Fréttir
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 334 ›
Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. Innlent 3.11.2024 18:13
Maðurinn kominn upp úr fljótinu Maður féll út í Tungufljót í Árnessýslu skammt frá Geysi síðdegis. Lögreglan á Suðurlandi var með töluverðan viðbúnað, straumvatnsbjörgunarmenn voru sendir á vettvang og þyrla landhelgisgæslunnar var ræst út. Innlent 3.11.2024 16:59
Segir Bjarna ekki hafa ruglast og Pawel fari sjálfur með rangt mál Pawel Bartoszek segir Bjarna Benediktsson hafa ruglast þegar hann sagði ágreining milli Kópavogs og Reykjavíkur um vaxtamörk. Ágreiningurinn væri í raun milli Kópavogs og Garðabæjar. Hildur Björnsdóttir andmælir Pawel og segir fulltrúa meirihlutans víst hafa skotið niður áform utan vaxtarmarka. Innlent 3.11.2024 16:32
Risa vatnsrennibraut keypt í Þorlákshöfn fyrir 150 milljónir Ein glæsilegasta og hæsta vatnsrennibraut landsins verður í sundlauginni í Þorlákshöfn en Sveitarfélagið Ölfus hefur fjárfest í tveimur braut fyrir 150 milljónir króna, sem verða settar saman í eina. Stigahúsið upp í brautina verður tólf metra hátt. Innlent 3.11.2024 16:04
Þrír frambjóðendur detta út Þrír frambjóðendur Sósíalistaflokks í Suður- og Suðvesturkjördæmi voru felldir af listunum tveimur vegna ólögmætra undirskrifta á úrskurðarfundi landskjörstjórnar í dag. Hinir listarnir 59 voru samþykktir án athugasemda. Innlent 3.11.2024 15:57
Grýttu drullu í Spánarkonung Mótmælendur réðust að Filippusi Spánarkonungi þegar hann heimsótti Valensíahérað eftir manskæð flóð sem gengu yfir í síðustu viku. Erlent 3.11.2024 14:01
Bein útsending: Landskjörstjórn tilkynnir um gild framboð Úrskurðarfundur landskjörstjórnar um gildi framboða í kosningunum til Alþingis fer fram í Þjóðminjasafninu í dag klukkan þrjú. Fundinum verður streymt á Vísi. Innlent 3.11.2024 14:01
Læknar fresta verkfalli Læknafélag Íslands hefur tilkynnt læknum að það muni boða til nýs verkfalls með þeim hætti sem ríkið telur að sé löglegur. Hver vinnustaður lækna kjósi um verkföllin og þau muni ná til Landspítalans alls. Félagið ætlar því ekki að láta málið fara fyrir Félagsdóm af ótta við að niðurstaðan muni seinka verkfallinu fram í desember. Innlent 3.11.2024 13:35
Skyggnst inn í hugarheim stuðningsmanna Trump „Takk fyrir að bjarga lífi mínu!“ segir vinalegur maður á sextugsaldri um leið og hann skýst inn í hótel-lyftuna á leið niður í móttökuna. Hetjudáðin sem ég afrekaði var að troða fætinum á milli hurðanna þegar þær voru í þann mund að lokast svo maðurinn kæmist með. Erlent 3.11.2024 12:16
Ekki ákveðið hvort fleiri fari í verkfall Ekki er búið að boða til nýs fundar í kjaradeilu Kennarasambandsins við ríki og sveitarfélög. Formaður Kennarasambandsins segir síðasta fund hafa gengið vel en það virðist enn vera langt í samninga. Innlent 3.11.2024 12:10
Hundur brann inni í Fossvogi og ótrúlegt afrek sundkappa Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í raðhúsi í Fossvogi í nótt. Tveir íbúar í húsinu komust út af sjálfsdáðum en hundur heimilisins komst ekki lífs af. Altjón varð á íbúðinni, að sögn lögreglu. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Innlent 3.11.2024 11:56
„Þetta hefur verið ströng og erfið nótt“ Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í raðhúsi í Fossvogi í nótt. Tveir íbúar í húsinu komust út af sjálfsdáðum en hundur heimilisins komst ekki lífs af. Innlent 3.11.2024 10:58
Óvænt forskot Harris í Iowa sætir tíðindum Spennan magnast fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á þriðjudag. Ný skoðanakönnun á fylgi frambjóðendanna í Iowa hefur vakið athygli; niðurstöður hennar benda til þess að Kamala Harris sé þar með þriggja stiga forskot á Donald Trump. Erlent 3.11.2024 10:40
Bandarískar kosningar, svikalogn og stjórnmálaslagur Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. Innlent 3.11.2024 09:52
Rigning eða súld um mest allt land Það verður suðaustanátt í dag, víða tíu til átján metrar á sekúndu, hvassast norðvestanlands. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar. Veður 3.11.2024 09:40
Stóð ógn af kærastanum en óforsvaranlegt að stinga hann Kona hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness vegna stunguárásar sem var framin á heimili hennar í Mosfellsbæ um nótt í aprílmánuði 2021. Innlent 3.11.2024 09:30
Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár opin umferð Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hefur verið opnuð umferð. Brúin er við Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks og var hún tengd við stígakerfi Elliðaárdals með malbiki fyrir helgi. Innlent 3.11.2024 09:15
Komust úr brennandi íbúðarhúsi af sjálfsdáðum Tveir einstaklingar komust út af sjálfsdáðum eftir að eldur kom upp í íbúðarhúsnæði í Fossvoginum. Það gerðu þessir tveir áður en slökkvilið kom á vettvang. Innlent 3.11.2024 07:23
Vekja athygli á bágri stöðu nepalskra kvenna með fjallgöngu Hópur íslenskra og nepalskra fjallgöngukvenna gengu á dögunum upp á tindinn Lobuche í Himalayafjöllum til að vekja athygli á stöðu kvenna í Nepal og í fjallgöngugeiranum. Lobuche er rúmlega sex þúsund metra hár. Innlent 2.11.2024 23:37
Skoða að leyfa fólki að hirða muni sem á að farga Sorpa segist vera tilbúin að skoða nýjar leiðir til að gera fólki kleift að taka við ónothæfum hlutum sem berast með nytjagámum sem á að farga. Þróunarstjóri segir það geta verið hættulegt þegar fólk reynir að bjarga hlutum frá förgun á endurvinnslustöðum. Innlent 2.11.2024 23:01
Hefja bólusetningar við lömunarveiki á ný Bólusetningar við lömunarveiki hófust á ný í Norðurhluta Gasa í morgun eftir að seinkun varð á vegna aukinna árása Ísraelshers í október. Stefnt er á að bólusetja á annað hundrað þúsund barna við sjúkdómnum. Erlent 2.11.2024 22:25
Sigurður hafi mögulega fengið sig fullsaddan Eldræða formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál hefur vakið mikla athygli. Formaður hjálparsamtaka segir ekkert við framferði hans gefa til kynna að flokkurinn standi fyrir mannúð en stjórnmálafræðingur telur formanninn mögulega hafa fengið sig fullsaddan af andúð annarra flokka. Innlent 2.11.2024 21:02
Sendir tíu þúsund manna herlið til Valensía Tugþúsundir sjálfboðaliða hafa farið inn á hamfarasvæðin í Valensíahéraði á Spáni til aðstoðar vegna hamfaraflóða sem gengu þar yfir í byrjun vikunnar. Erlent 2.11.2024 20:15
Brauðtertur til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar Brauðtertur með skinkusalati, mútur og brjálaðir verkfræðingar voru meðal annars til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar, sem fór fram á Selfossi. Innlent 2.11.2024 20:06
Sjúkratryggingar sektaðar um 40 milljónir: „Hér er verið að mismuna fyrirtækjum“ Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða 41 milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Framkvæmdastjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 19:02
Fjörutíu milljóna sekt Sjúkratrygginga og hrekkjavökupartí aldarinnar Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða fjörutíu og eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Forstjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 18:19
Litlaus regnbogi yfir borginni í dag Óalgeng tegund regnboga gnæfði yfir Reykjavík í dag en regnboginn var nærri alveg litlaus. Innlent 2.11.2024 18:02
„Auðvitað er ég að vísa í þá flokka sem stjórna hjá borginni“ Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins, segir ríkisstjórnarflokkana ekki bera höfuðábyrgð á stöðu verðbólgunnar heldur þá sem hafa verið við stjórn í Reykjavíkurborg. Húsnæðisskortur sé rót verðbólguvandans og verði ekki leystur nema með því að brjóta nýtt land. Innlent 2.11.2024 17:22
Ostaþjófnaður skekur heim matgæðinga: „Hver vill svona mikinn ost?“ Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú þjófnað á 22 tonnum af osti frá mjólkurbúinu Neal’s Yard Dairy. Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið handtekinn, en hann er grunaður um að villa á sér heimildir til að koma höndum sínum yfir ostinn. Erlent 2.11.2024 16:02
„Margt að óttast“ en ameríski draumurinn lifir „Ég er bara komin með nóg af þessu,“ svarar ung kona á bak við afgreiðsluborðið á veitingastað nærri hótelinu mínu, þegar ég spyr hvers vegna hún ætlar ekki að kjósa. Erlent 2.11.2024 15:03