Fréttir
96 97 98 99 100 101 102 103 104 … 334 ›
Hrókera í nefndum Alþingis Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mun taka við formennsku í fjárlaganefnd þingsins og Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, í utanríkismálanefnd. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður nýr formaður efnahags og viðskiptanefndar. Innlent 11.9.2024 11:36
Baráttan um Bandaríkin: Sögulegar kappræður gerðar upp Kamala Harris og Donald Trump mættust í gærkvöldi í sínum fyrstu, og mögulega einu, kappræðum fyrir forsetakosningarnar 5. nóvember næstkomandi. Kappræðurnar verða krufnar til mergjar í Baráttan um Bandaríkin í beinni útsendingu á Vísi klukkan 13. Erlent 11.9.2024 11:34
Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands ræða nú við forseta Úkraínu um notkun langdrægra flugskeyta til þess að verjast árásum Rússa sem Úkraínumenn hafa kallað eftir. Biden Bandaríkjaforseti segir unnið að því að veita heimildina. Erlent 11.9.2024 10:27
Einstæð tveggja barna mamma fái alls ekki 421 þúsund krónur Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gerir grein starfsmanns Sjálfstæðisflokksins, Kristófers Más Maronssonar á Vísi, að umfjöllunarefni í pistli á Facebook. Hann segir þar hverja rangfærsluna reka aðra en víst er að margir ráku upp stór augu þegar þeir virtu fyrir sér útreikninga Kristófers Más. Villa í reiknivél Tryggingastofnunar virðist leika lykilhlutverk. Innlent 11.9.2024 10:13
Fólk kveiki á kerti til minningar um Bryndísi Klöru Anna Björt Sigurðardóttir hvetur landsmenn til að kveikja á friðarkerti á föstudag til að minnast Bryndísar Klöru Birgisdóttur. Útför Bryndísar Klöru fer fram á föstudag. Anna Björt hefur haft samband við allar stærstu matvöruverslanir landsins sem munu í dag hefja sölu á sérstöku friðarkerti. Allur ágóði af sölu kertisins rennur óskiptur í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Innlent 11.9.2024 10:09
Vill halda Borgarspítalanum opnum þegar að nýi spítalinn opnar Jón Magnús Kristjánsson, bráðalæknir og fyrrverandi yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala, vill að hætt verði við að loka spítalanum í Fossvogi þegar Nýi-Landspítalinn opnar við Hringbraut. Spítalinn verði aftur að Borgarspítala og aðgengilegur til dæmis heimilislæknum sem þurfi að vísa sjúklingum í bráða innlögn á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 11.9.2024 09:09
Krefjast þess að Ísraelsher bæti ráð sitt eftir dráp á Bandaríkjamanni Utanríkis- og varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna kröfðust þess að Ísraelsher breytti starfsháttum sínum á Vesturbakkanum eftir að hermenn skutu bandaríska konu til bana á mótmælum þar í síðustu viku. Ísraelsmenn segja að um óhapp hafi verið að ræða. Erlent 11.9.2024 08:45
Brú yfir Saxelfi hrundi í Dresden Carola-brúin yfir Saxelfi (þ. Elbe) hrundi í borginni Dresden í Þýskalandi í snemma í morgun. Erlent 11.9.2024 08:44
Norðanáttum beint til landsins Lægðasvæði milli Íslands og Noregs og hæð yfir Grænlandi beinir nú norðanáttum yfir landið og verða þær allhvassar austantil, en má reikna með hvassviðri og sums staðar stormi suðaustanlands. Mun hægari vindur verður vestantil. Veður 11.9.2024 07:25
Fær engar upplýsingar um lögreglumál sonar síns Fjölskylda fjölfatlaðs manns sem slasast hefur í tvígang í umsjá starfsmanna sambýlisins að Hólmasundi gagnrýnir harðlega skort á upplýsingagjöf af hálfu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Seinna slysið hefur verið tilkynnt til lögreglu. Fjölskyldan hefur leitað aðstoðar lögfræðings og hyggst leita réttar síns. Hún gagnrýnir einnig eftirlitsleysi með starfsemi sambýla sem rekin eru af Reykjavíkurborg. Innlent 11.9.2024 06:46
Fundu eggvopn, skotfæri og hnúajárn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu réðst í húsleit síðdegis í gær þar sem meðal annars var lagt hald á eggvopn, rafbyssu, skotfæri og hnúajárn. Innlent 11.9.2024 06:35
Segir ákvörðun ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari og Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari eiga eftir að ræða saman eftir að dómsmálaráðherra gerði kunnugt um að verða ekki við ósk Sigríðar um að víkja Helga Magnúsi frá störfum. Hún segir niðurstöðu ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ríkissaksóknari. Innlent 11.9.2024 06:24
Trump í mikilli vörn en lýsir yfir sigri Donald Trump varði nánast öllum kappræðunum í nótt í að verjast Kamölu Harris. Eitt hennar helsta markmið í aðdraganda kappræðanna var, samkvæmt ráðgjöfum hennar, að koma Trump úr jafnvægi og er óhætt að segja að það hafi tekist. Erlent 11.9.2024 04:13
1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bandaríski rapparinn Sean „Diddy“ Combs var í dag dæmdur til þess að greiða meintum brotaþola 100 milljónir dala, um 1,4 milljarða króna, vegna kynferðisbrots fyrir 27 árum síðan. Erlent 11.9.2024 00:02
„Þetta er allt að koma...eftir sjö ár“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki ýkja hrifin af fjárlagafrumvarpinu sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í dag undir yfirskriftinni „Þetta er allt að koma“. „Þetta er allt að koma...eftir sjö ár,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins. Innlent 10.9.2024 23:16
Bein útsending: Harris og Trump takast á í fyrsta sinn Þau Donald Trump og Kamala Harris takast á í kappræðum í fyrsta sinn í kvöld. Mikið er undir í kappræðunum þar sem kannanir gefa til kynna að frambjóðendurnir séu hnífjafnir, bæði á landsvísu og í sjö mikilvægustu ríkjunum. Erlent 10.9.2024 23:00
Sveik 1,3 milljarða úr streymisveitum með gervispilunum Karlmaður í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir stórfelld fjársvik sem fólust í því að framleiða urmul laga með hjálp gervigreindar og nýta vélmenni til að falsa spilanir á streymisveitum. Með þessum hætti fékk hann greidd höfundalaun sem námu hátt í 1,3 milljörðum króna. Erlent 10.9.2024 22:00
Myndband af Airbus-þotu Icelandair koma úr málun Fyrsta Airbus-þotan, sem Icelandair mun taka við, kom út af málningarverkstæði Airbus í Hamborg í gærkvöldi. Þotan er af gerðinni Airbus A321 LR og fær skráningarstafina TF-IAA. Innlent 10.9.2024 20:55
Trump verði áfram Trump en meira í húfi fyrir Harris Mikil eftirvænting ríkir fyrir fyrstu, og mögulega einu, kappræðunum á milli forsetaframbjóðendanna Donalds Trump og Kamölu Harris sem verður sjónvarpað frá Pennsylvaníu í nótt. Það er meira í húfi fyrir Harris en Trump að mati sérfræðings, þótt Trump sé minna spenntur fyrir að mæta Harris en hann var fyrir að mæta Biden. Erlent 10.9.2024 20:02
Hvatti þingmenn til málamiðlana og samninga Forseti Íslands segir skipta miklu að stjórnmálaflokkar geti þrátt fyrir ólík sjónarmið og kapp um hylli kjósenda gefið eftir og náð sameiginlegri lendingu í þágu þjóðarinnar. Lýðræðið krefðist málamiðlana. Innlent 10.9.2024 19:40
„Það þarf neyðaraðgerðir við þessu neyðarástandi“ Mótmæli Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasambands Íslands (KÍ) fóru fram í dag. Fólk lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir vind, kulda og að mótmælin hafi verið boðuð með stuttum fyrirvara, fjölmennti á Austurvöll og lét vel í sér heyra. Innlent 10.9.2024 19:33
Ríkisútgjöld aukast um tugi milljarða á næsta ári Útgjöld ríkisins aukast um 55 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta. Innlent 10.9.2024 19:21
Niðurstaðan í máli Helga Magnúsar „á brúninni“ Ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja vararíkissaksóknara ekki úr starfi þrátt fyrir hegðun hans var á „brúninni“ að mati sérfræðings í vinnurétti. Ómögulegt sé að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunni fyrir opinbera starfsmenn almennt. Innlent 10.9.2024 19:02
Mótmælt við þingsetningu, hávaði og afdrifaríkar kappræður Síðasti þingvetur kjörtímabilsins hófst formlega í dag þegar Alþingi var sett og fjárlagafrumvarp lagt fram. Mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli og stjórnarandstaðan gagnrýnir útgjaldavöxt í verðbólgu. Innlent 10.9.2024 18:28
Bréf sálfræðings dugði ekki til að Erni yrði gert að víkja Brotaþoli hnífaárásar í Vesturbæ Reykjavíkur krafðist þess að Erni Geirdal Steinólfssyni, sem ákærður er fyrir manndrápstilraun í málinu, yrði gert að víkja úr dómsal á meðan hann gæfi skýrslu. Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem beiðni brotaþola er hafnað. Innlent 10.9.2024 17:59
Bein útsending: Krefjast aðgerða fyrir heimilin strax Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli klukkan 16. Á sama tíma hefst fyrsti þingfundur vetrarins. Streymt verður frá mótmælunum á Vísi. Innlent 10.9.2024 15:35
Spara plastið og hvetja fólk til að sækja ekki um ökuskírteini Nokkurra mánaða bið er eftir að fá nýtt ökuskírteini úr plasti afhent og Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til þess að nota stafrænt ökuskírteini frekar. Ökuskírteinaframleiðsla er að flytjast heim og fyrst um sinn eru plastbirgðir takmarkaðar en skírteini verða framleidd í neyðartilfellum. Innlent 10.9.2024 15:02
„Litla þjóð sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast“ Setning þingsins var að þessu sinni söguleg. Guðrún Karls Helgudóttir tók við embætti biskups Íslands nýverið og kom að hinni kirkjulegu athöfn. Og Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti landsins, ávarpaði þingið fyrsta sinni og kom hún víða við í ræðu sinni. Innlent 10.9.2024 14:53
Grunaður um hnífaárás eftir strok frá Stuðlum Einn þeirra þriggja sem handtekinn var í póstnúmeri 108 í Reykjavík í nótt í tengslum við hnífstunguárás skömmu áður var í stroki frá Stuðlum. Hann hefur verið vistaður aftur á meðferðarheimilinu. Innlent 10.9.2024 14:42
Vilja losna við einkaþotur og þyrlur af Reykjavíkurflugvelli Félagar í samtökunum Hljóðmörk - Íbúasamtök gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli krefjast þess að óþarfa flug hverfi frá Reykjavíkurflugvelli. Að baki samtökunum standa íbúar úr Hlíðum, Vesturbæ Reykjavíkur og Kársnesi. Samtökin vilja einnig fá aðild að opinberum nefndum og samráðshópum um stefnumótun flugvallarins. Innlent 10.9.2024 14:33