Erlent
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 334 ›
Fjallagarpar fórust í íshruni Tveir fjallgöngumenn fórust og níu slösuðust þegar íshnullungar féllu úr fjalli ofan á þá í suðvestanverðu Sviss í dag. Meiriháttar björgunaraðgerð var sett af stað til að koma fólkinu til hjálpar. Erlent 28.5.2022 09:53
Tilvist illsku réttlæti ekki takmarkanir á byssueign Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sagði á samkomu hagsmunasamtaka skotvopnaeigenda í gær að harmleikurinn í Uvalde í vikunni eigi ekki að verða til þess að skotvopn verði tekin af löghlýðnum borgurum. Erlent 28.5.2022 08:56
Vaktin: Hópfjármögnuðu kaup á dróna fyrir Úkraínumenn Héraðsstjóri Luhanskhéraðs í Donbas sagði í gærkvöldi að Rússar myndu ekki ná stjórn á héraðinu á næstu dögum líkt og spáð hefur verið. Hins vegar gætu Úkraínumenn þurft að horfa frá borgunum Sievierodonets og Lysychansk. Rússum gengur vel í herferð sinni í Donbas-héruðunum. Erlent 28.5.2022 07:36
Framleiðendur segja tímasetningu ákæra óheppilega Framleiðendur kvikmyndar sem Kevin Spacey leikur í segja tímasetningu fjögurra ákæra, sem gefnar voru út á hendur leikaranum í gær, vera óheppilega. Erlent 27.5.2022 23:26
Örlög Depp og Heard í höndum kviðdóms eftir sjónvarpsviðburð aldarinnar Sex vikna réttarhöldum í meiðyrðamáli Johnny Depp og Amber Heard lauk í dag. Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli þar sem Depp virðist njóta mikils stuðnings en Heard, og ungu barni hennar, hefur verið hótað lífláti. Kviðdómur reyndi að komast að niðurstöðu í kvöld en mun koma saman aftur á þriðjudag. Erlent 27.5.2022 23:00
Segir börnin hafa grátbeðið um hjálp á meðan lögreglan beið fyrir utan Yfirmaður aðgerða lögreglu við grunnskóla í Texas þar sem nítján börn og tveir kennarar voru myrtir ákvað að aðhafast ekki neitt í tæplega fimmtíu mínútur á meðan árásarmaðurinn var inni í læstri skólastofu ásamt fórnarlömbum sínum. Erlent 27.5.2022 18:03
Byrja að ræða „hóflegar“ aðgerðir eftir fjöldamorðið Þverpólitískur hópur öldungadeildarþingmanna á Bandaríkjaþingi ætlar að skoða hvernig þingið geti brugðist við skotárásinni í Uvalde í Texas þar sem byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara. Slíkar viðræður hafa ítrekað farið út um þúfur í kjölfar fyrri fjöldamorða. Erlent 27.5.2022 15:13
Makaði blóði vinkonu sinnar á sig og þóttist vera dáin Ellefu ára stúlka sem lifði fjöldamorðið í Robb-grunnskólanum í Uvalde í Texas af makaði blóði úr vinkonu sinni á sig og þóttist vera dáin í tæpa klukkustund. Miah Cerrillo, sagði fréttakonu CNN frá upplifun sinni af ódæðinu og því hvernig árásarmaðurinn myrti kennara hennar og vini. Erlent 27.5.2022 13:45
Telja sig hafa fundið elsta tré í heimi í Síle Patagoníugrátviður sem hópur vísindamanna hefur rannsakað í sunnanverðu Síle gæti verið meira en fimm þúsund ára gamall. Sé það rétt er tréð það elsta sem vitað er um á jörðinni. Erlent 27.5.2022 13:37
Segja Rússa vera að fremja þjóðarmorð á Úkraínumönnum Næg sönnunargögn liggja fyrir til að draga þá ályktun að Rússar séu að fremja þjóðarmorð í Úkraínu, segja þrjátíu lögspekingar og sérfræðingar í þjóðarmorðum. Erlent 27.5.2022 12:54
Vilja ekki nýtt kalt stríð við Kínverja Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkjamenn ekki vilja nýtt kalt stríð við Kína og þeir muni ekki standa í vegi aukins hagvaxtar ríkisins. Þetta sagði Blinken í ræðu sem hann flutti í gær um afstöðu Bandaríkjanna gagnvart Kína og sagði hann að þó stríðið í Úkraínu væri stærsta ógn við stöðugleika í heiminum til skamms tíma, stafaði Bandaríkjunum meiri ógn af Kína. Erlent 27.5.2022 11:42
Strunsaði út úr viðtali þegar hann var spurður um landlægar skotárásir í Bandaríkjunum Öldungadeildarþingmaður Texas gekk út úr viðtali við Sky News-sjónvarpsstöðina bresku þegar hann annað hvort gat ekki eða vildi ekki svara hvers vegna meiriháttar skotárásir eiga sér aðeins stað í Bandaríkjunum. Erlent 27.5.2022 11:12
Ákæra ekki lögreglumenn sem klúðruðu máli Nassar Bandaríska dómsmálaráðuneytið ætlar ekki að ákæra alríkislögreglumenn sem eru sakaðir um að hafa klúðrað rannsókn á stórfelldum kynferðisbrotum fyrrverandi læknis bandaríska fimleikalandsliðsins. Erlent 27.5.2022 10:22
Óttast vaxandi fordóma fyrir samkynhneigðum vegna apabólu Samtök hinsegin fólks á Spáni óttast að faraldur apabólu í Evrópu leiði til aukinnar andúðar á samkynhneigðum vegna vanþekkingar fólks á sjúkdóminum. Stærstu gleðigöngu Evrópu verða gengnar á næstu vikum. Erlent 27.5.2022 08:44
Mikil reiði blossað upp eftir að svartur maður kafnaði í lögreglubíl Mikil reiði hefur blossað upp í Brasilíu eftir að maður lést í haldi lögreglu í borginni Umbaúba í norðausturhluta landsins. Erlent 27.5.2022 08:24
Vaktin: Segir Rússa hafa komist hjá flestum þvingunaraðgerðum Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda langdræg vopn til Úkraínu en segjast á sama tíma óttast stigmögnun átaka og hafa átt samtöl við Úkraínumenn um hættuna af því að gera árásir á skotmörk langt inni í Rússlandi. Erlent 27.5.2022 06:41
Líklegt að Bandaríkin verði við heitustu vopnaósk Úkraínumanna Ríkisstjórn Joe Biden Bandaríkjaforseta er talin mjög líkleg til að verða við óskum úkraínskra yfirvalda um að senda háþróuð langdræg eldflaugakerfi til Úkraínu. Á sama tíma hafa bandarískir embættismenn rætt við úkraínska kollega sína um hvaða hættur fylgi því að gera árásir á rússnesk landsvæði. Erlent 26.5.2022 23:31
Segir eiginmann annars kennarans hafa látist úr sorg Joe Garcia, eiginmaður Irmu Garcia, annars kennarans sem lést í skotárásinni í Texas, er látinn úr hjartaáfalli. Fjölskyldumeðlimur segir hann hafa látist úr sorg. Erlent 26.5.2022 21:41
Snarari viðbrögð hefðu getað bjargað lífum barna Faðir tíu ára stúlku sem lést í skotárásinni í skóla í Uvalde í Texas í Bandaríkjunum í fyrradag segir lögreglu ekki hafa brugðist nógu hratt við. Snarari viðbrögð hefðu getað bjargað lífum barna. Erlent 26.5.2022 21:01
„Hérna erum við enn eina ferðina, annar sorgardagur í sögu þjóðarinnar“ Skotárásin í Robb-grunnskólanum í Texas í Bandaríkjunum í vikunni var ofarlega í huga helstu spjallþáttastjórnenda Bandaríkjanna í þáttum þeirra eftir árásina mannskæðu. Erlent 26.5.2022 20:14
Forseti Alþjóðabankans óttast heimskreppu David Malpass, forseti Alþjóðabankans, telur heimskreppu yfirvofandi og að fátt geti komið í veg fyrir að svo fari. Erlent 26.5.2022 15:13
Spacey ákærður fyrir kynferðisbrot á ný Saksóknari í Bretlandi hefur gefið út fjórar ákærur á hendur leikaranum Kevin Spacey. Í kjölfar #MeToo byltingarinnar steig mikill fjöldi karlmanna fram og sakaði leikarann um að hafa brotið á sér kynferðislega. Erlent 26.5.2022 15:07
Foreldrar reyndu sjálfir að bjarga börnum sínum Árásarmaðurinn sem myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í fyrradag sendi skilaboð á Facebook um að hann ætlaði að fremja skotárás í grunnskóla um fimmtán mínútum áður en hann lét til skarar skríða. Lögreglan í Uvalde hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi. Erlent 26.5.2022 10:57
Ellefu nýburar fórust í eldsvoða Ellefu nýfædd börn létu lífið í eldsvoða á spítala í senegölsku borginni Tivaouane í nótt. Ekki er vitað hver upptök eldsins voru. Erlent 26.5.2022 08:59
Vaktin: Lavrov sendir viðvörun vegna vopnasendinga vestrænna ríkja Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands, segir að það sé hættulegra að láta undan kröfum Pútíns en að ögra honum. Erlent 26.5.2022 07:47
Sauð upp úr þegar keppinauturinn mætti óvænt og sakaði ríkisstjórann um aðgerðarleysi Mönnum varð heitt í hamsi á blaðamannafundi Greg Abbott, ríkisstjóra Texas, um skotárásina mannskæðu sem varð í ríkinu í gær, þegar Beto O'Rourke, frambjóðandi demókrata til ríkisstjóra í Texas, nýtti tækifærið og gagnrýndi Abbott harkalega fyrir stefnu hans hvað varðar skotvopn. Erlent 25.5.2022 23:32
Skaut ömmu sína, keyrði í skólann og lokaði börnin inni í stofu Öryggisgæsla hefur verið hert í skólum víða í Bandaríkjunum eftir að ungur maður vopnaður rifflum myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í gær. Fjölmargir kalla eftir hertri skotvopnalöggjöf en árásin er sú mannskæðasta í skóla þar í landi í áratug. Erlent 25.5.2022 20:57
Johnson sagður hafa skapað menningu fyrir því að brjóta reglur Nokkur teiti sem voru haldin á stjórnarskrifum og brutu sóttvarnareglur vegna kórónuveirufaraldursins voru afleiðing af menningu þar sem vanvirðing fyrir reglum þótti sjálfsögð sem Boris Johnson, forsætisráðherra, og aðrir háttsettir embættismenn sköpuðu. Erlent 25.5.2022 14:01
Ólíklegt að skotárásin leiði til breytinga Á meðan Repúblikanar geta tafið mál í bandaríska þinginu og komið í veg fyrir framgang þeirra eru ólíklegt að breytingar verði á skotvopnalöggjöf þar í landi að mati alþjóðastjórnmálafræðings. Skotárásin á barnaskóla í bænum Uvalde í suðurhluta Texas í gær hefur vakið hörð viðbrögð. Fjöldi fólks hefur kallað eftir strangari skotvopnalöggjöf í landinu. Erlent 25.5.2022 13:30
Misst fjögur börn úr vannæringu og komin á spítala með það fimmta Líklegt er að 1,1 milljón barna í Afganistan undir fimm ára aldri muni þjást af hættulegustu tegund vannæringar á þessu ári, að mati Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða tvöföldun frá árinu 2018 en fjöldinn stóð rétt undir milljón barna á seinasta ári. Erlent 25.5.2022 12:01