Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 133 ›
Hætta á að Grindavík fari í greiðsluþrot Grindavíkurnefnd segir hættu á að bærinn fari í greiðsluþrot á næsta ári verði ekki brugðist við. Bærinn geti verið rekinn í 1,5 til tveggja milljarða halla á næsta ári. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á þingmenn að samþykkja lagabreytingar sem varða afkomu og húsnæðismál Grindvíkinga sem allra fyrst og á yfirstandandi þingi. Innlent 1.11.2024 08:28
Líkur aukast á eldgosi í lok nóvember Út frá nýju hættu mati Veðurstofunnar vegna kvikusöfnunar í Svartsengi má reikna með að líkur fari að aukast á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesskaga í lok nóvember. Landris og kvikusöfnun hefur verið á stöðugum hraða síðustu vikur. Innlent 29.10.2024 16:30
Heilt ár af samfelldu landrisi í Svartsengi Nú um helgina er ár frá því að landris hófst í Svartsengi. Landrisið hófst af miklum krafti 27. október í fyrra og hefur innstreymi kviku inn í jarðskorpuna nú verið samfellt í heilt ár. Innlent 26.10.2024 14:16
Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Vísbendingar eru um að loftsteinaárekstur sem var margfalt stærri en sá sem grandaði risaeðlunum hafi hjálpað lífverum með því að dreifa næringarefnum um jörðina. Talið er að höfin hafi soðið og stærsta flóðbylgja sem vitað er um hafi fylgt árekstrinum. Erlent 25.10.2024 15:36
Stuðningslán leysi ekki vanda fyrirtækja í Grindavík Birgitta Rán Friðfinnsdóttir bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík er ekki ánægð með frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármála- og efnahagsráðherra um stuðningslán til fyrirtækja í Grindavík. Birgitta segir lán ekki leysa vanda fyrirtækjanna og kallar eftir alvöru aðgerðum. Innlent 23.10.2024 21:27
Neðri óvissumörkum náð í byrjun nóvember Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og síðustu vikur. Jarðskjálftavirkni hefur aukist lítillega síðustu daga og búast má við að neðri óvissumörkum á rúmmáli kviku verði náð í byrjun nóvember. Innlent 22.10.2024 17:19
Grindavík eins og „Tsjernobyl án kommúnisma“ Grindavíkurbær var opnaður fyrir almenningi klukkan sex í morgun. Bandarískir ferðamenn líkja bænum við Tsjernobyl án kommúnisma en formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur viðurkennir að mistök hafi verið gerð við vinnslu bæklings með mikilvægum upplýsingum um öryggisatriði. Innlent 21.10.2024 20:00
„Hefði kannski verið heppilegra að allt væri komið“ Formaður Grindavíkurnefndar segir nefndina hafa lagt áherslu á að setja upp aðvörunarskilti inni í bænum. Hann tekur ekki nema að litlu leyti undir gagnrýni lögreglustjóra um skort á upplýsingagjöf en ugglaust hefði verið heppilegra að komin væru skilti fyrir utan bæinn. Innlent 21.10.2024 16:21
Lögreglustjóri skýtur á Grindavíkurnefnd Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki gera stórar athugasemdir við opnun Grindavíkurbæjar, sem varð í dag, en segir þó að upplýsingagjöf til ferðamanna sem hyggist fara í bæinn sé lítil sem engin. Innlent 21.10.2024 11:08
Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Frá og með klukkan sex í fyrramálið verður Grindavíkurbær opinn fyrir almennri umferð. Ferðamálastofa biðlar til fólks að sýna ábyrgð og virðingu þar sem enn er töluverð hætta á ferð. Innlent 20.10.2024 13:39
Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Það kann að koma einhverjum á óvart en í viðtalsrými sálfræðings er í í hesthúsunum við Sörlaskeið í Hafnarfirði en um er að ræða vinnustað Þorkötlu Elínar Sigurðardóttur á Hlöðuloftinu. Lífið 18.10.2024 10:31
Ekkert bendi til þess að kvikusöfnun sé að hætta Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikuna. Haldi hún áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegasta sviðsmyndin sú að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 17.10.2024 16:01
Opna Grindavík öllum eftir helgi Aðgangur að Grindavík verður hindranalaus frá og með mánudagsmorgni samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar um málefni bæjarins sem kynnt var í dag. Lokað verður aftur ef hættu- eða neyðarstigi verður aftur lýst yfir. Innlent 16.10.2024 13:44
Bein útsending: Verður Grindavík opnuð fyrir öllum? Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ boðar til upplýsingafundar í Tollhúsinu við Tryggvagötu klukkan 13:30. Þar verður farið yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Beint streymi verður frá fundinum á Vísi. Innlent 16.10.2024 13:11
Boða til upplýsingafundar vegna breytts aðgengis að Grindavík Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ hefur boðað til upplýsingafundar klukkan 13:30 í dag þar sem farið verður yfir breytt fyrirkomulag varðandi aðgengi að Grindavík. Innlent 16.10.2024 09:01
Þurfa að læra að lifa með takmörkunum vegna jarðhræringanna Formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur segir að fólk þurfi að læra að lifa með þeim takmörkunum sem jarðhræringarnar á Reykjanesi setja á sama tíma og unnið sé að því að auka aðgengi að bænum. Tillögur um það verða kynntar á allra næstunni. Innlent 13.10.2024 11:35
Hægir á landrisi GPS-mælingar á Svartsengissvæðinu sýna vísbendingar um að undanfarið hafi smám saman dregið úr hraða á landrisi. Líkanreikningar, sem byggðir eru á GPS-gögnunum, sýna einnig vísbendingar um að örlítið dragi úr kvikuinnflæði undir Svartsengi. Innlent 10.10.2024 16:32
Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Skjálfti af stærð 4,5 varð í Bárðarbunguöskju klukkan 17:56 í dag. Innlent 6.10.2024 20:42
Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Allir bátarnir, sem fluttu Eyjamenn til landsins í eldgosinu 1973 hafa verið málaðir á vita í Vestmannaeyjum en vitinn vekur alltaf mikla athygil ferðamanna. Innlent 5.10.2024 21:04
Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Tveir stórir skjálftar urðu í Bárðarbunguöskjunni í dag. Skjálftarnir urðu um hálfellefuleytið. Sá fyrri var 3.7 að stærð og sá sem fylgdi á eftir var 3.9. Innlent 5.10.2024 11:33
„En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ „Það er allt upp á borðum. Við ræðum allt. Og auðvitað hafa þetta verið krefjandi tímar, ekki síst fyrir starfsfólkið ,“ segir Sigrún Halldórsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs, menningar og öryggis hjá Bláa Lóninu um tímabilið síðan rýmingin var í Grindavík þann 10.nóvember árið 2023. Atvinnulíf 3.10.2024 07:00
Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Eldfjallafræðingur segir marga aðra staða á landinu betri valkost fyrir varaflugvöll en Hvassahraun. Sama vá steðji að því svæði og að flugvöllunum í Reykjavík og Keflavík. Betra sé að hafa ekki öll eggin í sömu öskjunni. Innlent 2.10.2024 12:35
Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. Innlent 1.10.2024 20:20
Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50
Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir í Mýrdalsjökli snemma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín um 6,4 kílómetra norðaustur af Goðabungu og er sá stærsti sem mælst hefur í jöklinum á þessu ári. Innlent 30.9.2024 20:38
Stór skjálfti í Goðabungu Jarðskjálfti sem mældist 3,7 stig reið yfir í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan sex í morgun. Innlent 30.9.2024 07:39
Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Tveir skjálftar yfir 3 að stærð riðu yfir á Reykjanesskaga klukkan 17:40 og 17:43 í dag. Enginn gosórói mælist á svæðinu að sögn Veðurstofunnar. Innlent 29.9.2024 18:29
Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Lítið jökulhlaup er hafið í Skálm. Rafleiðni mælist um 263 µS/cm. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að hlaupið sé mikið minna en hlaupið sem olli skemmdum á Þjóðveginum í sumar. Innlent 28.9.2024 20:19
„Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi á jöfnum hraða. Verkfræðingur í innviðahópi almannavarna segir mikilvægt að undirbúa sig fyrir það að mögulega muni hraun renna yfir Reykjanesbrautina og í átt að Vogum. Mikil verðmæti séu fólgin í því að halda brautinni opinni. Innlent 28.9.2024 12:17