Bandaríkin
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 334 ›
Vígreifur Trump gaf lítið fyrir fyrirmæli dómarans Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að dómarinn Juan Merchan ráðlagði Trump að stíga varlega til jarðar í ummælum sínum um yfirvofandi réttarhöld var forsetinn fyrrverandi kominn í vígaham og sakaði meðal annars dómarann og fjölskyldu hans um að hata sig. Erlent 5.4.2023 06:21
Vaktin: Donald Trump leiddur fyrir dómara í New York Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið ákærður fyrir bókhaldsbrot í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels. Ákæran er í 34 liðum en Trump hefur lýst sig saklausan af þeim öllum. Erlent 4.4.2023 17:45
Heimili Grey's Anatomy stjörnu brann til kaldra kola Leikkonan Caterina Scorsone greindi frá því á Instagram-síðu sinni í dag að heimili hennar hafi brunnið til kaldra kola fyrir nokkrum mánuðum síðan. Hún prísar sig sæla að í lagi sé með fólkið á heimilinu en syrgir á sama tíma gæludýrin fjögur sem dóu í eldsvoðanum. Lífið 4.4.2023 16:42
Ætla að reka þingmenn sem mótmæltu skotvopnum Repúblikanar á ríkisþingi Tennessee í Bandaríkjunum tóku fyrstu skrefin að því að reka þrjá þingmenn demókrata af þingi eftir að þeir tóku þátt í mótmælum gegn skotvopnum í þinginu í síðustu viku. Fáheyrt er að þingmönnum sé vísað af þingi með þessum hætti. Erlent 4.4.2023 15:12
Virgin Orbit stefndi á geiminn en lenti á hausnum Geimferðarfyrirtækið Virgin Orbit í eigu breska auðkýfingsins Richards Barnason óskaði eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í gær. Eldflaugarskot fyrirtækisins misheppnaðist fyrr á þessu ári og það hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna frekari tilraunir. Viðskipti erlent 4.4.2023 12:20
Ráðgjafi ríkisstjóra féll í átökum við lögreglu Fyrrverandi skrifstofustjóri ríkisstjóra Maryland í Bandaríkjunum lést af völdum skotsárs sem hann hlaut í átökum við fulltrúa alríkislögreglunnar FBI í gær. Maðurinn hafði verið á flótta undan yfirvöldum í þrjár vikur enn hann var sakaður um fjársvik. Erlent 4.4.2023 09:11
Kynnti áhöfnina sem á að fara aftur til tunglsins Bandaríska geimvísindastofnunin NASA kynnti í gær geimfarana fjóra sem urðu fyrir valinu til að fljúga til tunglsins á næsta ári. Kona og blökkumaður eru í fyrsta skipti á hópi væntanlegra tunglfara. Erlent 4.4.2023 08:38
Trump kominn til New York og verður leiddur fyrir dómara kl. 18.15 Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, kom til New York í gær. Síðar í dag, um klukkan 18 að íslenskum tíma, fer fram þingfesting í máli gegn honum í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels. Erlent 4.4.2023 07:30
Njósnabelgurinn hafi safnað viðkvæmum hernaðarupplýsingum Kínverskur njósnabelgur sem Bandaríkjamenn skutu niður í febrúar er talinn hafa verið nýttur til að safna viðkvæmum hernaðarupplýsingum. Talið er að belgnum hafi verið flogið yfir herstöðvar og upplýsingum streymt í rauntíma til kínverskra yfirvalda. Erlent 3.4.2023 23:17
Krefst tæplega sex milljarða eftir að barn skaut hana Abigail Zwerner, kennari í Virginíu í Bandaríkjunum, hefur krafið skólastjórnendur um fjörutíu milljónir Bandaríkjadala, ríflega 5,5 milljarða króna, eftir að sex ára nemandi skaut hana í höndina og brjóstið í janúar. Hún sakar stjórnendur um alvarlegt gáleysi með því að hafa hundsað fjölda viðvarana um að nemandinn væri vopnaður og í „vígahug“. Erlent 3.4.2023 20:23
Telja Trump hafa hindrað rannsókn á leyniskjölum Bandaríska dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan eru sögð hafa safnað nýjum sönnunargögnum sem benda til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafi reynt að leggja stein í götu rannsóknar á leyniskjölum sem fundust á heimili hans í fyrra. Erlent 3.4.2023 15:10
Þrjátíu og fjögur stefnumót í nítján löndum Þegar Loni James lagði af stað í heimsreisu fyrir rúmu ári síðan var hún með einfalt markmið: Að fara á stefnumót með nýjum aðila í hverju landi sem hún heimsótti. Síðan þá hefur hún farið á alls þrjátíu og fjögur fyrstu stefnumót í nítján mismunandi löndum. Lífið 3.4.2023 13:03
Trump hyggst ávarpa stuðningsmenn sína eftir þingfestingu Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður í baráttuhug en hann flýgur til New York í dag. Þar mun hann verða dreginn fyrir dómara á morgun og látinn svara ákærum í tengslum við mútugreiðslur til klámmyndastjörnunnar Stormy Daniels. Erlent 3.4.2023 08:00
Bjargaði snjóbrettamanni á kafi í snjó Skíðamaðurinn Francis Zuber vann mikið þrekvirki á dögunum þegar hann bjargaði snjóbrettamanni sem lent hafði öfugur á kafi í snjó. Hann rambaði fram á manninn fyrir hreina tilviljun og ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði hann ekki gert það. Erlent 2.4.2023 22:39
Minnst 21 látinn í suður- og miðvesturríkjum Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Arkansas í Bandaríkjunum vegna mannskæðs óveðurs sem reið yfir þar og í fleiri ríkjum í gærkvöldi og í nótt. Tugir hvirfilbylja fylgdu veðrinu. Erlent 1.4.2023 21:14
Forysta Rússa í öryggisráðinu „versti brandari í heimi“ Rússar sitja nú í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir mótmæli Úkraínumanna og annarra landa. Síðast þegar Rússar gegndu sama embætti réðust þeir inn í Úkraínu. Erlent 1.4.2023 11:06
Trump ekki settur í handjárn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti verður ekki settur í handjárn þegar hann verður leiddur fyrir ákærudómstól í New York í vikunni. Viðbúnaður verður mikill og gert er ráð fyrir því að tugir leynilögreglumanna taki á móti Trump. Erlent 1.4.2023 07:59
Hætta við eina stærstu leikjasýningu ársins Ekkert verður af tölvuleikjasýningunni E3 2023. Þetta var tilkynnt í gær eftir að ljóst var að stærstu leikjaframleiðendur heimsins myndu ekki mæta á ráðstefnuna. Sýningin, sem halda átti í júní, hefði verið sú fyrsta frá 2019 þar sem gestur hefðu fengið að mæta. Leikjavísir 31.3.2023 11:19
Keppinautar Trump fylkja sér að baki honum eftir ákæru Leiðtogar Repúblikanaflokksins og helstu keppinautar Donalds Trump um útnenfningu flokksins fyrir forsetakosningar næsta árs fylktu sér að baki honum eftir að hann var ákærður í gær. Búist er við því að Trump gefi sig fram við yfirvöld í New York í næstu viku. Erlent 31.3.2023 09:12
Segja Rússa ætla að bjóða Norður-Kóreu mat fyrir vopn Rússar hyggjast gera út sendinefnd til Norður-Kóreu, sem mun bjóða þarlendum ráðamönnum mat fyrir vopn. Þetta sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 31.3.2023 08:08
Dómur féll Gwyneth Paltrow í vil: Fær einn dollara í bætur Kviðdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að bandaríska leikkonan Gwyneth Paltrow beri ekki ábyrgð vegna atviks þar sem hinn 76 ára Terry Sanderson braut fjögur rifbein í skíðabrekku í Utah í Bandaríkjunum árið 2016. Er það mat kviðdómsins að Sanderson beri alfarið ábyrgð á slysinu. Erlent 30.3.2023 22:53
Trump ákærður í New York Meðlimir ákærudómstóls í New York hafa lagt til að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verði ákærður. Nákvæmlega fyrir hvað liggur ekki fyrir enn en búist er við því að Alvin Bragg, umdæmissaksóknari í Manhattan, opinberi ákæruna á næstu dögum. Erlent 30.3.2023 21:37
Íslandsvinahópur á Bandaríkjaþingi Fyrr í dag fór fram stofnfundur sérstaks Íslandsvinahóps meðal þingmanna fulltrúadeildar Bandaríkjaþings (Iceland Caucus). Innlent 30.3.2023 18:35
Fimm ára skaut sextán mánaða bróður sinn til bana Sextán mánaða drengur var skotinn til bana af fimm ára systkini sínu í Indiana í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Eldra barnið mun hafa komist í skammbyssu sem var á heimili þeirra og notaði hana til að skjóta ungabarnið til bana. Erlent 30.3.2023 15:11
Eldur kviknaði er lest með etanól og síróp fór af sporinu Lest sem verið var að nota til að flytja etanól og síróp fór af sporinu í Minnesota í morgun. Við það kviknaði mikill eldur svo stór hluti lestarinnar stóð í ljósum logum. Íbúar bæjarins Raymond, sem bú nærri slysinu, þurftu að flýja heimili sín. Erlent 30.3.2023 13:46
SBF ákærður fyrir að reyna að múta kínverskum stjórnvöldum Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, er sagður ætla að lýsa sig saklausan af ákæru um að hann hafi brotið bandarísk kosningalög og mútað kínverskum yfirvöldum. Hann hefur þegar lýst sig saklausan af ákærum um stórfelld fjársvik. Viðskipti erlent 30.3.2023 11:53
Fjöldi látinn eftir árekstur tveggja herþyrlna í Kentucky Manntjón varð þegar tvær Blackhawk-herþyrlur rákust saman í Kentucky í Bandaríkjunum í nótt. Erlent 30.3.2023 07:55
Hleyptu flóttamönnum ekki út þegar eldurinn kviknaði Öryggisverðir í flóttamannabúðum í Ciudad Jarez hleyptu flóttamönnum ekki út þegar eldur kviknaði í búðunum í gær. Minnst 38 létust og 28 eru særðir en flóttamennirnir sjálfir eru sagðir hafa kveikt eldinn. Erlent 29.3.2023 15:05
Nettröll níddust á föður sex ára drengs sem lést Blaðamaður sem missti sex ára son sinn í janúar hefur orðið vinsælt skotmark fólks á netinu sem segist sannfært um að bóluefni gegn Covid hafi dregið barnið til dauða. Þetta fólk hefur níðst á manninum og sakað hann um að bera ábyrgð á dauða barnsins, jafnvel þó það hafi alls ekki dáið vegna bóluefna. Erlent 29.3.2023 11:45
Kínverjar reiðir yfir væntanlegum fundi Tsai og McCarthy Tsai Ing-wen, forseti Taívans, segir að utanaðkomandi þrýstingur muni ekki koma í veg fyrir samskipti Taívans við heiminn. Hún mun ferðast um Bandaríkin á næstu dögum og stendur til að hún fundi þar með Kevin McCarthy, forseta Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Erlent 29.3.2023 10:11