Fréttir
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 334 ›
Bárðarbunga skelfur, vopnahlé og hjólaskautaat Öflugasta skjálftahrinan í áratug reið yfir í Bárðarbungu í morgun og er talið að hún tengist kvikuinnskoti. Óvissustigi var í kjölfarið lýst yfir. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, mætir í myndver og fer yfir líklega þróun mála. Innlent 14.1.2025 18:02
Getur ekki fullyrt að gosið hafi áður í Bárðarbungu Eldfjallafræðingur telur að skjálftahrina í Bárðarbungu „deyi út í augnablikinu.“ Það sé ekki víst hvort að það hafi nokkurn tímann gosið þar síðan jökla leysti. Innlent 14.1.2025 17:38
Virkja viðbragðsáætlun og opna aðgerðastjórn Vegna aukinnar jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, virkjað viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Bárðarbungu eða norðan Vatnajökuls. Innlent 14.1.2025 17:34
Bræðurnir Tate lausir úr stofufangelsi, aftur Andrew Tate hefur verið sleppt úr stofufangelsi í Rúmeníu en hann má ekki yfirgefa ríkið. Tate er verulega umdeildur en hann og bróðir hans Tristan hafa staðið frammi fyrir ásökunum um fjölmörg brot eins og mansal og nauðgun, sem meðal annars eru sögð hafa verið framin á ólögráða stúlkum. Erlent 14.1.2025 16:55
Ógeðfelldum aðferðum lýst í ákæru á hendur þremur Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir alvarlega frelsissviptingu í Vatnagörðum í Reykjavík í janúar árið 2023. Mönnunum er gefið að sök að hafa beitt fórnarlamb sitt hrottalegu ofbeldi, líkamlegu sem og kynferðislegu. Einn mannanna er til að mynda ákærður fyrir að reka rassinn ítrekað í andlit fórnarlambsins og segja við það „sleiktu þetta“ og „kysstann“. Innlent 14.1.2025 16:31
Áframhaldandi landris við Svartsengi Áfram en landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Hættumat Veðurstofu Íslands er óbreytt. Innlent 14.1.2025 16:21
Bergþór áfram þingflokksformaður Bergþór Ólason hefur verið kjörinn þingflokksformaður Miðflokksins. Hann var einnig þingflokksformaður á síðasta kjörtímabili. Karl Gauti Hjaltason verður varaformaður stjórnar þingflokks og Ingibjörg Davíðsdóttir verður ritari. Innlent 14.1.2025 15:59
Hamas-liðar samþykktu drög að friðarsamkomulagi Samningamenn Hamas-samtakanna eru sagðir hafa samþykkt drög að samkomulagi um vopnahlé á Gasaströndinni í skiptum fyrir það að fjölda gísla verði sleppt úr haldi samtakanna. Samkomulagið myndi koma á friði yfir nokkurra vikna tímabil. Erlent 14.1.2025 15:50
Katrín Jakobsdóttir tekur við af Daða Má Katrín Jakobsdóttir hefur tekið við sem formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands. Hún tekur við af Daða Má Kristóferssyni sem hefur tekið við embætti efnahags- og fjármálaráherra. Innlent 14.1.2025 15:48
Dómsmálaráðherra fundar með Sigríði og Helga Magnúsi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur látið það verða eitt sitt fyrsta verkefni í ráðuneytinu að reyna að komast til botns í ágreiningi Sigríðar Friðjónsdóttur ríkissaksóknara og Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara. Innlent 14.1.2025 15:32
Að minnsta kosti hundrað hafa dáið ofan í lokaðri námu Að minnsta kosti hundrað menn eru látnir úr hungri og vökvaskorti ofan í ólöglegri gullnámu í Suður-Afríku. Lögregluþjónar hafa setið um námuna um langt skeið og hafa mennirnir ofan í henni ekki haft aðgang að matvælum eða vatni frá því í nóvember. Erlent 14.1.2025 14:57
Kom að lokuðum dyrum örfáum dögum eftir að hafa tjáð sig í fjölmiðlum Hafsteinn Daníel Þorsteinsson, læknir sem starfaði sem verktaki hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Kirkjubæjarklaustri, kom skyndilega að lokuðum dyrunum hjá Sögu, kerfi sem sér um rafræna sjúkraskrá, þegar hann ætlaði að skrá dánarvottorð. Honum skilst að þjónustu hans sé ekki lengur óskað. Innlent 14.1.2025 14:41
Auknar líkur á skriðum á Vestfjörðum, Vestur- og Suðurlandi Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum á Suður- og Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum þegar frost fer úr jörðu og úrkoma safnast upp á næstu dögum. Ekki er hægt að útiloka krapaflóðahættu á svæðum þar sem snjór er í giljum og farvegum. Veður 14.1.2025 13:58
Lögðu kapp á að senda Pútín viðvörun vegna eldsprengja Ráðgjafar Joes Biden, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, lögðu í sumar mikið kapp á að koma viðvörun til Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Var það eftir að eldur kviknaði í pökkum í vöruhúsum DHL í Englandi og Þýskalandi en það voru sprengjur sem útsendarar leyniþjónustu rússneska hersins (GRU) komu fyrir í flugvélum. Erlent 14.1.2025 13:41
Stjórnmálamenn þurfa ekki að lepja dauðann úr skel RÚV greindi frá því nú rétt í þessu að borgarfulltrúar sem kjörnir voru á þing í nýafstöðnum kosningum fengu hver um sig hátt í fimm milljóna króna launagreiðslur um mánaðamótin. Innlent 14.1.2025 13:33
Atburðarásin minnir á undanfara eldgossins í Holuhrauni Áköf jarðskjálftahrina varð í Bráðabungu í Vatnajökli morgun. Jarðeðlisfræðingur segir hrinuna óvanalega og atburðarásina minna á undanfara eldgossins í Holuhrauni. Innlent 14.1.2025 12:39
Óljóst hve mörg atkvæði voru í pappakassanum sem barst of seint Ekki liggur fyrir hversu mörg utankjörfundaratkvæði voru í pappakassa sem barst yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi ellefu dögum eftir alþingiskosningar. Formaður yfirkjörstjórnar vonar að dreginn verði lærdómur af uppákomunni og verkferlar hugsaðir upp á nýtt. Innlent 14.1.2025 12:23
Vill veita björgunarfólkinu viðurkenningu Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti og prófessor við Háskólann í Bifröst, telur einsýnt að þeir sem komu að björgunarstörfum í tengslum við snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri fyrir þrjátíu árum verði heiðraðir sérstaklega fyrir framgöngu sína. Innlent 14.1.2025 12:17
Óvissustig vegna skjálfta í Bárðarbungu Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna aukinna skjálftavirkni í Bárðarbungu. Öflug jarðskjálftahrina hófst þar klukkan morgun og hafa um 130 skjálftar mælst. Sá stærsti var 5,1 að stærð. Innlent 14.1.2025 12:10
Eldar sagðir loga víða í Rússlandi eftir árásir Úkraínumenn gerðu umfangsmiklar dróna og eldflaugaárásir á skotmörk í nokkrum héruðum Rússlands í nótt. Í sumum tilfellum voru skotmörk Úkraínumanna hundruð kílómetra frá Úkraínu og loga miklir eldar eftir árásirnar. Erlent 14.1.2025 12:01
Öflug hrina í Bárðarbungu og Íslandsbankasala í augsýn Í hádegisfréttum fjöllum við um jarðskjálftahrinuna sem reið yfir í Bárðabungu í morgun. Innlent 14.1.2025 11:38
Flokkur Farage fast á hæla Verkamannaflokksins Umbótaflokkur Nigels Farage, eins helsta hvatamanns Brexit, mælist næststærsti stjórnmálaflokkur Bretlands, og fast á hæla Verkamannaflokksins í nýrri skoðanakönnun. Aðeins rétt rúmur helmingur kjósenda Verkamannaflokksins segist myndu kjósa flokkinn aftur ef kosið yrði nú. Erlent 14.1.2025 11:25
Hafi ekki fengið nauðsynlega hjálp áður en hann varð dóttur sinni að bana Móðir Kolfinnu Eldeyjar Sigurðardóttur, sem var myrt af föður sínum í september, segir að feðginin hafi ætlað sér að leika sér saman með nýtt dót í Hafnarfirði daginn örlagaríka en aldrei skilað sér heim úr þeirri ferð. Enginn sem þekki föðurinn hafi búist við því að hann mynda gera dóttur sinni nokkuð, enda hafi hann elskað hana og gert allt fyrir hana. Innlent 14.1.2025 11:20
Segist ítrekað hafa komið í veg fyrir frið á Gasa Ben Gvir, fjar-hægri sinnaður þjóðaröryggisráðherra Ísrael, viðurkenndi á myndbandi að hann hefði ítrekað komið í veg fyrir frið á Gasaströndinni á undanförnu ári. Í myndbandinu sagðist hann ætla að yfirgefa ríkisstjórn Ísraels, ef friðarsamkomulag yrði gert við Hamas-samtökin. Erlent 14.1.2025 10:52
Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Skjálftavirknin í Bárðarbungu datt hratt niður um klukkan níu eftir að hafa hafist af miklum þunga upp úr klukkan sex í morgun. Viðlíka skjálftavirkni hefur þó ekki sést á svæðinu síðan í aðdraganda eldgossins í Holuhrauni 2014. Innlent 14.1.2025 10:35
Ár liðið frá því hraun rann inn í Grindavík Ár er liðið frá því hraun rann inn í Grindavík þann 14. janúar 2024 í öðru eldgosi hrinunnar við Sundhnúksgíga. Gosið hófst um áttaleytið um morguninn og náði hraun fyrsta húsinu í Efrahópi um fimm tímum síðar. Innlent 14.1.2025 10:30
Segir nýjan orkuráðherra ætla að hægja á ferðinni Fyrrverandi orkuráðherra sakar Jóhann Pál Jóhannsson, eftirmann sinn, um að ætla að tefja frekari orkuöflun þrátt fyrir fullyrðingar hans um að hann ætli að hraða leyfisveitingaferlinu. Núverandi stjórnarflokkar hafi lagst gegn því að rjúfa kyrrstöðu í orkumálum á síðasta kjörtímabili. Innlent 14.1.2025 10:24
Segir að Trump hefði verið sakfelldur Jack Smith, fyrrverandi sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, segir teymi sitt hafi safnað nægum vísbendingum til að sakfella Trump vegna tilrauna hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Ekki væri hins vegar hægt að rétta yfir Trump vegna kosningasigurs hans og væntanlegrar embættistöku. Erlent 14.1.2025 09:57
Þessi troða upp á innsetningarathöfn Trump Töluvert betur hefur gengið að finna tónlistarmenn til að troða upp á innsetningarathöfn Donalds Trump næstkomandi mánudag en fyrir átta árum. Kántrísöngkonan Carrie Underwood kemur fram á sjálfri athöfninni en Village People hitar upp fyrir hana. Erlent 14.1.2025 09:02
Krafa um að tré verði felld í Öskjuhlíð eigi ekki að koma á óvart Samgöngustofa segir að krafa um að Reykjavíkurborg láti fella þúsundir trjáa í Öskjuhlíð vegna starfsemi Reykjavíkurflugvallar eigi ekki að koma borgarstjóra á óvart. Skipun um að flugbrautum verði lokað byggist á mati ISAVIA. Innlent 14.1.2025 08:56
Ljósmóðir á eftirlaunum kölluð út: „Óbilandi óöryggistilfinningar og aðstæður sem við búum við“ Innlent