Eldgos og jarðhræringar
90 91 92 93 94 95 96 97 98 … 132 ›
Vörur hrundu úr hillum þegar jarðskjálftinn reið yfir Vörur hrundu úr hillum verslunar Nettó í Grindavík þegar heldur kröftugur skjálfti, sem var 5,4 að stærð, reið yfir klukkan 14:15 í dag. Skjálftinn átti upptök sín um fimm kílómetra suðvestur af Fagradalsfjalli. Innlent 14.3.2021 16:11
Kýs eldgos fram yfir þessa stöðugu skjálfta „Þetta var nú bara töluverður hávaði og högg eins og það væri keyrt á húsið,“ segir Bergur Brynjar Álfþórsson, formaður bæjarráðs Voga á Vatnsleysuströnd. Vogamenn hafa ekki farið varhluta af skjálftahrinunni síðustu vikur en Bergur segir skjálftann í dag þann öflugasta sem hann hefur fundið hingað til. Skjálftinn mældist 5,4 að stærð. Innlent 14.3.2021 16:03
„Það venst ekkert að upplifa þessa stóru skjálfta“ Fannar Jónasson, bæjastjóri í Grindavíkurbæ, segir skjálftann sem reið yfir Reykjanesskaga klukkan 14:15 í dag og var 5,4 að stærð hafa fundist einkar vel í bænum. Mikil skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga í yfir tvær vikur. Mannlífið gangi þó svo til sinn vanagang, þó mörgum íbúum verði ekki um sel þegar stærri skjálftarnir ríða yfir. Innlent 14.3.2021 15:32
„Auknar líkur á eldgosi“ Líkur á eldgosi halda áfram að aukast, að sögn Kristínar Jónsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Skjálftavirknin hefur verið að færast til suður en skjálftinn fannst meðal annars á Sauðárkróki. Innlent 14.3.2021 15:05
„Með því sterkara sem hefur fundist“ „Þetta var svona með því sterkara sem hefur fundist. Hann var langur og það hristist vel hérna,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík. Innlent 14.3.2021 14:36
Suðvesturhornið nötraði þegar skjálfti 5,4 að stærð reið yfir Afar kröftugur skjálfti varð klukkan 14:15 á Reykjanesskaga, þar sem mikil skjálftavirkni hefur verið síðustu daga og vikur. Innlent 14.3.2021 14:16
Skjálfti fimm að stærð sunnan við Fagradalsfjall Snarpur jarðskjálfti varð klukkan 12:34. Samkvæmt Veðurstofu Íslands var skjálftinn fimm að stærð og átti upptök sín í Sunnanverðu Fagradalsfjalli. Innlent 14.3.2021 12:36
Stærsti skjálftinn í nótt 4,2 að stærð Jarðhræringar á Reykjanesskaga héldu áfram í nótt og var stærsti jarðskjálftinn 4,2 að stærð þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm í morgun. Alls mældust sjö skjálftar þrír eða stærri eftir miðnætti í nótt. Innlent 14.3.2021 07:24
Rúmlega 1900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti Frá því á miðnætti í dag hafa rúmlega 1900 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga. Virknin var mest við Fagradalsfjall eins og undanfarna daga en nokkrir skjálftanna áttu upptök sín suður af Keili. Innlent 13.3.2021 19:32
Ekki hægt að opna gamla Suðurstrandarveg að fullu vegna grjóthrunshættu Bæjaryfirvöldum í Grindavík hafa borist ábendingar um að gamli Suðurstrandarvegurinn sé lokaður. Það geti skapað hættu ef það gjósi vestan við Grindavík og komi til rýmingar um Suðurstrandarveg. Atli Geir Júlusson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs hjá bænum segir ekki hægt að opna allan veginn að svo stöddu vegna hættu á grjóthruni. Innlent 13.3.2021 13:09
Átta jarðskjálftar yfir þrír að stærð frá miðnætti Af þeim rúmlega þrjú hundruð jarðskjálftum sem hafa mælst á Reykjanes frá miðnætti hafa átta verið yfir 3,0 að stærð. Stærsti skjálftinn var 4,6 að stærð klukkan 1:34. Innlent 13.3.2021 07:18
Ekki ósennilegt að kvika sé nær yfirborði en fyrr í vikunni Ekki er ósennilegt að kvika sé nær yfirborði en fyrr í vikunni við Fagradalsfjall, þegar hún var á um eins kílómetra dýpi að mati hópstjóra náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands. Vonast sé eftir að gervitunglamynd muni varpa skýrari mynd á það um helgina. Innlent 12.3.2021 18:40
Ólíklegt að sprungan nái til sjávar með tilheyrandi öskugosi Ólíklegt er að gossprunga sem opnast suður af Fagradalsfjalli nái til sjávar ef horft er til gossögunnar og jarðfræðirannsókna á svæðinu. Eins og staðan er núna er því ósennilegt að það gjósi neðansjávar með tilheyrandi öskugosi, að sögn vísindaráðs almannavarna. Innlent 12.3.2021 14:47
Eldgos í sjó möguleiki Ekkert lát er á snörpum jarðskjálftum á Reykjanesskaga þrátt fyrir að þeim hafi fækkað síðustu daga. Á þriðja tug jarðskjálfta stærri en þrír hafa mælst frá miðnætti. Sú sviðsmynd er til skoðunar að eldgos gæti orðið í sjó. Innlent 12.3.2021 11:57
Skipar viðbragðshóp vegna mögulegs eldgoss Ákveðið var á fundi ríkisstjórnar í morgun að skipa sérstakan hóp ráðuneytisstjóra sem er ætlað að eiga í nánu samráði við viðeigandi stofnanir til að undirbúa áætlun til að vernda mikilvæga innviði á borð við vatnsból, orkukerfi og fjarskiptakerfi ef til eldgoss kemur. Innlent 12.3.2021 11:46
Snarpur morgunskjálfti 5,0 að stærð Snarpur skjálfti fannst á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu um 7:43 í morgun. Skjálftinn var 5,0 að stærð við Fagradalsfjall. Innlent 12.3.2021 07:47
Fimmtán skjálftar yfir þremur í nótt Alls hafa um 750 skjálftar mælst á Reykjanesskaga frá því á miðnætti í nótt. Þar af hafa fimmtán skjálftar verið yfir þremur að stærð og sá stærsti fjórir að stærð. Innlent 12.3.2021 06:23
Bein útsending af Fagradalsfjalli Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu og hefur kvika brotið sér leið í átt að yfirborði jarðar. Vísir er með vefmyndavélar á svæðinu þar sem hægt er fylgjast með óróasvæðinu. Innlent 11.3.2021 18:48
Jarðhræringar á Reykjanesskaga: Fylgst með úr öllum áttum Enn eru líkur á eldgosi við sunnanvert Fagradalsfjall þó svo að kvikugangurinn hafi færst síðasta sólarhringinn. Fornleifafræðingar leggja nótt við dag við að skrásetja fornminjar á svæðinu sem gætu farið undir hraun. Innlent 11.3.2021 18:31
Á tíu ára afmæli flóðbylgjunnar; lærdómur sögunnar gildir í dag Á þessum degi fyrir tíu árum stóð japönsk kona á áttræðisaldri, Nobuku Kono, frammi fyrir erfiðu vali. Hún bjó í Rikuzen-takata, 24 þúsund manna bæ sem var byggður sitt hvoru megin við árfarveg við sjávarströndina norðarlega í Japan. Það hafði orðið harður jarðskjálfti og hún þurfti að ákveða hvort hún gerði eins og stjórnvöld ráðlögðu og leitaði skjóls í fjöldahjálparstöð í skólabyggingu innar í dalnum. Skoðun 11.3.2021 15:06
Líkur á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg Jarðskjálfti af stærðinni 4,6 í Eldvörpum skömmu fyrir klukkan níu í morgun er merki um spennubreytingar á Reykjanesskaga. Smáskjálftavirkni á svæðinu er en talinn fyrirboði eldgoss en talið er að kvikugangurinn við Fagradalsfjall hafi færst til suðurs. Innlent 11.3.2021 11:47
Kvikan smám saman að brjóta sér leið til suðurs Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, telur um helmingslíkur á eldgosi eins og staðan er núna. Þá sagði hún stóran jarðskjálfta við Eldvörp í morgun ekki til marks um að kvika brjótist upp við upptök hans. Kvikugangurinn undir Fagradalsfjalli sé jafnframt að færast til suðurs. Innlent 11.3.2021 10:21
Stór skjálfti vestan af Grindavík Jarðskjálfti að stærðinni 4,6 varð við Eldvörp um tvo kílómetra suður af Sandfellshæð á Reykjanesskaga klukkan 8:53. Innlent 11.3.2021 09:20
Um 800 skjálftar frá miðnætti Enn er mikil skjálftavirkni í og við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga og hafa um 800 skjálftar mælst á svæðinu frá því á miðnætti. Nokkrir þeirra hafa verið yfir þremur að sögn Huldu Rósar Helgadóttur, náttúruvársérfræðings, og var sá stærsti 3,4. Innlent 11.3.2021 06:18
Sjö skjálftar yfir 3 á áttunda tímanum Frá því kl. 19.22 hafa sjö skjálftar yfir 3 mælst á Reykjanesskaga. Röðin hófst með skjálfta upp á 3,6 en nýjasti skjálftinn, sem mældist kl. 19.49 var 3,7. Innlent 10.3.2021 20:19
Margir leita til heilsugæslunnar vegna riðutilfinningar Margir hafa leitað til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna riðutilfinningar sem fylgir skjálftahrinunni á Reykjanesskaga. Forstjóri heilsugæslunnar segir þetta algengt í náttúruhamförum þar sem vöðvaspenna og svefntruflanir geti valdið ójafnvægi í líkamanum. Innlent 10.3.2021 19:17
Um 2.100 skjálftar mælst frá miðnætti en ekki órói Frá miðnætti hafa ríflega 2.100 jarðskjálftar greinst á mælum Veðurstofu Íslands á Reykjanesi. Virknin hefur að mestu haldið sig í kringum syðsta enda Fagradalsfjalls, frá Geldingadal að Nátthaga. Innlent 10.3.2021 18:40
Eldgos „líklegra og líklegra með hverjum degi sem líður“ Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir að það verði að teljast líklegra og líklegra með hverjum deginum sem líður að kvika nái að brjóta sér leið upp á yfirborðið í eldgosi á Reykjanesskaganum. Innlent 10.3.2021 12:29
Fleiri jarðskjálftar á síðustu tveimur vikum en allt árið 2020 Meira en 34 þúsund jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum á síðustu tveimur vikum eða allt frá því að skjálftahrinan sem ekkert lát virðist vera á hófst á svæðinu. Innlent 10.3.2021 11:41
Svona hljómuðu skjálftar næturinnar og morgunsins Tveir stórir jarðskjálftar fundust vel á suðvesturhorninu í nótt og í morgun. Sá fyrri reið yfir klukkan 03:14 í nótt og var 5,1 að stærð. Bárust Veðurstofunni tilkynningar að hann hefði fundist allt austur í Fljótshlíð og vestur í Búðardal. Innlent 10.3.2021 11:30