Grunaður um að hafa myrt dóttur sína
Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar, á milli klukkan 13 og 18 á sunnudaginn. Upp úr klukkan átján tilkynnti maður að hann hefði orðið dóttur sinni að bana og var handtekinn við Krýsuvíkurveg. Innlent 19.9.2024 14:15
Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Íslenskt samfélag stendur á krossgötum og það er óhjákvæmilegt að leita inn á við. Þetta segir séra Elínborg Sturludóttir. Starfsfólk dómkirkjunnar hefur boðað til kyrrðar- og bænastundar vegna allra þeirra áfalla sem hafa dunið yfir samfélagið að síðustu. Innlent 19.9.2024 12:04
Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar segir engar ábendingar hafa borist lögreglu, sem vert er að fylgja eftir, í tengslum við rannsókn á andláti tíu ára stúlku á sunnudag. Hann kallaði eftir því í gær að fólk hefði sambandi við lögreglu frekar en að dreifa gróusögum um málið. Innlent 19.9.2024 11:51
Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað tíu ára dóttur sinni á sunnudag var yfirheyrður nú síðdegis. Yfirlögregluþjónn hvetur fólk sem hefur haldbærar upplýsingar, sem hafi þýðingu fyrir rannsókn málsins, til að koma með þær til lögreglu. Þar eigi þær heima, en ekki í sögusögnum sem gangi manna á milli á internetinu. Innlent 18.9.2024 16:21
Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Prestar, ráðgjafar, aðilar frá Rauða krossi Íslands auk stjórnenda í Rimaskóla ræddu við nemendur í skólanum fyrir hádegi um andlát nemanda í 5. bekk skólans. Skólastjórnendur segja lykilatriði fyrir foreldra að taka samtalið við börn sín og halda sig aðeins við staðreyndir. Innlent 18.9.2024 13:13
Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðum í tengslum við andlát tíu ára stúlku sem fannst látin í Krýsuvík á sunnudagskvöld. Faðir stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana, hefur ekki verið yfirheyrður síðan á sunnudag. Innlent 18.9.2024 12:17
„Reglur samfélagsins mega ekki vera ómanneskjulegar“ Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands segir lög sem heimili lögreglu að fara inn á spítala til að sækja barn um miðja nótt „ólög og ómanneskjuleg“. Guðrún segir tímabært fyrir samfélagið að staldra við og skoða betur hvernig það geti verið manneskjulegra og í meiri kærleika. Innlent 18.9.2024 07:57
Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögregluna ekki ætla að eyða tíma í að eltast við sögusagnir í Krýsuvíkurmálinu þegar engar ábendingar eða sönnunargögn um annað en það sem faðirinn hefur sagt hafa borist lögreglu. Innlent 17.9.2024 16:41
Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Systir karlmanns sem er í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana segist sár yfir því hve seint nánustu aðstandendum í föðurlegg stúlkunnar voru færð tíðindin. Hún leggur áherslu á að feðginin hafi átt í mjög góðu sambandi. Innlent 17.9.2024 15:40
Nafn stúlkunnar sem lést Stúlkan sem fannst látin á sunnudagskvöld hét Kolfinna Eldey Sigurðardóttir. Innlent 17.9.2024 14:53
Til rannsóknar hvar stúlkan var myrt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar það nú hvort að tíu ára stúlka hafi verið myrt í hrauni gegnt Vatnsskarðsnámu við Krýsuvíkurveg á sunnudag eða hvort hún hafi verið myrt annars staðar. Lögreglan leggur mikla áhersla á aðdraganda morðsins í rannsókn sinni. Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV. Innlent 17.9.2024 14:48
Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Aldrei hafa verið framin jafn mörg manndráp á Íslandi á einu ári líkt og það sem af er þessu ári. Afbrotafræðingur vonast til þess að um sé að ræða topp sem gangi svo aftur niður. Þjóðin finni sérstaklega til þegar börn eiga í hlut í málunum. Innlent 17.9.2024 12:17
Faðirinn hafi beint lögreglu að stúlkunni Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana hefur verið samvinnufús að mati Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeildar lögreglu. Innlent 16.9.2024 16:46
Faðirinn handtekinn meðan leitað var að tíu ára stúlkunni Íslenskur karlmaður á miðjum fimmtugsaldri sem er grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana var óljós um bæði atvik og staðsetningu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna útaf málinu. Þegar lögregla kom á vettvang handtók hún manninn og leitaði stúlkunnar sem fannst skammt frá. Innlent 16.9.2024 15:36
Þriðja manndrápsmálið á árinu þar sem barn lætur lífið Íslenskur maður var handtekinn í Krýsuvík í gærkvöldi, grunaður um að hafa orðið dóttur sinni að bana. Um er að ræða sjötta manndrápsmálið hér á landi í ár, og það þriðja þar sem barn lætur lífið. Innlent 16.9.2024 15:07
Faðirinn í Krýsuvík hefur komið við sögu lögreglu Karlmaður í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa orðið ungri dóttur sinni að bana hefur bæði hlotið þungan dóm fyrir fíkniefnainnflutning og kannabisræktun. Karlmaðurinn er á fimmtugsaldri. Innlent 16.9.2024 14:52
Íslenskur faðir grunaður um að hafa banað dóttur sinni Karlmaður sem var handtekinn í gærkvöldi grunaður um að hafa orðið ungri stúlku að bana er faðir stúlkunnar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Faðirinn var handtekinn í Krýsuvík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Innlent 16.9.2024 11:44
Grunaður um að hafa orðið stúlku á grunnskólaaldri að bana Karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið stúlku að bana. Stúlkan var á grunnskólaaldri samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Karlmaðurinn var handtekinn í Krýsuvík um kvöldmatarleytið í gær. Innlent 16.9.2024 09:46