Bandaríkin
50 51 52 53 54 55 56 57 58 … 334 ›
Fordæma Bandaríkjamenn vegna drónaárásar í Baghdad Ríkisstjórn Íraks fordæmdi í gær drónaárás Bandaríkjamanna í Baghdad, höfuðborg landsins, í gærmorgun. Í árásinni féll leiðtogi vopnahóps sem tengist yfirvöldum í Íran og öryggissveitum Íraks. Sá er sagður hafa skipulagt fjölmargar árásir á bandaríska hermenn í Írak. Erlent 5.1.2024 12:13
Líklegast að ISIS beri ábyrgð á árásinni í Íran Bandarísk yfirvöld segja að þau telji líklegast að hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið beri ábyrgð á hryðjuverkaárás í Íran í gær þar sem í hið minnsta 84 manns létust. Erlent 4.1.2024 16:22
Skiptir um trúfélag og íhugar að gerast djákni Bandaríski leikarinn Shia Labeouf hefur skráð sig í kaþólsku kirkjuna. Hann íhugar jafnframt að gerast djákni og starfa fyrir kirkjuna. Lífið 4.1.2024 13:17
Fékk ekki skilorð og réðst á dómarann Deobra Redden, þrítugur karlmaður frá Las Vegas í Bandaríkjunum, stökk yfir dómarabekkinn og réðst á dómarann í máli hans vegna líkamsárásar í gær. Hann virðist hafa verið ósáttur með ákvörðun dómarans um að fallast ekki á beiðni hans um skilorðsbundinn dóm. Erlent 4.1.2024 09:07
Tólf ríki hóta Hútum hefndaraðgerðum fyrir árásirnar á Rauða hafi Bandaríkin, Bretland og tíu önnur ríki hafa varað Húta við því að það muni hafa alvarlegar afleiðngar í för með sér ef þeir láta ekki af árásum sínum á flutningaskip á Rauða hafi. Erlent 4.1.2024 07:39
Réttarhöldum yfir árásarmanni Rushdie frestað vegna nýrrar bókar Réttarhöldum yfir manninum sem réðist á rithöfundinn Salman Rushdie í ágúst 2022 hefur verið frestar vegna útgáfu nýrrar bókar Rushdie um árásina og eftirmála hennar. Erlent 4.1.2024 07:02
Andrés, Clinton og Trump nefndir til sögunnar í Epstein-skjölunum Andrés Bretaprins og Bill Clinton og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, eru meðal þeirra sem eru nefndir í dómsskjölum í tengslum við athafna- og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 4.1.2024 06:44
Rýmdu níu þinghús vegna sprengjuhótana Að minnsta kosti níu bandarísk þinghús voru rýmd í dag vegna sprengjuhótana. Þinghúsin níu má finna á víð og dreif um landið. Erlent 3.1.2024 22:49
Talinn vera sá fyrsti til þess að „vinna“ Tetris Þrettán ára Bandaríkjamaðurinn Willis Gibson er sagður vera fyrsta manneskjan í heiminum til að sigra einn klassískasta tölvuleik sögunnar, Tetris. Leikurinn hrundi þegar Gibson var kominn í 157. borð leiksins. Leikjavísir 3.1.2024 20:44
Hópárás gegn 90210 stjörnu náðist á myndband Bandaríski leikarinn Ian Ziering lenti í átökum við mótorhjólagengi á gamlárskvöld. Myndband af átökunum hefur verið birt í fjölmiðlum vestanhafs, en þar má sjá marga ráðast að Ziering sem svarar fyrir sig, en endar á að hlaupa á brott. Lífið 3.1.2024 10:37
Kimmel hótar Rodgers lögsókn fyrir ummæli um Epstein-listann Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel hefur hótað lögsókn á hendur Aaron Rodgers, leikstjórnanda New York Jets, eftir að síðarnefndi gaf það í skyn að nafn Kimmel yrði að finna á margumræddum „vinalista“ kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Lífið 3.1.2024 08:26
H5N1 sögð hafa valdið dauða ísbjarnar í Alaska Ísbjörn sem fannst dauður nærri Utqiagvik í norðurhluta Alaska reyndist smitaður af H5N1, sem hefur valdið dauða milljóna fugla og þúsunda spendýra frá árinu 2021. Erlent 3.1.2024 07:06
Að minnsta kosti 706 létust í 650 fjöldaskotárásum Alls létust 706 í fjöldaskotárásum í Bandaríkjunum í fyrra. Árásirnar voru 650 talsins og hafa aðeins einu sinni verið fleiri; voru 689 árið 2021. Erlent 2.1.2024 10:32
Maður margra dulargerva gómaður eftir mörg ár á flótta Strokufangi, sem hefur verið kallaður maður margra dulargerva (e. master of disguise), hefur verið handtekin í Kaliforníuríki Bandaríkjanna eftir fjögur ár á flótta, eða síðan hann slapp úr fangelsi á Hawaii árið 2019. Hann er meðal annars grunaður um dularfullt morð á kærustu sinni. Erlent 1.1.2024 14:01
Nýjar myndir af eldfjallatunglinu Íó NASA deildi í nótt nýjum myndum af Íó tungli Júpíters. Myndirnar voru teknar af svokallaðri JunoCam í geimfarinu Juo sem er um þessar mundir á sveimi um sólkerfið okkar. Erlent 31.12.2023 08:43
Danskt fragtskip hæft af eldflaug Danskt fragtskip í eigu olíu- og flutningarisans Mærsk var hæft af eldflaug í gærkvöldi á siglingu um Rauðahafið. Þessu greinir DR frá. Erlent 31.12.2023 08:19
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29.12.2023 16:00
Leynilegt geimfar á hærri sporbraut en áður Starfsmenn geimfyrirtækisins SpaceX skutu í nótt leynilegu geimfari bandaríska hersins út í geim. Geimfarið X-37B er talið eiga að vera á braut um jörðu í að minnsta kosti tvö ár. Enginn er um borð en eins og áður ber geimfarið leynilegar tilraunir bandarískra vísindamanna. Erlent 29.12.2023 09:52
Trump ekki kjörgengur í Maine Innanríkisráðherra Maine í Bandaríkjunum, sem meðal annars hefur umsjón með framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur ákveðið að Donald Trump sé ekki kjörgengur vegna framgöngu hans þegar ráðist var inn í þinghúsið í Washington árið 2021. Erlent 29.12.2023 06:51
Segist hafa verið grátbeðinn um að vera með Donald Trump hafnar fullyrðingum leikstjórans Chris Columbus um að hann hafi beitt tuddabrögðum til þess að birtast í örstutta stund í jólamyndinni Home Alone 2: Lost in New York. Lífið 28.12.2023 16:04
Masterson kominn í fangelsi Leikarinn og nauðgarinn Danny Masterson hefur verið fluttur í almennt fangelsi í Kaliforníu, þar sem hann mun sitja inni í minnst tuttugu og fimm ár. Masterson mun afplána tvöfaldan nauðgunardóm sinn í North Kern fangelsinu í Kaliforníu. Erlent 28.12.2023 10:33
Gypsy Rose losnar úr steininum og gefur út bók Gypsy Rose Blanchard sem komst í heimsfréttirnar fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða móður sína bíður þess nú að losna úr fangelsi. Hún hefur afplánað rúm sjö ár fyrir aftan lás og slá en verður látin laus í dag. Lífið 28.12.2023 10:09
Umdeild þingkona skiptir um kjördæmi Lauren Boebert, umdeild þingkona Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur lýst því yfir að hún ætli að bjóða sig fram í öðru kjördæmi á næsta ári. Andstæðingur hennar í hennar núverandi kjördæmi, Demókratinn Adam Frisch, hefur safnað mun meira fé en hún hingað til. Erlent 28.12.2023 09:53
Síðasta vopnasendingin í bili samþykkt Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur nú samþykkt hernaðaraðstoð til handa Úkraínu upp á 250 milljónir dollara. Erlent 28.12.2023 07:41
New York Times stefnir OpenAI og Microsoft Stjórnendur bandaríska dagblaðsins New York Times hafa höfðað mál gegn fyrirtækjunum OpenAI og Microsoft fyrir meintan þjófnað á höfundarréttarvörðu efni blaðsins. Erlent 27.12.2023 16:01
YouTube-ari leysti tíu ára gamalt mannshvarfsmál Rannsókn bandaríska YouTube-arans James Hinkle varð til þess að líkamsleifar manns, sem hafði verði týndur í tíu ár, fundust í Missouri-ríki Bandaríkjanna. Erlent 27.12.2023 11:37
Skaut systur sína til bana eftir deilur um jólagjafir Lögregla í Bandaríkjunum hefur handtekið tvo bræður á táningsaldri eftir að systir þeirra var skotin til bana í kjölfar deilna um jólagjafir á heimili í Flórída. Erlent 27.12.2023 08:27
Utanríkismálanefnd tyrkneska þingsins samþykkir aðild Svía Utanríkismálanefnd tyrkneska þingsins hefur lagt blessun sína yfir aðild Svía að Atlantshafsbandalaginu. Næst verður tillaga um inngöngu Svíþjóðar tekin fyrir á þinginu, þar sem bandalag forsetans, Recep Tayyip Erdogan, er með meirihluta. Erlent 27.12.2023 07:34
Sex sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna á Vesturbakkanum Jake Sullivan, ráðgjafi Joe Biden Bandaríkjaforseta í þjóðaröryggismálum, fundaði með ráðherra í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gær til að ræða framtíð Gasa þegar átökum lýkur. Erlent 27.12.2023 07:14
Æskuheimili Beyoncé brann á jólanótt Æskuheimili tónlistarkonunnar Beyoncé í Houston í Bandaríkjunum brann á jólanótt. Fjölskyldan sem býr í húsinu slapp til allrar hamingju óhullt. Lífið 26.12.2023 20:42