Neytendur
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 24 ›
N1 Rafmagn biðst velvirðingar og endurgreiðir viðskiptavinum N1 Rafmagn hefur ákveðið að selja alla raforku á sama verðtaxta til heimila frá og með 1. janúar 2022, hvort sem viðskiptavinir hafi skráð sig sjálfir í viðskipti eða komið í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda. Neytendur 20.1.2022 18:20
Tryggingafélagið Vörður og Stofnfélagar Sjóvá almennt með lægsta verðið Tryggingafélagið Vörður var með lægsta tilboð í tryggingar í fimm tilfellum af sex samkvæmt nýrri verðkönnun Verðlagseftirlits ASÍ. Samkvæmt könnuninni var minni verðmunur á tilboðum tryggingafélagana innihéldu þau margar ólíkar tryggingar. Neytendur 20.1.2022 10:30
„Ef þú gerir ekki neitt þá ferðu á hæsta rafmagnsverð Íslandssögunnar“ Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar gagnrýnir harðlega að ekki sé virkt eftirlit með sölu á raforku í landinu og segir að svindlað sé á neytendum með núverandi fyrirkomulagi. Hún segir óvanalegt að ríkið geti ákveðið til lengri tíma við hvaða fyrirtæki fólk eigi í viðskiptum við og kallar eftir aukinni umræðu. Neytendur 19.1.2022 13:00
MAST innkallar ólöglegt hrökkbrauð Matvælastofnun hefur varað við neyslu hrökkbrauðs frá fyrirtækinu Sigdal Bakeri. Rotvarnarefnið ethyline oxide fannst í hráefni sem notað var við framleiðslu á hrökkbrauðinu. Ólöglegt er að nota efnið við matvælaframleiðslu í Evrópu. Neytendur 13.1.2022 17:21
Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“ Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar. Neytendur 11.1.2022 17:22
Íslendingar óðir í búbblurnar árið 2021 Sala á freyðivíni og kampavíni jókst um 17 prósent á milli ára á meðan sala dróst saman í flest öllum öðrum söluflokkum í Vínbúðinni. Mestur var samdrátturinn í sölu á rauðvíni, eða um 5,9 prósent. Neytendur 3.1.2022 15:56
Slær á fingur Costco vegna tilhögunar á endurnýjun aðildar viðskiptavina Neytendastofa hefur slegið á fingur Costco á Íslandi vegna tilhögunar og kynningar á endurnýjun viðskiptaaðildar hjá versluninni. Er hún talin villandi, ósanngjörn í garð neytenda og til þess fallin að hafa veruleg áhrif á fjárhagslega hagsmuni þeirra. Neytendur 1.1.2022 11:06
Ísey Skyr Bar laut í lægra haldi í deilu um uppskriftir og útlit umbúða og vara Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að útlit umbúða og vara Ísey Skyr Bar skorti nægilegt sérkenni til þess að fyrirtækið gæti notið einkaréttar á því. Neytendur 30.12.2021 14:42
Tappinn úr flöskunni og búbblurnar flæða um áramótin Eitthvað virðist áhugi landsmanna á því að sötra áfenga drykki úr Vínbúðinni vera minni í ár en í fyrra ef marka má sölutölur. Salan í desember í ár er um tíu prósentum minni árið 2021 en var í desember í fyrra. Áhuginn í freyði- og kampavíni er þó meiri í ár ef eitthvað er. Neytendur 30.12.2021 14:23
Þristamúsin fræga innkölluð Salathúsið ehf., framleiðandi þristamúsarinnar, sem kennd hefur verið við Simma Vill, hefur ákveðið að innkalla vöruna. Það er vegna vanmerkts ofnæmis- og óþolsvalds en varan inniheldur gerlisneyddar eggjarauður. Neytendur 26.12.2021 18:01
Húsfélag fær 36 milljónir vegna galla Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Lundi 2-6 í Kópavogi 36 milljónir vegna galla í þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum. Neytendur 20.12.2021 11:10
MAST minnir landsmenn á hreinlæti, kælingu og rétta hitun matvæla um jólin Matvælastofnun minnir landsmenn á að huga að hreinlæti, kælingu og réttri hitun matvæla um jólin til að koma í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum. Neytendur 20.12.2021 11:00
Grípa ekki til aðgerða vegna deilna um „Zolo“ Neytendastofa sér ekki ástæðu til að grípa til aðgerða vegna deilna um notkun á auðmenninu og vörumerkinu ZOLO. Kvörtun hafði borist stofnuninni frá Zolo og dætrum ehf. þar sem kvartað var yfir notkun City Bikes ehf á merkinu Zolo á rafhlaupahjólum sínum. Neytendur 20.12.2021 08:22
Allt að 50 til 100 prósenta verðmunur á jólasteikinni Mikill verðmunur er á jólasteikinni þetta árið og munur á hæsta og lægsta kílóverði hátíðarkjöts oft á milli 50 til 100 prósent. Neytendur 16.12.2021 22:40
Jóla-Tuborg í gleri innkallaður vegna glerbrots sem fannst Ölgerðin hefur ákveðið að innkalla Tuborg Julebryg í 330 ml glerflöskum vegna tilkynningar um að glerbrot hafi fundist í slíkri flösku. Neytendur 13.12.2021 17:26
Hvítölið og hefðbundið Jólaöl og appelsín snúa aftur næstu jól Nokkrar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum vegna ákvörðunar Ölgerðarinnar að hætta framleiðslu á Hvítöli en nú geta menn tekið gleði sína á ný þar sem fyrirtækið hefur ákveðið að bjóða bæði upp á Hvítöl og hefðbundið Jólaöl og appelsín á næsta ári. Neytendur 13.12.2021 12:36
Bjarni boðar nýtt álagningakerfi á græn ökutæki Fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að innleiða nýtt álagningarkerfi fyrir bifreiðar sem ekki væru drifnar áfram af jarðefnaeldsneyti. Fyrstu skrefin verði vonandi stigin á næsta eða þarnæsta ári. Ríkissjóður geti ekki verið án tekna af umferðinni til að standa undir viðhaldi og uppbyggingu innviða hennar. Neytendur 9.12.2021 13:18
Framlengja opnunartímann í tveimur verslunum til viðbótar Bónus hefur ákveðið að framlengja opnunartíma verslana sinna á Selfossi og Fitjum í Reykjanesbæ í takti við rýmri opnunartíma sjö verslana sem tilkynnt var um á dögunum. Neytendur 6.12.2021 14:25
Verðhækkanir hjá Domino's Verðhækkanir tóku gildi hjá flatbökurisanum Domino‘s um síðustu mánaðamót. Forstjórinn segir að um sé að ræða viðbrögð við ýmsum hækkunum á hráefnisverði og mikið hafi verið lagt upp úr því að halda verðbreytingum í hófi. Neytendur 3.12.2021 16:15
Gagnrýnir tilboð TM: „Vátryggingar eru ekki skyndivara“ Neytendastofa er nú með til skoðunar nokkrar tilkynningar vegna tilboðs tryggingafélagsins TM síðastliðinn mánudag. Formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda segir tilboðið hafa verið á skjön við neytendalög og gagnrýnir tryggingarfélögin fyrir ofurhátt verðlag. Neytendur 1.12.2021 13:00
Matvælaöryggi ekki tryggt við ísframleiðslu hjá Ketó kompaníinu og Pizzunni Ketókompaníið hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Ketóís frá Ketó Kompaníinu og ís frá Pizzunni. Matvælaöryggi viðkomandi vara var ekki tryggt á framleiðslustað. Neytendur 29.11.2021 13:22
Sætti sig ekki við fimmfalda ofrukkun og hafði betur Viðskiptavinur ferjuflutningafélagsins Smyril Line hafði betur gegn fyrirtækinu eftir að hann sætti sig ekki við að þurfa að borga fimmtíu þúsund krónur vegna farmbréfs. Smyril Line þarf að endurgreiða manninum fjörutíu þúsund krónur. Neytendur 27.11.2021 08:29
Ýmislegt sem ber að varast á tilboðsdögum: „Hægt að gera góð kaup en ekki eru öll kaup góð“ Verslanir víða um land tóku þátt í Svörtum föstudegi í dag. Formaður Neytendasamtakanna og stofnandi Vakandi segja mikilvægt að fólk sé á varðbergi á tilboðsdögum sem þessum fyrir mögulegu svindli og sé meðvitað um neyslu sína. Neytendur 26.11.2021 22:00
Ný staðsetning Vínbúðarinnar í miðbæ vekur hörð viðbrögð Búið er að velja nýja staðsetningu fyrir Vínbúðina í miðborg Reykjavíkur. Fiskislóð 10 eru eina staðsetningin sem kemur til greina miðað við auglýsingu. Neytendur 26.11.2021 14:58
Íslandsbanki hækkar einnig vexti Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum í kjölfar vaxtaákvörunar Seðlabanka Íslands þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósentustig. Stóru bankarnir þrír hafa því allir tilkynnt um vaxtahækkun. Neytendur 26.11.2021 13:02
Viss líkindi en ekki nóg til að neytendur ruglist Áfrýjunarnefnd Neytendastofu telur að ekki sé hætta á því að neytendur ruglist á vörum frá Sóma annars vegar og Jömm og Oatly hins vegar, þrátt fyrir að viss líkindi séu með útliti á merkingum á vörum framleiðendanna. Neytendur 26.11.2021 11:22
Arion banki hækkar vextina Arion banki hækkar breytilega vexti sína á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,40 prósentustig. Þetta gerir bankinn í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans þann 17. nóvember að hækka stýrivexti um 0,5 prósentur. Hækkunin tekur gildi á morgun. Neytendur 25.11.2021 14:31
Kalli Katrínar svarað með Svörtum fössara og Myrkum markaðsdögum Einn stærsti verslunardagur heims gengur í garð á morgun. Black Friday, eða Svartur fössari eins og hann er iðulega kallaður hér á landi, hefur fest sig rækilega í sessi meðal Íslendinga. Fjölmargar verslanir bjóða upp á afslætti í tilefni dagsins. Sumir taka þó ekki þátt vegna umhverfissjónarmiða. Neytendur 25.11.2021 13:00
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Neytendur 24.11.2021 17:25
Baguette með skinku og osti komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair Eftir þriggja ára hlé er baguette með skinku og osti loks komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair. Þreyttir ferðalangar geta því glaðst að nýju og notið þessa sívinsæla réttar þegar þeir eru á ferðalagi með flugfélaginu. Neytendur 24.11.2021 15:15