Fréttir
147 148 149 150 151 152 153 154 155 … 334 ›
Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, segir það skyldu stjórnvalda í Tehran að hefna drápsins á Ismail Haniyeh, pólitískum leiðtoga Hamas. Ísrael hafi lagt grundvöll að „harkalegum refsiaðgerðum“ með því að drepa Haniyeh. Erlent 31.7.2024 10:21
Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Breskur þingmaður segir „óþokka“ bera ábyrgð á uppþotunum sem 39 lögreglumenn slösuðust í eftir minningarstund um barnung fórnarlömb hnífaárásarinnar í Southport í gær. Múrsteinum var meðal annars kastað í lögreglumenn og kveikt í lögreglubíl. Erlent 31.7.2024 08:45
Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann ítrekar meðal annars að Grindavík sé ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Innlent 31.7.2024 08:40
Viðvaranir í gildi og vindasamt og blautt framundan Gular viðvaranir vegna hvassviðris tóku gildi við Breiðafjörð í nótt og við Faxaflóa og á Suðurlandi í morgun. Reikna má með vindasömu og blautu veðri en nokkuð hlýju næstu daga. Veður 31.7.2024 07:57
Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja dóu í heimavistarskólum í Bandaríkjunum sem reknir voru af yfirvöldum eða trúarstofnunum. Markmiðið með vistun barnanna var að aðlaga þau hvítu samfélagi. Erlent 31.7.2024 07:52
Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegt forsetaefni Demókrataflokksins, mun halda fyrsta kosningafundinn með varaforsetaefni sínu í Philadelphiu í Pennsylvaníu á þriðjudaginn í næstu viku. Erlent 31.7.2024 07:11
Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Áhyggjur af stigmögnun átaka í tengslum við stríð Ísrael gegn Hamas fara nú vaxandi eftir að fregnir bárust af því að Ismail Haniyeh, pólitískur leiðtogi samtakanna, hefði verið ráðinn af dögum í Íran. Erlent 31.7.2024 06:46
Rúður brotnar í Rimaskóla Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um brothljóð frá Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að fjöldi rúða í skólanum hafði verið brotinn og einhverju tjónið valdið inni í skólanum. Innlent 31.7.2024 06:42
Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ „Ef þeir sem völdin hafa fara ekki að átta sig á skaðanum sem allt cancel culture og vók hyskið er að valda í kringum sig verður að lokum ofbeldi eina svarið,“ segir Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, á Facebook í gærkvöldi. Innlent 31.7.2024 06:22
Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Aurskriður sem féllu í Kerala-fylki í Suðurhluta Indlands í morgun urðu minnst 123 að bana. Hundrað til viðbótar er enn saknað og óttast er að tala látinna hækki enn fremur. Erlent 30.7.2024 23:38
Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Klukkan 21:11 í kvöld varð skjálfti á Reykjanestá að stærð 3. Nokkrir minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Innlent 30.7.2024 22:57
Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Eldur sem kviknaði í bílstjórahúsi flutningabíls um klukkan sjö í kvöld dreifði sér í kassa bílsins, en í honum voru fjörutíu tonn af þurru fiskafóðri. Að sögn slökkviliðsmanns stórskemmdist bíllinn sem og vagninn. Innlent 30.7.2024 22:30
Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Þingmenn og fyrrverandi hæstaréttardómari eru á meðal þeirra sem hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara, um að leggja til við ráðherra að hann taki mál hans til skoðunar, og vísi honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 22:09
Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. Erlent 30.7.2024 21:30
Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Slökkviliðinu í Árnessýslu barst útkall á áttunda tímanum í kvöld eftir að eldur hafði kviknað í mannskapshúsi flutningabíls á Þrengslavegi. Innlent 30.7.2024 20:01
Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Vegagerðin segir auglýsingaskilti vera til þess gerð að draga athygli ökumanna frá akstrinum. Bjartir skjáir sem skipta á milli auglýsinga ótt og títt við gatnamót þar sem mikið er um að vera eru sérstaklega varhugaverð. Innlent 30.7.2024 19:53
„Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni. Innlent 30.7.2024 19:32
Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Ísraelar gerðu loftárásir á úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanons, þar sem ísraelski herinn telur háttsetta meðlimi Hezbollah halda til. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir fyrir árásir Hezbollah á byggð Ísraela á Golan-hæðum þar sem 12 börn létu lífið. Erlent 30.7.2024 19:14
Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Ein elsta og minnsta rakarastofa landsins er á Akranesi en sjálft húsið verður hundrað ára á þessu ári. Þar starfa samrýmdir feðgar með samtals níutíu ára starfsreynslu. Þeir eru hvergi nærri hættir að klippa og raka en sá yngri ætlar að minnsta kosti að starfa áfram í húsinu í þrjátíu ár í við viðbót. Innlent 30.7.2024 19:00
Hjólhýsið fuðraði upp Hjólhýsi í Löngumýri í Skagafirði brann til kaldra kola í dag. Slökkviliðsstjóri segir milid að ekki hafi farið verr enda enginn í hýsinu þegar eldur kviknaði og engin önnur tjöld eða hjólhýsi í hættu. Innlent 30.7.2024 18:37
„Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Dómsmálaráðherra telur ekki við hæfi að hún tjái sig um erindi ríkissaksóknara varðandi tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara meðan á málsmeðferð stendur. Innlent 30.7.2024 18:27
Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti Vararíkissaksóknari telur sig ekki hafa farið yfir strikið þegar hann ræddi um dóm yfir brotamanni sem hafði átt í hótunum við hann. Ríkissaksóknari hefur vísað máli hans til ráðherra. Hann gefur lítið fyrir áminningu sem hann fékk fyrir önnur ummæli. Innlent 30.7.2024 18:11
„Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Eigandi verslunarinnar King Kong segir svo virðast sem innbrot séu fastur liður í því að reka söluturn á Íslandi í dag. Brotist var inn í King Kong við Auðbrekku í Kópavogi í nótt, rúmum sjö mánuðum eftir að brotist var inn í samnefnda verslun við Höfðabakka. Innlent 30.7.2024 18:00
Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari telur ekki að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sé til þess bær að veita honum áminningu í starfi. Það vald liggi hjá dómsmálaráðherra. Hann segist vona að dómsmálaráðherra taki ekki til greina ósk Sigríðar um að taka mál hans til skoðunar, og vísa honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 17:53
Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna. Erlent 30.7.2024 17:38
Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Starfsmaður hjúkrunarheimilis segir síðbúinn kvöldfréttatíma og endalausa íþróttadagskrá RÚV í sumar hafa valdið nokkrum usla á heimilinu. Deilt sé um það hvort horfa eigi á íþróttirnar eða eitthvað annað, og margir séu ósáttir við fréttaleysið. Dóttir eldri konu með eigið sjónvarp segir hana ekki treysta sér í slaginn við fjarstýringuna og hún sé því tilneydd til að glápa á íþróttir. Innlent 30.7.2024 17:08
Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Vikivaki verður sunginn í Dómkirkjunni, Vetrarsól í Alþingishúsinu og almenningur getur fylgst með af risaskjá á Austurvelli. Dagskráin fyrir innsetningarathöfn Höllu Tómasdóttur liggur fyrir. Innlent 30.7.2024 16:54
Skammast sín vegna skotárásarinnar Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda. Erlent 30.7.2024 16:49
Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30.7.2024 15:52
Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Svo virðist sem starfsmenn Vöku séu of duglegir í vinnunni og fari fram úr sér. Sú er í það minnsta skoðun Steinars Agnarssonar sem er smiður en hann hefur staðið í stappi við Vöku vegna húsbíls síns og svo annarra bíla sem hann segir hafa verið dregnir í burtu áður en tilskilinn frestur rann út. Reynir Guðmundsson framkvæmdastjóri Vöku vísar þessu á bug. Innlent 30.7.2024 15:42