Sport
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Allir sammála um að Raggi Nat eigi ekki að fara í bann Ummæli Ragnars Nathanaelsson um dómara í leik Keflavíkur og Hamars virðast ætla að draga dilk á eftir sér. Halldór Garðar Hermannsson var með upptökubúnað á sér í leiknum og samtal hans og Ragnars hefur nú ratað inn á borð aganefndar KKÍ. Körfubolti 13.1.2024 22:58
Þrjár vítaspyrnur í markasúpu Inter og Monza Það virðist fátt fá stöðvað velgengni Inter Milan í Seríu A á Ítalíu þessa dagana en liðið vann yfirburðasigur á Monza á útivelli í kvöld, 1-5, en þrjú af sex mörkum kvöldsins komu úr vítaspyrnum. Fótbolti 13.1.2024 22:19
„Þarf að vera fljótur að gleyma líka“ „Ég var alls ekki góður og ég á helling inni. Það verður bara að gera betur. Bæði ég og liðið,“ segir Ómar Ingi Magnússon, máttarstólpi í íslenska landsliðinu í handbolta, hreinskilinn eftir fyrsta leik á EM í Þýskalandi. Handbolti 13.1.2024 22:00
Danir og Svíar kjöldrógu andstæðinga sína Danir og Svíar unnu yfirburðasigra í leikjum sínum á EM í kvöld og eru bæði lið því með fullt hús stiga í sínum riðlum, tveir sigrar í tveimur leikjum. Handbolti 13.1.2024 21:40
Fyrsta stig Færeyja á stórmóti í hús Færeyingar skráðu sig í sögubækurnar í kvöld þegar liðið náði jafntefli gegn Noregi á Evrópumeistarmótinu í handbolta en þetta er fyrsti stigið sem liðið nælir sér í á stórmóti. Boðið var upp á gríðarlega dramtík á lokamínútunum. Handbolti 13.1.2024 21:27
Leik Bills og Steelers frestað vegna kulda NFL deildin hefur gefið út yfirlýsingu og frestað leik Buffalo Bills og Pittsburg Steelers en mikill snjóþungi er nú á svæðinu og völlurinn á kafi í snjó. Sport 13.1.2024 20:54
Hilmar Smári stigahæstur í sigurleik Hilmar Smári Henningsson átti skilvirkan leik með Bremerhaven í kvöld en hann var stigahæstur allra á aðeins rúmum 18 mínútum í þýsku B-deildinni. Körfubolti 13.1.2024 20:19
Kevin De Bruyne afgreiddi Newcastle á 21 mínútu Manchester City hefur verið á góðri leið síðustu vikur og endurheimt Kevin De Bruyne úr meiðslum. De Bruyne byrjaði á bekknum í dag en var engu að síður hetja City þegar upp var staðið. Enski boltinn 13.1.2024 19:30
Portúgal með fullt hús stiga í F-riðli Portúgal er komið í lykilstöðu á Evrópumótinu í handbolta en liðið lagði Tékkland 27-30 í dag. Hinn 21 árs gamli Martim Costa fór á kostum og skoraði ellefu mörk. Handbolti 13.1.2024 19:12
Elías Már skoraði í endurkomusigri NAC Breda Elías Már Ómarsson skoraði jöfnunarmark NAC Breda í dag þegar liðið sótti þrjú mikilvæg stig til Emmen í hollensku B-deildinni. Fótbolti 13.1.2024 18:15
Haukar rúlluðu yfir KA/Þór Haukur halda pressu á toppliði Vals í Olís-deild kvenna í handbolta en liðið vann stóran sigur á KA/Þór á Akureyri í dag, lokatölur fyrir norðan 19-32. Handbolti 13.1.2024 17:48
Elvar Már og félagar skoruðu 35 stig í heilum körfuboltaleik Sá fáheyrði atburður átti sér stað í grísku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag að lið PAOK skoraði aðeins 35 stig þegar liðið tapaði gegn Peristeri 71 - 35. Körfubolti 13.1.2024 17:28
Sara Björk og félagar tryggðu sér dýrmæt þrjú stig í toppbaráttunni Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í Juventus tryggðu sér þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni í Seríu-A í dag þegar liðið lagði AC Milan, 2-1. Fótbolti 13.1.2024 17:15
Styrktarþjálfarinn Óskar Örn skoraði og lagði upp Íslandsmeistarar Víkings fóru létt með 1. deildarlið ÍR í Reykjavíkurmótinu í dag en það má segja að styrktarþjálfari liðsins, Óskar Örn Hauksson, sem stal senunni í dag. Fótbolti 13.1.2024 16:36
Albert lék í markalausu jafntefli Albert Guðmundsson lék allan leikinn í liði Genoa sem gerði markalaust jafntefli gegn Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 13.1.2024 15:59
Solskjær hafnaði Svíum Svíar eru í leit að landsliðsþjálfara og hefur sú leit gengið illa. Olof Mellberg hafnaði knattspyrnusambandinu á dögunum sem einnig var með Ole Gunnar Solskjær á lista yfir mögulega þjálfara. Fótbolti 13.1.2024 15:17
Þriðji deildarsigur Chelsea í röð Chelsea vann sinn þriðja leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Fulham á Stamford Bridge. Enski boltinn 13.1.2024 14:32
Þrenna hjá Pedersen og Fylkir valtaði yfir Fjölni Valur og Fylkir unnu stóra sigra í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í dag. Patrick Pedersen var á skotskónum hjá Val gegn Þrótti. Fótbolti 13.1.2024 14:22
Vestri missir besta mann síðasta tímabils Daninn Gustav Kjeldsen verður ekki með nýliðum Vestra í Bestu deildinni í sumar. Kjeldsen var valinn besti leikmaður þegar Vestri fór upp í efstu deild í fyrsta sinn á síðasta tímabili. Fótbolti 13.1.2024 14:15
Körfuboltakvöld: „Ef ég hefði pissað í hálfleik hefði ég líklega ekki fallið“ Subway Körfuboltakvöld var á dagskrá Stöðvar 2 Sport í gær. Þar sagði sérfræðingurinn Ómar Sævarsson söguna af því þegar hann féll á lyfjaprófi árið 2013. Körfubolti 13.1.2024 14:01
Alexandra innsiglaði sigur Fiorentina Alexandra Jóhannsdóttir var á skotskónum þegar lið Fiorentina vann sigur á Napoli í Serie A deildinni á Ítalíu í dag. Fótbolti 13.1.2024 13:45
Endar Henderson á Ítalíu? Jordan Henderson flutti sig um set til Sádi Arabíu í haust frá Liverpool þar sem hann var fyrirliði. Hann vill nú burt þaðan og gæti endað í ítölsku deildinni. Fótbolti 13.1.2024 13:01
Körfuboltakvöld kvenna: Berglind og Ólöf Helga spreyttu sig á myndaþraut Subway Körfuboltakvöld kvenna var á dagskrá á Stöð 2 Sport í vikunni. Hörður Unnsteinsson lagði myndaþrautir fyrir sérfræðingana Berglindi Gunnarsdóttur og Ólöfu Helgu Pálsdóttur Woods. Körfubolti 13.1.2024 12:30
„Spilaði og spilaði og gat ekkert“ Erfitt var að sjá handbragð Snorra Steins Guðjónssonar á leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta í fyrsta leik liðsins á EM í gær. Margir leikmenn áttu erfiðan dag. Handbolti 13.1.2024 11:49
Búist við snjókomu og brjáluðu veðri þegar Bills taka á móti Steelers Veður gæti sett strik í reikninginn í tveimur leikjum NFL-deildarinnar um helgina. Búið er að senda út viðvörðun til stuðningsmanna vegna ofsaveðurs sem framundan er. Sport 13.1.2024 11:30
EM í dag: Síðast endaði Ísland á að vinna verðlaun Það er heldur betur farið að hitna í kolunum á EM karla í handbolta í Þýskalandi. Í öðrum þætti af EM í dag fóru Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson yfir fyrsta leikdag, stemninguna í München og geðsveiflurnar sem fylgdu jafnteflinu vði Serbíu. Handbolti 13.1.2024 11:01
Birkir Már tekur síðasta dansinn á Hlíðarenda Birkir Már Sævarsson mun leika með Val í Bestu deildinni næsta sumar. Birkir Már verður fertugur í nóvember en samningurinn er til eins árs. Fótbolti 13.1.2024 10:30
Jafntefli gegn Serbum í fyrsta leik gæti vitað á gott Ísland og Serbía gerðu jafntefli í fyrsta leik liðanna á Evrópumótinu í handknattleik í gær. Síðast þegar það gerðist náði Ísland sínum besta árangri á EM í sögunni. Handbolti 13.1.2024 10:00
Endurkomusigur Warriors og þreföld tvenna Jokic Klay Thompson og Steph Curry voru mennirnir á bakvið endurkomu Golden State Warriors gegn Chicago Bulls í nótt. Nikola Jokic skellti í þrefalda tvennu í heimasigri Denver Nuggets. Körfubolti 13.1.2024 09:31
Ekki bara leikur: Vonandi finnst þér ekki óþægilegt að ég sé að tala um eistun á mér Vísir birtir í dag lokaþáttinn af „Ekki bara leikur“ sem er þríleikur Björgvins Páls Gústavssonar landsliðsmarkvarðar um lífið sem leikmaður á stórmóti. Handbolti 13.1.2024 09:00
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn