Viðskipti erlent
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 334 ›
Önnur Bob-skipti hjá Disney Stjórn Disney tilkynnti í gær að Bob Chapek, forstjóra, hefði verið sagt upp störfum. Í stað hans yrði Bob Iger, fyrrverandi forstjóri og fyrrverandi stjórnarformaður, ráðinn aftur til starfa. Viðskipti erlent 21.11.2022 14:55
Gríðarlegar skuldir fallna rafmyntafyrirtækisins Hið fallna rafmyntafyrirtæki FTX skuldar fimmtíu stærstu lánadrottnum nærri þrjá milljarða dollara, andvirði um 430 milljarða íslenska króna. Viðskipti erlent 20.11.2022 13:47
Trump mættur aftur á Twitter Búið er að opna aftur fyrir Twitter-reikning Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nótt um að aðgangurinn yrði opnaður aftur eftir skoðanakönnun sem yfir fimmtán milljón notendur tóku þátt í. Viðskipti erlent 20.11.2022 02:28
Leyfir almenningi að kjósa um endurkomu Trump Elon Musk, eigandi Twitter og stofnandi Tesla, hefur boðið almenningi að kjósa um hvort Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti ætti að snúa aftur á Twitter. Á tólf klukkutímum hafa rúmlega tíu milljónir manna kosið. Viðskipti erlent 19.11.2022 13:49
Holmes dæmd í ellefu ára fangelsi Elizabeth Holmes, stofnandi Theranos, hefur verið dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Holmes var sakfelld í upphafi árs en refsingin ekki ákveðin fyrr en nú. Viðskipti erlent 18.11.2022 23:18
Starfsmenn flýja Twitter vegna afarkosta Musk Það er óhætt að setja að framtíð samfélagsmiðilsins Twitter sé í uppnámi eftir að hundruðir starfsmanna virtust velja að kveðja fyrirtækið í stað þess að gangast undir afarkost Elon Musk um að starfsmenn skuldbittu sig til að vinna langa og stranga vinnudaga ellegar hættu. Viðskipti erlent 18.11.2022 07:44
Segist aldrei hafa séð aðra eins óráðsíu og hjá FTX Nýr forstjóri fallna rafmyntarfyrirtækisins FTX segist aldrei hafa séð aðra eins óstjórn og þá sem átti sér stað hjá félaginu. Hann átti engu að síður þátt í að greiða úr flækjunni eftir fall Enron sem er talið eitt subbulegasta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 17.11.2022 22:11
Norska Elkjøp bakkar út og gefur Amnesty auglýsingaplássin í tengslum við HM Fáeinum dögum fyrir HM í knattspyrnu í Katar hefur norski raftækjasölu risinn Elkjøp ákveðið að hætta sem kostunaraðili HM-útsendinga sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Fyrirtækið mun þess í stað gefa mannréttindasamtökunum Amnesty auglýsingaplássin. Viðskipti erlent 17.11.2022 16:25
Fjárfestir í FTX stefnir Bankman-Fried, Bündchen, Curry og fleirum Fjárfestir í rafmyntakauphöllinni FTX hefur stefnt fyrrverandi forstjóra og stofnenda hennar, Sam Bankman-Fried, og ellefu stjörnum sem auglýstu kauphöllina. Sá sem stefnir kauphöllinni segir þau kærðu hafa valdið því að fólk tapaði milljörðum dollara. Viðskipti erlent 17.11.2022 11:20
Ætlar að fá annan til að stýra Twitter Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins Twitter, segist ætla að draga úr afskiptum sínum af miðlinum og fá einhvern annan til að stýra fyrirtækinu. Sá stutti tími sem Musk hefur átt Twitter hefur verið stormasamur svo vægt sé til orða tekið. Viðskipti erlent 16.11.2022 22:52
Lengri vinnudagar hjá „harðara“ Twitter 2,0 Auðjöfurinn Elon Musk hefur gefið þeim starfsmönnum Twitter sem enn vinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu frest út daginn á morgun til að sverja þess heit að skuldbinda sig til að vinna lengri vinnudaga hjá „harðara“ Twitter. Geri þau það ekki verði þeim sagt upp. Viðskipti erlent 16.11.2022 15:13
Bezos segist ætla að gefa meirihluta auðæfa sinna Jeff Bezos, stofnandi vefverslunarrisans Amazon og einn ríkasti maður heims, segist ætla að gefa meirihluta auðæfa sinna á lífsleiðinni. Ríkidæmi Bezos eru metin á um 124 milljarða dollara, jafnvirði meira en 18.000 milljarða íslenskra króna, þessa stundina. Viðskipti erlent 14.11.2022 23:51
Kaup á bláu haki Twitter valda usla í raunheimum Á dögunum opnaði samfélagsmiðillinn Twitter fyrir að fólk gæti keypt sér bláa hakið við hlið nafns síns sem gefur til kynna að um hinn rétta aðila sé að ræða. Í kjölfar nýju stefnunnar hafa gervi aðgangar sprottið upp og verið notendum til mikils ama. Viðskipti erlent 12.11.2022 17:53
Óreiðan virðist ráða ríkjum hjá Twitter Frá því auðjöfurinn Elon Musk tók við stjórn samfélagsmiðilsins Twitter hefur mikil óreiða ríkt þar. Musk varaði við því í nótt að gjaldþrot kæmi til greina en fyrr í gærkvöldi hafði hann sagt stöðu fyrirtækisins vera erfiða en margir af æðstu yfirmönnum fyrirtækisins hafa sagt upp á undanförnum dögum. Viðskipti erlent 11.11.2022 14:59
FTX fer fram á endurskipulagningu og forstjórinn víkur Rafmyntarfyrirtækið FTX óskaði eftir því að vera tekið til endurskipulagningar á grundvelli laga um gjaldþrot í Bandaríkjunum í dag. Þá var greint frá því að forstjórinn Sam Bankman-Fried hefði sagt af sér. Viðskipti erlent 11.11.2022 14:43
Frystu eignir FTX-rafmyntarkauphallarinnar Hrakfarir rafmyntarkauphallarinnar FTX sem varð fyrir áhlaupi innistæðueigenda í vikunni halda áfram. Yfirvöld á Bahamaeyjum frystu eignir dótturfélags FTX og þá berast fréttir af því að bandarísk yfirvöld rannsaki möguleg lögbrot stofnanda félagsins. Viðskipti erlent 11.11.2022 08:54
Musk segir horfur Twitter alvarlegar Auðjöfurinn Elon Musk, nýr eigandi Twitter, sendi í nótt bréf á þá starfsmenn fyrirtækisins sem vinna þar enn eftir uppsagnir síðustu viku. Í bréfinu sagði hann að allir um fjögur þúsund starfsmenn Twitter þurfi að verja öllum sínum vinnudögum í höfuðstöðvum fyrirtækisins og að ástandið á fyrirtækinu væri „alvarlegt“. Viðskipti erlent 10.11.2022 17:10
Rafmyntarrisi rambar á barmi þrots Gengi helstu rafmynta heims tók dýfu eftir að ljóst varð að FTX, ein af stærstu rafmyntarkauphöllum heims yrði ekki bjargað af keppinauti sínum. FTX er sagt ramba á barmi þrots í skugga frétta um að viðskiptahættir fyrirtækisins séu til rannsóknar hjá bandarískum yfirvöldum. Viðskipti erlent 10.11.2022 11:00
Segir upp ellefu þúsund manns Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, móðurfélags Facebook, tilkynnti í morgun að um ellefu þúsund starfsmönnum fyrirtækisins yrði sagt upp. Það samsvarar um þrettán prósentum af starfsmönnum Meta en forsvarsmenn fyrirtækisins ætla einnig að grípa til fleiri aðgerða til að hagræða í restri þess. Viðskipti erlent 9.11.2022 12:03
Musk selur enn fleiri bréf í Tesla Elon Musk, ríkasti maður jarðar, seldi á dögunum hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla fyrir tæpa fjóra milljarða Bandaríkjadala. Viðskipti erlent 9.11.2022 06:45
Stoltur andstyrktaraðili HM í Katar Skoska brugghúsið BrewDog hefur lýst því yfir að vera „stoltur andstyrktaraðili“ heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fer fram í Katar. Allur ágóði af sölu einnar bjórtegundar brugghússins mun renna til góðgerðasamtaka sem leggja áherslu á mannréttindi. Viðskipti erlent 8.11.2022 10:59
Ný áskriftarleið á Twitter í loftið Twitter kynnir formlega nýja áskriftarleið þar sem notendum miðilsins býðst að kaupa vottun á aðgangi sínum fyrir 8 bandaríkjadali, eða tæpar tólf hundruð krónur, á mánuði. Viðskipti erlent 5.11.2022 21:35
Þúsundum starfsmanna sagt upp Elon Musk hefur sagt upp rúmlega helmingi starfsmanna samfélagsmiðilsins Twitter. Musk er sagður hafa lagt niður heilu deildirnar, þar á meðal deild sem á að sporna gegn dreifingu falsfrétta og röngum eða villandi upplýsingum á miðlinum. Viðskipti erlent 4.11.2022 23:00
Kvartar undan tekjutapi Twitter Auðjöfurinn Elon Musk, nýr eigandi Twitter, segir fyrirtækið hafa orðið fyrir miklu tekjutapi því auglýsendur hafi hætt að auglýsa á samfélagsmiðlinum. Til stendur að segja upp stórum hópi starfsmanna fyrirtækisins, viku eftir að Musk eignaðist Twitter og tók fyrirtækið af hlutabréfamarkaði. Viðskipti erlent 4.11.2022 16:57
Musk leitar nýrra tekjulinda fyrir Twitter Auðjöfurinn Elon Musk vinnur hörðum höndum að því að auka tekjur samfélagsmiðlafyrirtækisins Twitter, sem hann keypti nýverið. Mestar tekjur Twitter eru til komnar vegna auglýsingasölu en því vill Musk breyta. Þá þarf hann að auka tekjur fyrirtækisins vegna mikilla skulda sem það tók á sig við yfirtöku hans. Viðskipti erlent 2.11.2022 12:19
Rasistar og tröll nýta sér tækifærið á Twitter Í kjölfar þess að auðjöfurinn Elon Musk tók yfir stjórn samfélagsmiðilsins Twitter er útlit fyrir að fjölmargir rasistar og nettröll hafi nýtt sér tækifærið til að básúna hatri sínu og leiðindum á samfélagsmiðlinum en Musk segist ætla að leggja mikla áherslu á málfrelsi á Twitter og eru uppi miklar vangaveltur um það hvernig ritstjórn mun fara fram. Viðskipti erlent 29.10.2022 13:44
Elon Musk orðinn eini eigandi Twitter Elon Musk, ríkasti maður jarðar, hefur nú eignast samfélagsmiðilinn Twitter með húð og hári. Hann hefur látið reka flesta af æðstu stjórnendum fyrirtækisins. Viðskipti erlent 28.10.2022 06:27
Hagnaður Meta dróst saman um helming Virði hlutabréfa Meta, áður Facebook, hefur lækkað töluvert í kjölfar þess að fyrirtækið birti annað ársfjórðungsuppgjörið í röð þar sem tekjur hafa dregist saman. Félagið er nærri því að falla úr flokki tuttugu verðmætustu félaga Bandaríkjanna eftir mjög erfitt rekstrarár. Viðskipti erlent 27.10.2022 12:16
Mætti með vask í höfuðstöðvar Twitter Auðjöfurinn Elon Musk er líklegur til að eignast samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter formlega í þessari viku. Í gær mætti hann í höfuðstöðvar fyrirtækisins í San Francisco með vask í fanginu. Frestur Musks til að kaupa fyrirtækið á um 44 milljarða dala rennur út á morgun og virðist sem yfirtakan sé langt komin. Viðskipti erlent 27.10.2022 10:20
Samsung-erfinginn formlega orðinn forstjóri Suður-kóreski tæknirisinn Samsung hefur formlega skipað Lee Jae-yong, sem hefur áður hlotið dóm fyrir mútur og fjársvik, í embætti forstjóra fyrirtækisins. Viðskipti erlent 27.10.2022 07:42