Innlent

Treystir því að stjórn­völd setji ekki fólk á götuna

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þórir Hall Stefánsson er umsjónarmaður fjöldahjálparstöðvar fyrir heimilislaust flóttafólk.
Þórir Hall Stefánsson er umsjónarmaður fjöldahjálparstöðvar fyrir heimilislaust flóttafólk. Vísir/Vilhelm

Óvissa er um framtíð úrræðis fyrir þjónustusvipta hælisleitendur vegna þess að samningur Rauða krossins um félagslegan stuðning fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd verður ekki endurnýjaður.

Umsjónarmaður fjöldahjálparstöðvar sem rekin var á grunni samningsins segist treysta því að vinna fari fram hjá hinu opinbera og að þeir sem nýta úrræðið verði ekki settir á götuna.

Sérstakt neyðarskýli Rauða krossins fyrir einstaklinga sem synjað hafði verið um alþjóðlega vernd var opnað í september 2023 í gegnum samning við félags- og vinnumálaráðuneytið. Úrræðinu var ætlað að aðstoða fólk sem átti ekki rétt á neinni þjónustu og höfðu sumir þeirra sem nýttu sér úrræðið sofið undir berum himni.

Tilkynnt var í síðustu viku að samningur ráðuneytisins og Rauða krossins yrði ekki endurnýjaður og rennur úr gildi að öllu óbreyttu 31. maí næstkomandi.

Reka úrræðið út samningstímann

Þórir Hall Stefánsson, umsjónarmaður fjöldahjálparstöðva Rauða krossins, segir til standa að reka úrræðið út samningstímann en segist treysta því að þeim sem hafa nýtt sér þjónustuna verði boðið annað úrræði þegar neyðarskýlið lokar.

„Ég trúi því að stjórnvöld muni nú binda þannig um hnútana að það taki eitthvað við þessum hópi og eftir allt sem undan hefur gengið verður hann ekki settur á götuna,“ segir Þórir.

Hann segir tíu manns að jafnaði nýta sér þjónustuna sem er opin frá fimm síðdegis til fimm um morgun. Þau hafi ekki í önnur hús að venda.

Vonast eftir farsælli laust

Þórir segir að hann geri ráð fyrir því að vinna fari nú fram innan stjórnsýslunnar um að finna leiðir til að mæta þörfum þessa hóps. Kæmi ekkert úrræði í staðinn setti það þá sem sækja úrræðið á götuna.

„Þá erum við komin aftur á þann reit sem var áður en þetta skýli var opnað eftir lagasetningu um að heimilt væri að fella niður réttindi eftir endanlega synjun. Þetta skýli var opnað til að koma í veg fyrir að fólk myndi enda á götunni. Ég trúi ekki öðru en að það finnist farsæl lausn á þessum málum,“ segir Þórir Hall Stefánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×