Innlent
220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
Vinstri græn ekki að gleypa eitraða pillu Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra og formaður VG segir ríkisstjórnarflokkana þrjá hafa sest niður um helgina, eftir að Katrín Jakobsdóttir tilkynnti framboð sitt til forseta, með það að markmiði að halda samstarfinu áfram. Innlent 9.4.2024 15:46
Framsókn geti ekki lengur falið sig á bak við „stóra bróður“ Formaður þingflokks Pírata fagnar því að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr fjármálaráðuneytinu með uppstokkun á ríkisstjórninni. Nú geti Framsóknarflokkurinn hins vegar ekki lengur falið sig á bak við að „stóri bróðir“ komi í veg fyrir að hann uppfylli kosningaloforð sín. Innlent 9.4.2024 15:40
Líst ekkert á blikuna Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir fráfarandi ríkisstjórn skilja eftir sig erfiða stöðu og að ekkert bendi til þess að ný ríkisstjórn geti leyst þau verkefni betur. Hún hefði viljað að frekar yrði boðað til kosninga í haust. Innlent 9.4.2024 15:17
„Þú lagar ekki ónýtan bíl með því að skipta um bílstjóra“ Þingmaður Viðreisnar segist enga trú hafa á því að nokkuð breytist hjá ríkisstjórninni með hrókeringum ráðherrastóla. Vandamálið hafi ekki verið hver sitji hvar heldur það hvernig ríkisstjórnarflokkunum þremur hefur illa tekist að ná saman málefnalega. Innlent 9.4.2024 15:12
Forsætisráðuneytið ekki helsta þrætueplið Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, segir spurninguna um það hver tæki við forsætisráðuneytinu ekki hafa verið það sem formenn ríkisstjórnarinnar ræddu helst þegar ný ríkisstjórn var mynduð. Innlent 9.4.2024 14:58
Ekki nægar ástæður til að afturkalla starfsleyfi Ísteka Matvælastofnun telur ekki nægar málsástæður til að afturkalla starfsleyfi Ísteka og mun starfsemi fyrirtækisins halda áfram á grundvelli leyfis sem gildir til októbermánaðar 2025. Innlent 9.4.2024 14:55
Skoðar að leggja fram vantraust á ríkisstjórnina Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, varð fyrir miklum vonbrigðum með nýja skipan ríkisstjórnarinnar. Hún vonast eftir kosningum og íhugar að að leggja fram vantraust á ríkisstjórnina í heild sinni. Innlent 9.4.2024 14:49
Nýr ráðherra þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, verðandi matvælaráðherra, þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar boðið kom um að taka við matvælaráðuneytinu. Hún þekki vel til málaflokksins og hokin af reynslu. Innlent 9.4.2024 14:48
Ætlar að virkja meira Bjarni Benediktsson, sem tekur við forsætisráðuneytinu í kvöld, segir að virkja þurfi meira til þess að nýta sjálfbæra orku betur. Innlent 9.4.2024 14:40
Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins verður næsti forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins tekur við sem fjármálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir verður innviðaráðherra. Innlent 9.4.2024 14:03
Byrja að kaupa fasteignir Grindvíkinga í vikunni Fasteignafélagið Þórkatlar byrjar að kaupa íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku. Stefnt er að því að klára afgreiðslu þorra á sjöunda hundrað umsókna sem hafa borist í þessum mánuði. Innlent 9.4.2024 14:01
Viðbrögð á samfélagsmiðlum: „Í hvaða trúðalýðræði lifum við?“ Netverjar hafa ekki setið á skoðunum sínum um væntanleg stólaskipti í ríkisstjórn landsins. Tíðinda er að vænta af viðræðum ríkisstjórnarflokkanna klukkan 14 en þá hefur verið boðað til blaðamannafundar í Hörpu. Innlent 9.4.2024 13:18
Fjórðungur kennara sér ekki framtíð í kennslu Stór hluti kennara sér ekki fyrir sér að starfa áfram innan skólasamfélagsins eftir fimm ár. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem er til umræðu á ráðstefnu Kennarasambandsins í dag. Innlent 9.4.2024 13:00
Bjarni leiðir og Bjarkey kemur ný inn Formenn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks kynntu nýja ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar í dag. Ráðherrastóladans verður dansaður á Bessastöðum í kvöld. Innlent 9.4.2024 12:26
Ný ríkisstjórn fær handbók um siðareglur í sængurgjöf Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra, sem samin var af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni og í samvinnu við ráðuneytið. Innlent 9.4.2024 12:22
Mælir með grænu ljósi á dánaraðstoð eftir erfiða reynslu Sundkappinn Anton McKee ritar áhrifaríkan pistil þar sem hann hvetur fólk til að styðja frumvarp um dánaraðstoð. Innlent 9.4.2024 12:01
Hafa nýtt tímann til að leysa ágreining VG og Sjálfstæðismanna Formaður Framsóknarflokksins segir viðræður forystumanna stjórnarflokkanna þriggja um helgina og í gær meðal annars hafa farið í að leysa ágreining sem hefur verið milli Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna. Ríkisstjórnarflokkarnir boða til blaðamannafundar klukkan 14 í Hörpu til að kynna áherslur nýs ráðuneytis. Innlent 9.4.2024 11:53
Ný ríkisstjórn í burðarliðnum Myndun nýrrar ríkisstjórnar verður fyrirferðarmesta málið í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Innlent 9.4.2024 11:40
Vilja Davíð, eiginkonu og bróður í tveggja vikna varðhald Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar í dag að fara fram á að þrír sakborningar í mansalsmáli tengdu veitingastöðunum Pho Vietnam og þrifafyrirtækinu Vy-þrif verði úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Þau hafa þegar setið inni í fimm vikur. Innlent 9.4.2024 11:32
Kennir ráðherrum siðareglurnar áður en hún hættir Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra. Handbókin var samin af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytisins og í samvinnu við ráðuneytið. Í handbókinni eru settar fram skýringar á siðareglum ráðherra ásamt raunhæfum dæmum um túlkun þeirra. Innlent 9.4.2024 11:03
Fjármálaráðherraflakkið minni á Tinder-sambönd Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir fólk vera í lengri samböndum á stefnumótaforritinu Tinder en í stól fjármálaráðherra. Hún fullyrðir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins verði þriðji fjármálaráðherrann á hálfu ári. Innlent 9.4.2024 10:56
Bein útsending: Skóli nútíðar — vegvísir til framtíðar Áherslur og afstaða kennara, stjórnenda og skólafólks til kennslu og skólastarfs verður í fyrirrúmi á ráðstefnu Kennarasambandsins sem fer fram í Hörpu í dag. Innlent 9.4.2024 09:00
Vaktin: Ný ríkisstjórn tekur við í kvöld Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson kynntu nýja ríkisstjórn og áherslumál hennar á blaðamannafundi í Hörpu í dag. Innlent 9.4.2024 08:40
Nokkrar klukkustundir í tilkynningu Líklegt er að ný ríkisstjórn verði kynnt eftir nokkrar klukkustundir, um hádegisbil. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður þingflokks, vildi ekki staðfesta það sem kemur fram í Morgunblaðinu um ráðherraskipti í Bítinu en sagði styttast í tilkynningu frá formönnum. Innlent 9.4.2024 08:38
Vill að verklag við varðveislu myndefnis á Hrauninu verði skoðað Umboðsmaður Alþingis hefur beint því til Fangelsisins á Litla-Hrauni að skoða hvort ástæða sé til að koma á formlegu verklagi um varðveislu efnis úr öryggismyndavélum. Innlent 9.4.2024 08:26
Óvissuástandi aflýst fyrir norðan og austan Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið aflýst á Austfjörðum og Norðurlandi. Innlent 9.4.2024 08:22
Flettu ofan af launamun kynja á Barnaspítalanum Þrír barnalæknar á Landspítalanum flettu ofan af kynbundnum launamun á Barnaspítalanum. Karllæknar hafi fengið fleiri viðbótarþætti metna til launa. Laun kvennanna hafa verið leiðrétt og þeim bættur skaðinn afturvirkt. Dæmi séu um að fleiri konur hafi fengið launaleiðréttingu. Innlent 9.4.2024 08:00
Saka formann fyrrverandi stjórnar um að eyðileggja MÍR Þrír félagar í íslensk-rússneska menningarfélaginu MÍR sem stefndu því fyrir dómi saka formann fyrrverandi stjórnar félagsins um að vinna að því að eyðileggja félagið og sóa fjármunum þess. Þeir sækjast eftir því að blása nýju lífi í starfsemina. Innlent 9.4.2024 07:00
Lýsing næturvarðar á árás bjórsala og foreldra hans skipti sköpum Maður var á dögunum sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan hótel um nótt árið 2021. Dómurinn frestaði ákvörðun um refsingu mannsins vegna ungs aldurs hans og hversu lengi það tók að fá niðurstöðu í það. Innlent 9.4.2024 07:00
Máttu ekki útiloka Jóhann úr landsliðinu ótímabundið Áfrýjunardómstóll ÍSÍ hefur komist að þeirri niðurstöðu að stjórn og landsliðsnefnd Landssambands hestamannafélaga hafi verið óheimilt að vísa Jóhanni Rúnari Skúlasyni úr landsliðinu í hestaíþróttum. Innlent 9.4.2024 06:49