir. ÁTVR hefur kært Arnar og fyrirtæki hans Sante ehf. og Santewines SAS til lögreglu og skattayfirvalda fyrir stórfelld skattaundanskot. Arnar hefur alfarið hafnað ásökununum. Viðskipti innlent 21.7.2021 15:44
Neytendastofa sektar þrjú apótek Neytendastofa hefur sektað þrjú apótek vegna vankanta á verðmerkingum. Stofnunin skoðaði ástand þeirra í apótekum í Reykjanesbæ í mars og tók skoðunin til fimm apóteka á svæðinu. Var sérstaklega kannað hvort vörur væru verðmerktar, hvort verðmerking þeirra væri rétt og hvort verðmerkingar fyrir aftan afgreiðsluborð væru nægilega sýnilegar neytendum. Viðskipti innlent 21.7.2021 15:00
Vonir dofna vegna Delta-afbrigðisins Þær vonir sem fjárfestar víða um heim höfðu varðandi það að lífið væri að færast í eðlilegan farveg, hafa ekki ræst að fullu. Hagkerfi hafa ekki jafnað sig eins hratt og vonast var og óttast er að það geti jafnvel tekið langan tíma vegna útbreiðslu Delta-afbrigðisins. Viðskipti erlent 21.7.2021 13:49
Enn hækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,4 prósent milli maí og júní. Árshækkun mælist nú 16 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í október 2017. Viðskipti innlent 21.7.2021 11:47
Eitthvað virkilega neyðarlegt gerist: Hvað þá? Þetta getur gerst fyrir hið besta fólk. Reyndar hið klárasta fólk. Eða hæfasta fólkið. Já, enginn er undanskilinn því að stundum gerist eitthvað virkilega neyðarlegt í vinnunni. Einhver klaufaleg mistök. Eða við segjum eða gerum eitthvað sem vekur upp hlátur allra viðstaddra. Eða gefum jafnvel upp rangar upplýsingar og í framhaldinu fer af stað keðjuverkandi hrina mistaka. Atvinnulíf 21.7.2021 07:00
Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. Viðskipti innlent 20.7.2021 23:03
Krónan vill rúman milljarð króna í bætur frá ríkinu Krónan fer fram á ríflega milljarð króna í bætur frá íslenska ríkinu út af meintum hagnaðarmissi á árunum 2015 til 2018 af völdum innflutningshamla sem brutu gegn EES-samningnum. Málið á sér langan aðdraganda og varðar innflutning á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvörum. Viðskipti innlent 20.7.2021 16:37
Matthías frá Eimskip til Borgarplasts Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Borgarplasts og tekur við af Guðbrandi Sigurðssyni. Á árunum 2009 til 2020 starfaði Matthías sem framkvæmdastjóri flutningasviðs hjá Eimskip. Viðskipti innlent 20.7.2021 13:38
Sossa segir Reykjanesið leynda perlu Reykjanesið býr yfir einstökum náttúrutöfrum og þangað er hægt að gera frábæra ferð. Samstarf 20.7.2021 11:45
Að endast lengur með ferskan andardrátt er lykillinn ZINQ tyggjó er heilsuvara vikunnar á Vísi. Samstarf 20.7.2021 09:20
Norðurál ræðst í fimmtán milljarða framkvæmdir Norðurál og Landsvirkjun hafa gert með sér samkomulag um þriggja ára framlengingu á raforkusölusamningi og mun hann taka gildi þann 1. janúar 2023. Í framhaldinu mun Norðurál fara í fimmtán milljarða króna framkvæmdir: byggingu steypuskála við álverið á Grundartanga. Viðskipti innlent 20.7.2021 07:40
Saka kínversk yfirvöld um umfangsmikla tölvuárás á Microsoft Evrópusambandið og yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum hafa sakað kínversk yfirvöld um að hafa staðið að baki umfangsmikilli tölvuárás á bandaríska tæknirisann Microsoft, fyrr á þessu ári. Viðskipti erlent 19.7.2021 20:55
Hættan á nýrri bylgju hræðir fjárfesta víða um heim Það var víðar en á Íslandi þar sem rauður dagur sást í kauphöllum. Hlutabréfavísitölur víða um heim féllu í dag, ástæðan er rakin til ótta fjárfesta við að ný bylgja kórónuveirufaraldursins geti farið af stað, auk vaxandi spennu í samskiptum Kína og Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 19.7.2021 19:45
Segir ásakanir ÁTVR vera rógburð og vill afsökunarbeiðni Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisvefverslunarinnar Santewines, segir að allar ásakanir ÁTVR um skattsvik og undanskot séu rógburður. Hann fer fram á að kærurnar verði dregnar til baka og ÁTVR biðjist afsökunar í helstu fjölmiðlum. Viðskipti innlent 19.7.2021 12:52
Heildarlaun lækkuðu í sumum starfsgreinum Grunnlaun hækkuðu að jafnaði um 6,6% milli áranna 2019 og 2020. Á sama tíma hækkuðu heildarlaun fullvinnandi um 5,3% og því ljóst að stytting vinnutíma hefur haft áhrif á þróunina. Viðskipti innlent 19.7.2021 10:32
Í vinnu eða atvinnuleit: Ekki birta of mikið á samfélagsmiðlum Við erum sjaldan jafn dugleg að birta myndir á samfélagsmiðlunum og þegar að við erum í sumarfríi. Enda skemmtilegt að sjá hvert fólk er að ferðast og hvað það er að gera. En það eru margar ástæður fyrir því að fólk ætti að forðast að birta of mikið af myndum, of oft eða hvaða myndir sem er. Atvinnulíf 19.7.2021 07:01
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. Viðskipti innlent 16.7.2021 14:36
Taka yfir annað stærsta eggjabú landsins Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Líflands ehf. á helmingshlut í Nesbúeggjum ehf. Eftir kaupin er fyrirtækið alfarið í eigu Líflands sem átti áður 50 prósent hlutafjár í eggjabúinu. Viðskipti innlent 16.7.2021 13:50
Frá Ölmu til Eimskips María Björk Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips. Hún kemur til starfa frá Ölmu íbúðafélagi þar sem hún hafði verið framkvæmdastjóri síðastliðin sjö ár. Viðskipti innlent 16.7.2021 09:30
200 milljóna króna gjaldþrot Ostabúðarinnar á Skólavörðustíg Skiptum í þrotabúi Þriggja grænna osta, sem rak veitingastaðinn Ostabúðina við Skólavörðustíg 8 frá 2015-2019, er lokið. Rúmlega sjö milljónir króna fengust greiddar upp í forgangskröfur. Viðskipti innlent 16.7.2021 09:08
Elmar þarf ekki að snúa aftur í gamla starfið Elmar Ásbjörnsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra bankasviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í lok júní. Viðskipti innlent 16.7.2021 09:03