Innlent
225 226 227 228 229 230 231 232 233 … 334 ›
Vilja létta á leikskólum með því að bjóða börnum í skóla fimm ára Sjálfstæðisflokkurinn vill að börnum sé boðið að hefja skólagöngu sína fimm ára í Reykjavík í stað sex ára. Flokkurinn leggur fram á næsta borgarstjórnarfundi tillögu um tilraunaverkefni. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, vonast til þess að fimm skólar í það minnsta geti tekið þátt. Innlent 5.4.2024 09:31
Féð á þrotum og engin hlutdeildarlán í bili Hlutdeildarlánum verður úthlutað aftur í apríl en óvíst er hvenær opnað verður fyrir úthlutun. Mun fleiri umsóknir hafa borist undanfarið en gert var ráð fyrir og fjármagn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á þrotum. Innlent 5.4.2024 08:46
Vaktin: Dagurinn sem Katrín Jakobsdóttir bauð sig fram sem forseta Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún muni biðjast lausnar úr embættinu og gefa kost á sér í komandi kosningum til embættis forseta Íslands. Katrín tilkynnti ákvörðun sína með myndbandi á samfélagsmiðlum og ræddi svo við fjölmiðla. Innlent 5.4.2024 08:36
Halda áformum um framtíð MÍR til streitu eftir dóm Stjórn menningarfélagsins MÍR stefnir enn á að selja húsnæði félagsins og leggja niður starfsemi þess í núverandi mynd. Unnið er að undirbúningi nýs aðalfundar eftir að dómstóll ógilti ákvarðanir sem voru samþykktar á fundi sem hann taldi ekki löglega boðaðan. Innlent 5.4.2024 07:02
Kalla eftir aðkomu lögreglu og brunavarna vegna olíusöfnunar í Vík Heilbrigðisnefnd Suðurlands kallar eftir aðkomu sveitarfélagsins Mýrdalshrepps, brunavarna, heilbrigðiseftirlitsins og lögregla vegna olíusöfnunar í Vík. Innlent 5.4.2024 07:02
Óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum Það hefur verið óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum síðustu daga. Um páskana og fyrir páska snjóaði mikið og blés í hvössum norðaustanáttum með þeim afleiðingum að mikill snjór safnaðist til fjalla. Vindflekar hafa byggst upp í flestum viðhorfum og veikleikar þróast innan snjóþekjunnar. Innlent 4.4.2024 23:39
Telur Jón Gnarr geta verið kryptónít Katrínar Jón Gnarr gæti truflað ímynd Katrínar Jakobsdóttur í kosningabaráttu um embætti forseta Íslands, segir Andrés Jónsson almannatengill. Hann líkir Jóni við skáldaða efnið kryptónítið sem veikir ofurhetjuna Súperman. Innlent 4.4.2024 23:15
Fyrstu 757-þotu Íslendinga lagt eftir 33 ára þjónustu Fyrstu Boeing 757-þotunni sem Íslendingar eignuðust, TF-FIH, hefur núna verið lagt, eftir 33 ára þjónustu hjá Icelandair. Engin flugvélartegund hefur þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi. Innlent 4.4.2024 21:07
Göngumaðurinn fannst látinn Göngumaður sem björgunarsveitir frá Hvolsvelli og Hellu leituðu á Fimmvörðuhálsi fannst látinn í dag. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 4.4.2024 20:48
Framboðið hafi ekkert með Katrínu að gera Allt bendir til þess að Katrín Jakobsdóttir bjóði sig fram til forseta á morgun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem tilkynnti um forsetaframboð í dag, segir framboð sitt ekkert hafa með forsætisráðherra að gera. Innlent 4.4.2024 20:24
Ekkert Covid í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs Í fyrsta sinn frá því að Sýkla- og veirufræðideild tók við SARS-CoV 2 greiningum leið vika sem ekkert tilfelli kórónuveirunnar greindust, eða 28. febrúar 2020 þegar faraldurinn hófst á Íslandi. Í vikunni 25. til 31. mars greindust engin tilfelli. Innlent 4.4.2024 20:24
Landsmenn treysta fjármálaráðgjöf minnst allra Evrópuþjóða Íslendingar bera minnst traust allra íbúa Evrópu til fjármálaráðgjafar fjármálastofnanna. Þá er helmingur allra landsmanna neikvæður gagnvart fjármálakerfinu. Bankastjóri Arion banka telur að fjármálahrunið hafi enn þá áhrif. Hægt sé að snúa þessu við með góðum starfsháttum. Innlent 4.4.2024 20:01
Leggja til allt að níutíu milljónir í baráttunni við hjólreiðaþjófnað í Reykjavík Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hefur lagt til aðgerðir til að sporna við reiðhjólaþjófnaði. Áætlaður kostnaður aðgerðarinnar sem hópurinn leggur til er „gróft áætlaður“ 55 til níutíu milljónir króna. Innlent 4.4.2024 19:41
Eðlilegt að bankarnir taki þátt í að fjármagna gjaldeyrisforðann Seðlabankinn hefur skikkað viðskiptabankanna til að auka vaxtalausar innistæður sínar hjá Seðlabankanum til að auka traust á peningastefnunni. Þetta vinnur gegn tapi Seðlabankans vegna neikvæðs vaxtamunar á tekjum hans og gjöldum. Innlent 4.4.2024 19:30
Katrín hafi mátað sig við forsetann frá tilkynningu Guðna Andrés Jónsson almannatengill segir að samkvæmt sínum heimildum hafi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verið að íhuga framboð til forseta Íslands frá því á nýársdag, þegar Guðni Th. Jóhannesson forseti tilkynnti að hann byði sig ekki fram í þriðja sinn. Innlent 4.4.2024 18:46
Bjartsýn á að samningar náist Katrín Jakobsdóttir forætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fór fram í Hörpu í dag. Í ávarpi sínu segist hún vera bjartsýn á að hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hins opinbera muni fylgja á eftir og gera langtímakjarasamninga á borð við þá sem gerðir voru af aðilum á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins í mars. Innlent 4.4.2024 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allt bendir til þess að Katrín Jakobsdóttir bjóði sig fram til forseta á morgun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem tilkynnti um forsetaframboð í dag, segir framboð sitt ekkert hafa með forsætisráðherra að gera. Innlent 4.4.2024 18:13
Áhöfn þyrlunnar fann týndan mann á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag til að leita að týndum göngumanni á Fimmvörðuhálsi í dag. Sveitir frá Hvolsvelli og Hellu voru kallaðar út, auk annarra af Suðurlandi og stóð til að notast við hunda við leitina. Innlent 4.4.2024 17:04
Þarf að afhenda reikninga lögmannsstofunnar sem hefur malað gull Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið gert að afhenda Frigusi II, sem lengi hefur staðið í stappi við ríkið í Lindarhvolsmálinu svokallaða, reikninga frá lögmannsstofunni Íslögum án yfirstrikana. Frá ársbyrjun 2018 hefur ráðuneytið greitt stofunni áttatíu milljónir króna. Innlent 4.4.2024 17:00
Tveir gígar enn virkir Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há. Innlent 4.4.2024 16:52
Hera Björk segir að sér hafi verið gerðar upp skoðanir Hera Björk Þórhallsdóttir Eurovisionfari segir að sér hafi verið gerðar upp skoðanir í tengslum við viðtali sem hún átti við ísraelska Eurovision-miðilinn Euromix. Innlent 4.4.2024 16:01
Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði. Innlent 4.4.2024 16:01
„Þessi stjórn er ekki að fara að springa í dag“ Prófessor í stjórnmálafræði segir líkurnar á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bjóði sig ekki fram til forseta hverfandi. Eina sem gæti komið í veg fyrir það er ef ósætti er meðal ríkisstjórnarflokkanna um framboðið og möguleiki á að ríkisstjórnin springi. Innlent 4.4.2024 15:07
Steinunn Ólína stígur fram með formlegum hætti Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur nú stigið fram með formlegum hætti sem forsetaframbjóðandi. Hún segir mikið í húfi, það skipti máli hver gegnir embætti forseta landsins. Innlent 4.4.2024 14:04
Enn bólar ekkert á þjófunum og rannsókn í fullum gangi Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi sem fer fyrir rannsókn á stórtækum þjófnaði í Hamraborg, segir þjófana enn ófundna og að rannsókn málsins sé í fullum gangi. Innlent 4.4.2024 13:39
Andlát barnsins á Nýbýlavegi komið á borð ákærusviðs Andlát sex ára gamals drengs á Nýbýlavegi í Kópavogi í lok janúarmánaðar er komið á borð ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhald yfir móður drengsins, sem er grunuð um að hafa ráðið honum bana, var framlengt í gær. Innlent 4.4.2024 13:35
Segir mögulegt framboð Katrínar jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórn Þingmaður Pírata segir það jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina ef forsætisráðherra ákveður að fara í forsetaframboð. Hún segir það sýna mikið dómgreindarleysi að íhuga framboð sem forsætisráðherra og að ríkisstjórnin sé búin að gera skrípaleik úr því að stjórna landinu. Innlent 4.4.2024 12:57
Segir enga stjórnarkreppu í spilunum vegna framboðs Katrínar Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur gefur lítið fyrir orð Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda með að framboð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra muni leiða til stjórnarkreppu eða vanhæfis. Innlent 4.4.2024 12:18
Lögmaður Maríu Lilju segir engan fót fyrir ásökunum „lögmanns úti í bæ“ Lögmaður Maríu Lilju Þrastardóttur, annarrar forystukonu söfnunar fyrir brottflutning Palestínumanna af Gasa, segir ekkert til í þeim ásökunum sem bornar eru á hendur henni í kæru vegna söfnunarinnar. Kærandi er hæstaréttarlögmaður og faðir þingkonu Sjálfstæðisflokksins. Innlent 4.4.2024 12:17
Seðlabankinn dregur úr útlánagetu bankanna Ákvörðun Seðlabankans um að auka bindiskyldu bankanna dregur úr peningamagni í umferð og getu bankanna til útlána. Seðlabankinn setur aukna bindiskyldu í beint samhengi við kostnaðinn við að eiga mikinn gjaldeyrisforða. Innlent 4.4.2024 11:40