Viðskipti
133 134 135 136 137 138 139 140 141 … 334 ›
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður enn eina stýrivaxtahækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,5 prósentustig. Viðskipti innlent 8.2.2023 09:00
Ellefta hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,5 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 6,5 prósent. Viðskipti innlent 8.2.2023 08:31
Bestu íslensku vörumerkin 2022: Að þessu sinni fær einstaklingur einnig viðurkenningu fyrir „Persónubrandr“ Í dag verður tilkynnt um hverjir hljóta viðurkenningu sem Bestu íslensku vörumerkin 2022 en þetta er í þriðja sinn sem hátíðin fer fram. Atvinnulíf 8.2.2023 07:01
Setja gervigreind í farþegasætið á netinu Starfsmenn Microsoft ætla að tengja gervigreindartækni, sem byggir á ChatGPT-tækninni vinsælu, við leitarvél fyrirtækisins Bing, netvafrann Edge, Office-pakkann og aðrar vörur fyrirtækisins. Forsvarsmenn fyrirtækisins lýsa tækninni sem aðstoðarbílstjóra fyrir notendur. Viðskipti erlent 7.2.2023 19:51
Landsbankinn tapaði máli sem gæti varðað um 70 þúsund lán Landsbankanum hefur verið gert að greiða hjónum um 200 þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Málið var rekið fyrir héraðsdómi með stuðningi Neytendasamtaka sem telja að um 70 þúsund sambærileg lán hafi verið tekin á undanförnum árum. Komist var að öndverðri niðurstöðu í sambærilegu máli gegn Arion banka. Viðskipti innlent 7.2.2023 18:54
Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þóra hætti störfum hjá RÚV fyrr í vikunni eftir 25 ára starf í fjölmiðlum. Viðskipti innlent 7.2.2023 15:55
Gott fólk: Allt önnur lögmál og jafnvel harðari í pólitík miðað við annars staðar Gott fólk með Guðrúnu Högna eru nýir hlaðvarpsþættir í umsjón Guðrúnar Högnadóttur framkvæmdastjóra Franklin Covey. Atvinnulíf 7.2.2023 13:01
Innkalla MUNA hampolíu vegna of mikils THC Icepharma hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á framleiðslulotu af MUNA hampolíu vegna of hás innihalds af THC (tetrahydrocannabinol). Ráðist er í innköllunina í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Viðskipti innlent 7.2.2023 12:34
Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun. Neytendur 7.2.2023 11:54
Vegagerðin býður út styrkingu Þrengslavegar Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í styrkingu Þrengslavegar á kaflanum milli Lambafells og Litla-Sandfells. Verkinu á að ljúka fyrir lok sumars. Viðskipti innlent 7.2.2023 10:51
Þrýstu á tollalækkanir á fundi með Bjarna Fulltrúar þriggja stéttarfélaga og Félags atvinnurekenda funduðu í gær með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra þar sem tillögur félaganna um lækkun og niðurfellingu tolla í þágu neytenda voru til umræðu. Viðskipti innlent 7.2.2023 10:00
Sölumet slegið hjá Play í janúar Sölumet var slegið hjá Play í janúarmánuði og var bókunarstaðan mjög sterk. Flugfélagið flutti 61.798 farþega í janúar með 76,8 prósent sætanýtingu. Mest var nýtingin í flugi til Tenerife og Parísar, í kringum níutíu prósent. Viðskipti innlent 7.2.2023 09:14
Ómar nýr framkvæmdastjóri hjá Digido Ómar Þór Ómarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri vaxtar hjá markaðsstofunni Digido. Hlutverk hans verður að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að vaxa á alþjóðavísu. Viðskipti innlent 7.2.2023 08:53
Öðru sinni dæmdur fyrir stórfelld skattalagabrot á innan við ári Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt framkvæmdastjóra og einn eiganda verktakafyrirtækis í tólf mánaða fangelsi og greiðslu um 207 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattalagabrot. Viðskipti innlent 7.2.2023 07:47
„Allt í þessum drykk er bara drasl“ Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er harðorð þegar kemur að innihaldinu í íþróttadrykknum Prime. Drykkurinn hefur verið afar vinsæll hér á landi á meðal barna og ungmenna. Neytendur 6.2.2023 14:01
Nýr hótelstjóri á Hótel Selfossi í kjölfar eigendaskipta Björgvin Jóhannesson hefur verið ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss. Viðskipti innlent 6.2.2023 11:04
Aðalheiður Anna og Flóvent sigruðu fyrsta mót meistaradeildar Líflands 2023 Fyrsta mót Meistaradeildar Líflands var haldið síðastliðinn fimmtudag í glæsilegri aðstöðu HorseDay hallarinnar á Ingólfshvoli. Keppt var í fjórgangi og var eftirvæntingin mikil að tímabilið myndi hefjast á ný. Samstarf 6.2.2023 10:05
Hjón í nýsköpun: Hugmyndin kom óvart í feðraorlofi í Barcelona „Fyrstu mánuðina okkar í Barcelona var ég í feðraorlofi og að læra spænsku eftir að hafa flutt fra Danmörku. Ég hafði útbúið gagnagrunn í Excel um fýsileika vindmylluverkefna og velti fyrir mér hvort ég gæti selt þetta sem vöru en áttaði mig þó á því að ég myndi fljótt gera mig atvinnulausan sem ráðgjafi ef ég seldi grunninn frá mér,“ segir Edvald Edvaldsson um aðdragandann að því að nýsköpunarfyrirtækið Youwind Renewables varð til. Atvinnulíf 6.2.2023 07:01
Gervigreind framleiddi heila auglýsingaherferð Advania Ný auglýsingaherferð Advania var gerð af gervigreind. Allt ferlið tók einungis fjóra daga og er meira að segja rödd herferðarinnar gervigreind. Kostnaður við gerð auglýsinganna var aðeins brota brot af því sem slík herferð hefði annars kostað. Viðskipti innlent 5.2.2023 12:26
Morgunrútínan að breytast fljótlega og rokkið umfram diskó Það má búast við að Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi hafi í nægu að snúast næstu vikurnar því í gær var tilkynnt um það að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefði ráðið hann sem forstjóra frá og með 1. apríl næstkomandi og eins eru tvö barnabörn á leiðinni. Dóttir hans sem á von á barni býr enn heima. Atvinnulíf 4.2.2023 10:01
Jóhanna Margrét til Play Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur verið ráðin sem yfirmaður viðskiptaþróunar hjá flugfélaginu Play. Viðskipti innlent 4.2.2023 09:29
Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðsmisnotkunar Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018. Viðskipti erlent 3.2.2023 23:25
Davíð Lúther segir skilið við Sahara Davíð Lúther Sigurðarson, einn stofnenda og framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Sahara, er hættur störfum. Hann greinir frá tímamótunum á Facebook. Viðskipti innlent 3.2.2023 17:49
N4 ehf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var á samfélagsmiðlum sjónvarpsstöðvarinnar. Viðskipti innlent 3.2.2023 16:50
244 blaðberum Póstdreifingar var sagt upp Póstdreifingar sagði upp 244 blaðberum í síðasta mánuði. Allir voru þeir í hlutastarfi og sinntu útburði á dagblöðum. Flestum verður þó boðið aftur starf. Viðskipti innlent 3.2.2023 14:35
261 sagt upp í hópuppsögnum í janúar Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í janúar þar sem 261 starfsmanni var sagt upp störfum. Viðskipti innlent 3.2.2023 13:18
Sýknuð í deilu um átján ára millifærslu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Birki Kristinsson, fjárfesti og fyrrverandi landsliðsmann í knattspyrnu, Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis og auk fleiri, í deilu um átján ára millifærslu á hátt í fimmtíu milljónum. Viðskipti innlent 3.2.2023 12:06
Valur Hrafn ráðinn tæknistjóri hjá Stokki Valur Hrafn Einarsson hefur verið ráðinn tæknistjóri (CTO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Stokki Software. Valur hefur víðtæka reynslu úr tæknigeiranum og hefur frá árinu 2018 stýrt vefþróunardeild Sýnar. Viðskipti innlent 3.2.2023 11:04
Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar. Viðskipti innlent 3.2.2023 10:54
Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri Forlagsins segja upp Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Forlagið, og Þórhildur Garðarsdóttir, fjármálastjóri Forlagsins, hafa sagt störfum sínum lausum. Þau hafa starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun fyrirtækisins árið 2007. Viðskipti innlent 3.2.2023 10:23