Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 69 ›
Rússar reyndu að hafa áhrif á bandamenn Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti skipaði persónulega fyrir um tilraunir rússnesku leyniþjónustunnar til þess að koma höggi á Joe Biden í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum síðasta haust. Leyniþjónustan er meðal annars sögð hafa háð leynilega herferð til þess að hafa áhrif á nána bandamenn Donalds Trump, þáverandi forseta. Erlent 17.3.2021 09:25
Tveir handteknir fyrir að ráðast á lögregluþjóninn sem dó Tveir menn hafa verið handteknir og ákærðir fyrir að ráðast á lögregluþjóninn Brian D. Sicknick þegar árásin á þinghús Bandaríkjanna stóð yfir þann 6. janúar. Sicknick dó á sjúkrahúsi degi síðar. Erlent 15.3.2021 15:48
Embættismaður og Trump-liði tók þátt í árásinni á þingið Útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) handtóku í gær mann sem var starfaði í ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir að hafa tekið þátt í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar. Erlent 5.3.2021 13:54
Segir ósanngjarnt að hann sé í fangelsi Richard Barnett, sem naut fimmtán mínútna heimsfrægðar í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar, er ekki sáttur við að sitja í fangelsi. Hann missti stjórn á sér í dómsal í gær og gargaði á dómara í gegnum fjarfundarbúnað að hann ætti ekki að þurfa að sitja inni fram að réttarhöldum. Erlent 5.3.2021 11:28
Í reipitogi um kosningaréttinn Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í gær umfangsmiklar reglur varðandi kosningar og siðferði innan opinbera geirans. Frumvarpið var samþykkt að mestu eftir flokkslínum 220-210. Erlent 4.3.2021 13:44
Trump herðir tökin á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann ætlaði sér ekki að sleppa tökunum á Repúblikanaflokknum. Þess í stað væri hann að herða tökin og gaf hann í skyn að hann gæti boðið sig fram aftur til forseta fyrir kosningarnar 2024. Erlent 1.3.2021 09:00
Repúblikanar reyna víða að gera fólki erfiðara að kjósa Repúblikanar víða um Bandaríkin vinna nú hörðum höndum að því að gera fólki erfiðara að taka þátt í kosningum þar í landi. Beina þeir sjónum sínum sérstaklega að póstatkvæðum og öðrum aðferðum sem fólk getur beitt til að greiða utankjörfundaratkvæði. Erlent 20.2.2021 11:01
Trump hellti sér yfir McConnell: „Önug og fýld pólitísk bikkja“ Það verður ekki annað sagt en að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi látið Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana, í öldungadeild Bandríkjaþings, heyra það í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi. Erlent 17.2.2021 06:55
Trump og Giuliani kærðir af þingmanni vegna árásarinnar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur verið kærður fyrir alríkisdómstóli vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar. Kæran var lögð fram af Bennie Thompson, þingmanni Demókrataflokksins. Erlent 16.2.2021 15:44
Setja á fót nefnd til að rannsaka árásina á þinghúsið Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur greint frá því að til standi að þingið komi á fót óháðri rannsóknarnefnd sem ætlað verður að kafa ofan í saumana á atburðarásinni í og við þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar síðastliðinn. Þá réðst æstur múgur inn í þinghúsið og fimm létust, þar af einn lögregluþjónn. Erlent 15.2.2021 23:35
Trump-lestin rúllar áfram en þingmenn vilja frekari rannsóknir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem var sýknaður af ákæru um embættisbrot um helgina, er enn með sterkt tak á Repúblikanaflokknum þó hann komi ekki óskaddaður frá málinu. Erlent 15.2.2021 11:05
Ræða það að stofna nýjan flokk vegna Trumps Tugir manna sem starfað hafa innan Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum íhuga nú að stofna nýjan flokk. Ástæðan er sú að þeir eru ósáttir við tak Donalds Trumps á Repúblikanaflokknum og það að forkólfar flokksins þori ekki að standa í hárinu á forsetanum fyrrverandi. Erlent 11.2.2021 18:09
Réttarhöldin gegn Trump: Segja Trump hafa vitað í hvað stefndi Sækjendur fulltrúadeildar Bandaríkjaþings vörðu fyrsta kvöldi málflutnings síns í að færa rök fyrir því að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði sigað stuðningsmönnum sínum á þingið þann 6. janúar. Erlent 10.2.2021 23:24
Bein útsending: Annar dagur réttarhaldanna gegn Trump Annar dagur réttarhaldanna gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fer nú fram í öldungadeild Bandaríkjaþings. Réttarhöldin byrjuðu klukkan fimm að íslenskum tíma og munu bæði sækjendur og verjendur flytja opnunarræður sínar fram á kvöld. Erlent 10.2.2021 17:26
Bein útsending: Réttarhöldin yfir Trump hafinn Réttarhöldin yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hófust í öldungadeild Bandaríkjaþings í kvöld. Þetta er í annað sinn sem réttað er yfir Trump fyrir meint embættisbrot. Erlent 9.2.2021 18:27
Saka Demókrata um pólitískt sjónarspil með ákærunni gegn Trump Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, segja það fara gegn stjórnarskrá að rétta yfir fyrrverandi forseta fyrir meint embættisbrot, eftir að hann fer úr embætti. Þeir segja ákæru fulltrúadeildarinnar vera „pólitískt sjónarspil“ og saka Demókrata um að reyna að nota árásina á þinghúsið þann 6. janúar í pólitískum tilgangi. Erlent 8.2.2021 18:09
Liz Cheney um Repúblikanaflokkinn: Við erum flokkur Lincoln, ekki QAnon og samsæriskenninga Liz Cheney hefur varað Repúblikanaflokkinn við því að horfa framhjá þætti Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta í innrásinni í þinghúsið í Washington D.C. í janúar síðastliðnum. Erlent 8.2.2021 10:54
Framleiðendur kosningavéla stefna á fleiri lögsóknir Forsvarsmenn fyrirtækisins Dominion Voting Systems, sem framleiðir kosningavélar sem notaðar eru víða í Bandaríkjunum, hafa farið fram á það að færslur og myndbönd þar sem talað var um fyrirtækið á Facebook, YouTube, Twitter og Parler verði varðveittar af starfsmönnum fyrirtækjanna sem gera þessa miðla út. Erlent 5.2.2021 14:11
Krefst milljarða í bætur frá Fox og lögmönnum Trump Tæknifyrirtækið Smartmatic hefur höfðað meiðyrðamál gegn Rudy Giuliani og Sidney Powell, fyrrum lögmönnum Trump sem og Fox News og þremur þáttastjórnendum þar. Fyrirtækið segir ummæli þeirra um meint kosningasvindl af hálfu fyrirtækisins í forsetakosningunum vestanhafs í nóvember vera hreinar og beinar lygar. Erlent 4.2.2021 23:28
Seiðmaðurinn fær lífrænan mat í fangelsi Jacob Chansley, sem gengur undir nafninu Qanon seiðmaðurinn, má fá lífrænt ræktaðan mat í fangelsi, eins og hann hefur farið fram á. Það var niðurstaða alríkisdómara eftir að lögmaður Chansley sagði hann þarfnast þess vegna heilsu hans og trúar. Erlent 4.2.2021 11:43
Saka Trump um að hafa miðað hlaðinni fallbyssu á þingið Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, ógnaði lífi þingmanna þegar hann miðaði stuðningsmönnum sínum á þingið eins og hlaðinni fallbyssu þann. Þetta mun málflutningur Demókrata snúast um þegar réttað verður yfir forsetanum í öldungadeild Bandaríkjaþings í næstu viku vegna árásar stuðningsmanna hans á þinghúsið þann 6. janúar. Erlent 3.2.2021 09:54
„Brjálaðasti“ fundur sem haldinn var í Hvíta húsi Trumps Fjórum dögum eftir að kjörmenn komu saman í öllum ríkjum Bandaríkjanna og lýstu Joe Biden sigurvegara í forsetakosningunum í nóvember gekk fjögurra manna hópur á fund Donalds Trump í Hvíta húsinu. Þau voru mætt til að sannfæra forsetann fráfarandi um að beita valdi sínu til að sitja áfram í Hvíta húsinu. Erlent 2.2.2021 15:20
Trump situr á digrum sjóðum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, safnaði 31,5 milljónum dala (rétt rúmum fjórum milljörðum króna) í sérstakan stjórnmálasjóð á vikunum eftir forsetakosningarnar sem hann tapaði í nóvember. Erlent 1.2.2021 16:00
Trump með nýja verjendur en óreiða einkennir undirbúninginn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kynnti í gærkvöldi að nýir lögmenn hefðu bæst við verjendateymi hans. Það er eftir að fimm hættu skyndilega um helgina. Erlent 1.2.2021 10:54
Framleiðandi kosningavéla krefur Guiliani um háar bætur vegna lyga Framleiðandi Dominion-kosningavélanna (e. Dominion Voting Systems) hefur stefnt Rudy Giuliani, lögmanni Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrir ærumeiðingar og farið fram á greiðslu 1,3 milljarða Bandaríkjadala í miskabætur. Erlent 25.1.2021 14:07
Vildi sinn mann í ráðherrastól á síðustu metrunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, íhugaði að skipta út starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna í upphafi mánaðarins. Ætlaði hann sér að skipa annan starfandi ráðherra sem átti að hjálpa honum við að snúa niðurstöðum forsetakosninganna í fyrra. Erlent 23.1.2021 23:01
Málflutningur gegn Trump hefst 8. febrúar Málaferlin gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir embættisbrot munu hefjast þann 8. febrúar næstkomandi. Þá munu lögmenn beggja fylkinga flytja upphafsræður sínar í öldungadeild Bandaríkjaþings. Erlent 23.1.2021 08:54
Grínarar á yfirsnúningi með Bernie Sanders Bernie Sanders, fyrrum mótframbjóðandi Joe Biden í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar, sem fram fóru í nóvember á síðasta ári vakti mikla athygli á innsetningarathöfn Joe Bidens í Washington í gær. Lífið 21.1.2021 12:29
Gjörólíkir persónuleikar Bidens og Trumps eigi eftir að hafa áhrif á stefnuna Albert Jónsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra, segir viðbúið að margt muni breytast hvað varðar bandaríska utanríkisstefnu nú eftir að Joe Biden og hans stjórn hefur tekið við völdum í Bandaríkjunum að lokinni embættistíð Donalds Trump. Samkeppni Bandaríkjanna og Kína muni þó áfram vega þungt í bandarískri utanríkisstefnu. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, tekur undir þetta og sér fram á breytta stefnu í málefnum Norðurslóða og samskiptum við bandamenn í Evrópu. Innlent 21.1.2021 00:29
Umdeildur sendiherra Bandaríkjanna kveður og þakkar Trump Jeffrey Ross Gunter lýkur í dag störfum sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Þetta tilkynnir hann á Facebook-síðu sendiráðsins en Gunter var tilnefndur í embættið af Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, árið 2019. Innlent 20.1.2021 18:55