Viðskipti erlent
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 334 ›
Stærsti olíufundur ársins jólagjöfin til Norðmanna Bandaríska olíufélagið ConocoPhillips tilkynnti í gær um „verulegan olíufund“ í Noregshafi. Olíulindin er áætluð á bilinu 75 til 200 milljónir olíutunna og telst vera stærsti olíufundur ársins á landgrunni Noregs. Viðskipti erlent 23.12.2020 15:29
Vildi selja Tesla til Apple en fékk ekki fund Elon Musk, eigandi bílaframleiðandans Tesla og geimferðafyrirtæksisins SpaceX, svo eitthvað sé nefnt, sagði frá því í gær að hann hefði leitað til Tim Cook, forstjóra Apple, til að kanna hvort forsvarsmenn Apple væru tilbúnir til að skoða kaup á Tesla. Hann segir Cook ekki hafa viljað funda með sér. Viðskipti erlent 23.12.2020 13:42
MGM og James Bond til sölu Forsvarsmenn MGM Holdings Inc. eru sagðir leita leiða til að selja kvikmyndaver félagsins og með því njósnarann fræga, James Bond. Telja þeir að kvikmyndasafn versins muni vekja athygli streymisveita. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kvikmyndaverið er til sölu á undanförnum árum en hingað til hafa fjárfestar ekki bitið á agnið vegna verðsins, sem þeir telja of hátt. Viðskipti erlent 22.12.2020 10:35
Apple sagt stefna á framleiðslu rafbíla árið 2024 Bandaríski tæknirisinn Apple er sagður stefna á að hefja framleiðslu sjálfkeyrandi rafbíla árið 2024. Viðskipti erlent 21.12.2020 22:09
Rafmagnsskortur í Kína rakinn til deilu við Ástrala Búið er að loka verksmiðjum víða í Kína og yfirvöld borga hafa gert íbúum að spara rafmagnsnotkun vegna orkuskorts í landinu. Samhliða skortinum og takmörkunum fer hitastig lækkandi. Viðskipti erlent 21.12.2020 13:21
Saka FAA og Boeing um að leyna upplýsingum um 737 MAX slysin Rannsókn sem gerð var fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings segir sýna fram á að bæði flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum (FAA) og flugvélaframleiðandinn Boeing hafi reynt að koma í veg fyrir að mikilvægar upplýsingar um Boeing 737 MAX vélarnar kæmu fram í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa. Viðskipti erlent 19.12.2020 10:30
MacKenzie Scott látið fjóra milljarða dala af hendi rakna á fjórum mánuðum MacKenzie Scott, ein ríkasta kona heims, hefur látið rúmlega fjóra milljarða Bandaríkjadala af hendi rakna til fjölskylduhjálparstofnana og styrktarsjóða á síðustu fjórum mánuðum. Það samsvarar um 500 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 16.12.2020 08:46
Stockmann selur húsnæði sitt í Helsinki Finnski verslunarrisinn Stockmann hefur ákveðið að selja fjölda fasteigna sinna, þar á meðal þá sem hýsir flaggskipið í miðborg Helsinki, í tilraun til að bæta fjárhagsstöðu félagsins. Viðskipti erlent 14.12.2020 14:19
YouTube, Gmail og Google Drive liggja niðri Notendur víða um heim, þar á meðal á Íslandi, finna fyrir því þessa stundina að YouTube, Gmail og Google Drive virka ekki sem skyldi. Á vefsíðunni Downdetector má sjá tugþúsundir manna um heim allan tilkynna að þeir geta ekki notað YouTube. Viðskipti erlent 14.12.2020 12:08
Mastercard hættir viðskiptum við Pornhub Kortafyrirtækið Mastercard hefur ákveðið að slíta tengslum við klámsíðuna Pornhub eftir að í staðfest fékkst að á síðunni megi finna fjölmörg dæmi um barnaníð. Viðskipti erlent 10.12.2020 23:05
Kerfisvandamál en ekki tölvuárás Bilun í skilaboðaforritum Facebook í morgun er ekki vegna tölvuárásar. Þetta segir Atli Stefán Yngvason hjá tæknivarpinu, sem ræddi þessa umtöluðu bilun í Reykjavík síðdegis í dag. Viðskipti erlent 10.12.2020 20:24
Frakkar beita Google og Amazon háum sektum Yfirvöld í Frakklandi hafa sektað Google um hundrað milljónir evra og Amazon um 35 milljónir. Það samsvarar rúmum fimmtán milljörðum króna annars vegar og rúmum fimm milljörðum hins vegar. Viðskipti erlent 10.12.2020 10:39
Facebook Messenger liggur niðri Samskiptaforritið Facebook Messenger virðist liggja niðri nú í morgun. Bilunin virðist einkum hrjá notendur forritsins í Evrópu, þar á meðal á Íslandi. Viðskipti erlent 10.12.2020 10:23
Höfða mál gegn Facebook og vilja slíta Instagram og WhatsApp frá fyrirtækinu Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna (FTC) og yfirvöld 48 ríkja og héraða hafa höfðað mál gegn Facebook og saka fyrirtækið um brot á samkeppnislögum. Forsvarsmenn Facebook eru sakaðir um að hafa misnotað yfirráðandi markaðsstöðu fyrirtækisins til að berja niður alla samkeppni og fara fram á að fyrirtækið selji samfélagsmiðilinn Instagram og skilaboðaþjónustuna WhatsApp. Viðskipti erlent 10.12.2020 09:11
Max-flugvélar aftur í áætlunarflug Brasilíska flugfélagið Gol er byrjað að nota flugvélar af gerðinni Boeing 737 Max á ný í áætlunarflugi sínu. Flugvélar af þeirri tegund voru kyrrsettar í mars 2019 í kjölfar tveggja flugslysa á um hálfu ári þar sem 346 manns fórust. Viðskipti erlent 9.12.2020 13:13
Færeyingar gefa ekki frá sér olíudrauminn Mikill áhugi fyrir olíuleit í Færeyjum, segir í fyrirsögn Kringvarpsins, þar sem umhverfis- og atvinnumálaráðherra Færeyja, Helgi Abrahamsen, segir engin áform þar um að hætta olíuleit. Viðskipti erlent 8.12.2020 23:36
Apple kynnir 93 þúsund króna heyrnatól Apple kynnti í dag fyrstu heyrnatólin frá fyrirtækinu sem ekki fara inn í eyrun heldur yfir þau. Heyrnatólin verða hljóðeinangruð og þráðlaus og bera heitið AirPods Max. Verð heyrnatólanna hefur vakið nokkra athygli en þau munu kosta 549 pund, eða um 93 þúsund íslenskar krónur. Viðskipti erlent 8.12.2020 17:32
Í losti eftir að aðgerðirnar voru kynntar í dag Íslensk kona sem rekur kaffihús í Kaupmannahöfn segist vera í losti eftir fréttir af hertum aðgerðum vegna kórónuveirunnar sem kynntar voru í dag. Hún kveðst þó vona að geta haldið rekstrinum áfram gangandi með því að bjóða upp á kaffi og kræsingar til að taka með. Viðskipti erlent 7.12.2020 20:21
IKEA-vörulistinn heyrir nú sögunni til Eftir sjötíu ára sögu heyrir útgáfa IKEA-vörulistans – IKEA-bæklingsins – nú sögunni til. Viðskipti erlent 7.12.2020 13:19
Bretar og ESB halda áfram viðræðum í lokatilraun til að ná samningi Viðræður Breta og Evrópusambandsins um viðskiptasamning munu halda áfram í dag en litið er á viðræðulotuna nú sem lokatilraun til að reyna að ná samningum áður en Bretar hverfa formlega og að fullu úr Evrópusambandinu um áramót. Viðskipti erlent 7.12.2020 07:30
Mastercard með Pornhub til skoðunar vegna ásakana um barnaníð Kortafyrirtækið Mastercard hefur til skoðunar ásakanir á hendur klámsíðunni Pornhub.com í kjölfar fullyrðinga um að á síðunni megi finna fjölmörg dæmi um barnaníð. Viðskipti erlent 6.12.2020 22:42
Ryanair kaupir 210 Boeing 737 Max vélar Írska flugfélagið Ryanair hefur skrifað undir samning um kaup á 75 Boeing 737 Max flugvélum til viðbótar við 135 sem félagið hafði þegar keypt. Flugbanni, sem sett var á eftir tvö mannskæð flugslys, verður líklega létt í Evrópu í janúar. Viðskipti erlent 3.12.2020 22:50
Ríkissaksóknari Namibíu sagður með Samherja í sigtinu Martha Imalwa, ríkissaksóknari Namibíu, er sögð vera með íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Samherja í sigtinu í tengslum við rannsókn namibískra yfirvalda á meintum mútugreiðslum og spillingu þar í landi. Viðskipti erlent 3.12.2020 11:17
Síðasta fjögurra hreyfla þota SAS í lokafluginu yfir Íslandi SAS-þotan Astrid Viking, af gerðinni Airbus A340, lagði upp frá Kaupmannahöfn í morgun áleiðis til Tucson í Arizona þar sem hennar bíður stæði í flugvélakirkjugarði í eyðimörkinni. Flug þotunnar er sögulegt því þar með lýkur rekstri skandinavíska flugfélagsins á fjögurra hreyfla farþegaþotum. Viðskipti erlent 1.12.2020 12:18
Bólusetning verði skilyrði þess að fljúga Ástralska flugfélagið Qantas mun gera það að skilyrði þess að fólk sé bólusett fyrir kórónuveirunni, vilji það fljúga með félaginu. Viðskipti erlent 23.11.2020 22:05
Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður líklega aflétt í janúar Flugbanni Boeing 737 Max vélanna verður aflétt í janúar. Eftirlitsyfirvöld í Bandaríkjunum bundu í síðustu viku endi á 20 mánaða langt flugbann vélanna eftir að tvær slíkar vélar hröpuðu. Viðskipti erlent 21.11.2020 23:36
Senda teymi til að sækja MAX-vélarnar úr eyðimörkinni Bandaríska flugfélagið Southwest Airlines hefur sent teymi flugvirkja í eyðimörkina við Victorville í Kaliforníu þar sem flugfélagið geymir 34 af Boeing 737 MAX-flugvélum sínum. Viðskipti erlent 19.11.2020 15:48
Norwegian í frjálsu falli Hlutabréf í flugfélaginu Norwegian hafa hríðfallið í norsku kauphöllinni í morgun. Frá opnun hafa virði bréfanna fallið um 15 prósent. Viðskipti erlent 19.11.2020 10:15
Norwegian leitar til dómstóla til að bjarga félaginu frá gjaldþroti Flugfélagið Norwegian Air hefur leitað til dómstóla á Írlandi vegna mikilla skulda. Um er að ræða viðleitni til að koma í veg fyrir gjaldþrot flugfélagsins á tímum kórónuveirufaraldursins. Viðskipti erlent 18.11.2020 16:53
Hafa lokað á viðskipti með bréf í Norwegian Búið er að loka á öll viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Norwegian í norsku kauphöllinni. NRK segir frá því að von sé á tilkynningu frá félaginu. Viðskipti erlent 18.11.2020 14:31